Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Qupperneq 8

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Qupperneq 8
• • / Haukur Þórðarson varaform. OBI.: á samstöðuhátíð / Avarp • • Oryrkjabandalag Islands hefur um nokkurt skeið haldið þeim sið að efna til samstöðuhátíðar hér og þar um landið á þessum tíma árs þegar skammdegið er mest, þegar birtan er styst og dimman lengst. Tilgangurinn með samstöðuhátíð ÖBI. í svörtu skammdeginu er af ýmsum toga, m.a. sögulegum, því að upphafið má rekja til einskonar samblásturs sem brast á gagnvart tilteknum hópi fatlaðra fyrir nokkrum árum og bar það til á þessum tíma skammdegisins. Þá var samstöðu sannarlega þörf og hún gaf árangur sem erfiði. Samstaðan leiðir ávallt til einhvers ávinnings og okkur er hollt að vera minnt á það af og til að samstaða hefur samfélagslegt og hugsjónalegt gildi, bæði tímabundið og til frambúðar. Fatlaðir eru margleitur hópur, að sjálfsögðu, en þeim er það sam- eiginlegt að eiga á einn hátt eða annan öðruvísi tilveru og öðruvísi hlutdeild en ófatlaðir í samfélaginu. A.m.k. einn maður af hverjum tíu hér á Vestur- löndum býr við einhvers konar skerð- ingu af völdum fötlunar, að því sagt er, eða 10% manna. Sumir nefna jafnvel hærri hundraðstölu, 15% og hlutfallið er að sjálfsögðu enn hærra í þróunarlöndunum. Ef við tökum svona hlutfallstölur hátíðlega og alvarlega eru um 25-30 þúsund Islendingar athafna- skertir, á einn eða annan hátt, vegna fötlunar. Samstaða þessa hóps er brýn Haukur Þórðarson af augljósum ástæðum: Hópurinn verður, raunar eins og aðrir hópar í samfélagi manna, að vinna sjálfur að málum sínum, því að aðrir gera það ekki nema í takmörkuðum mæli. Ég rakst nýlega á þá athyglisverðu ábendingu í blaðagrein að öryrkjar og ellilífeyrisþegar búi við býsna áþekka aðstöðu hvað varðar ýmis réttindamál og samneyslumál. Vel má þessi ábending vera rétt. Á það hefur líka verið bent að lítið er um það að fólk úr þessum hópum veljist til ábyrgðar eða komist til áhrifa í stjórnmálum, eigi t.d. litla hlutdeild í sveitar- stjórnarmálum, hvað þá störfum hins háa Alþingis. Ellilífeyrisþegarnir sökum aldurs, nú þykir allt að því sjálfsagt að skipta út mönnum eins fljótt eftir sextugt og auðið er. Hinir fötluðu sökum þess að þá skortir flesta að jafnaði atorkuna, aðstöðuna og fjármagnið sem til þarf í stjórn- málaumrótið. Ef við leggjum þessa tvo hópa í einn gæti samtalan verið 50 - 60 þúsund manns, eða með öðrum orðum um fimmtungur þjóðarinnar. Það telst vænn hópur á leiksviði stjórnmálanna ef út í það væri farið. Ekki velti ég þessu upp til að hvetja þá sem hér um ræðir til að stofna stjórnmálaflokk, síður en svo, en þessi hópur verður að láta meira til sín taka á hinu pólitíska sviði en hann hefur gert til þessa, og þá hvar í þeim flokki sem hann kýs. Einn tilgangur samstöðuhátíðar ÖBÍ. í svartasta skammdeginu er að bregða táknrænni birtu á dimmuna með því að kveikja ljós á tré. Grenitré er jólatré, ljósin jólaljós. Það er ekki ýkja gamall siður hér á landi að setja ljós á tré kringum jól. Þeim mun eldri er sá siður að lýsa upp skammdegið með því ljósmeti sem tiltækt hefur verið á hverjum tíma, grútartýrum, tólgarkertum, vaxkertum og núna rafmagnsljósaperum. Skammdeg- islýsing er eðlisbundið viðbragð hjá okkur sem búum á norðurslóðum til að vinna bug á myrkrinu og til að minna á bjarta daga og nætur fram- undan. Mig langar til í lok máls míns að minnast hér eins af sonum Skagafjarðar sem horfinn er sjónum yfir móðuna miklu, Jóhanns Péturs Sveinssonar, sem tókst með ofur- mannlegum hætti að halda hlut sínum, halda sínu striki, þrátt fyrir mjög umtalsverða hreyfihömlun. Jóhann sem lést langt um aldur fram á síðasta sumri var mikið leiðtogaefni og ótrauður baráttumaður. Það er við hæfi að við minnumst hans hér á slóðum uppruna hans með andar- taksþögn. Öryrkjabandalag fslands óskar íbúum á Norðurlandi vestra hjart- anlega til hamingju með stórglæsilegt sambýli á Sauðárkróki og árnar íbúum þess heilla og hamingju um alla framtíð. jj þ HLERAÐ I HORNUM Kona óðalsbóndans kom til hans og sagði: “Þeir segja að hún Gunna vinnukona eigi von á bami”. “Hún um það“, anzaði bóndi.“ Þeir segja að þú sért faðirinn”. “Ég um það”, svaraði bóndi. “Er ekki von að mér sárni?” “Þú um það”, sagði bóndi þá. * Boðorðin hafa bögglast fyrir brjósti manna, bæði það að læra þau og ekki síður auðvitað að fara eftir þeim. í skóla einum gekk nemanda með afbrigðum illa að læra boðorðin og blandaði þeim illilega saman. Einu sinni kom þetta boðorð frá pilti: “Þú skalt ekki giftast náunga þínum”. * Einu sinni kom þetta svar við spurningu um hver væri undirstaða alls dýralífs í sjó: “Botninn“. 8

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.