Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Síða 19
því ráðin. Áfram yrði það aðalmarkmiðið hjá SÍBS sem
fjölmennustu sjúklingasamtaka landsins að styðja sjúka
til sjálfsbjargar.
Ávarp flutti svo Sighvatur Björgvinsson heilbrigð-
isráðherra. Hann kvað seinni hluta þessarar aldar mesta
umbreytingatímann í heilbrigðismálum okkar. Minnti á
upphaf Reykjalundar - aðstöðu og aðbúnað þá og hvílík
bylting hefði á öllu orðið frá þeim tíma. Endurhæfingarstarf
á Islandi í raun hafizt á Reykjalundi. Hann sagði að for-
dæmi stjórnar Reykjalundar sýndi hversu heilbrigðis-
þjónustan ætti að laga sig að breyttum aðstæðum. Reykja-
lundur væri virk stofnun og öflug og heilbrigðisstjórnin
kynni verulega vel að meta starfið þar. Islenska þjóðin
hefði í verki sýnt stuðning við SIBS og um leið Reykjalund.
Hann flutti hlýjar heillaóskir ríkisstjórnarinnar og kvaðst
vona að samstarf yrði áfram sem bezt og heilladrýgst.
á voru hinar veglegustu veitingar fram reiddar og
Reykjalundarkórinn söng listilega nokkur lögundir
stjóm Lárusar Sveinssonar m.a. lagið Vor í Mosfellssveit
sem Elsa Sigfúss hafði tileinkað Reykjalundi.
Þá tók Rannveig Löve kennari og
form. Reykjavíkurdeildar SÍBS til
máls, en hún var á Reykjalundi meðal
fyrstu vistmanna fyrir 50 árum. Hún
vitnaði fyrst í hið kunna kvæði Gríms
Thomsen: “Endurminningin merlar
æ”. Hún leiddi fólk inn í aðra veröld
- annað líf - lýsti veru sinni á Reykja-
lundi í árdaga hans, harðri baráttu,
en órofasamstöðu fólksins. Kom frá
Vífilsstöðum ásamt fleirum - kvíða-
blandin var gleðin á leiðinni til nýs
lífs, litlu húsin hvítu tóku fagnandi á
móti þeim, ótrúleg breyting þar sem
hver hafði sitt herbergi. Þarna stund-
aði fólk iðju og nám til undirbúnings
út á almennan vinnumarkað, en það
auðnaðist sumum aldrei.
Minnti á hlutverk bragganna -
fátæklegan ytri umbúnað - en innri
gleði í hjarta og glögglega mátti finna
að þjóðin stóð að baki. Afbenti svo
fyrir hönd Reykjavíkurdeildar SIBS
gjöf til bókasafnsins á Reykjalundi.
Þá kynnti Helga Friðfinnsdóttir fram-
kv.stj. Happdrættis SÍBS úrslit í rit-
gerða- og teiknisamkeppni þar sem
samtökin voru kynnt meðal æsku-
fólks og samkeppnin kom svo í
kjölfarið. 1. verðlaun í ritgerðarsam-
keppni hlaut María Ágústsdóttir,
Reykjavík og I. verðlaun í teikni-
samkeppninni Heiðbjört Tíbrá Kjart-
ansdóttir, Ólafsvfk. Mörg aukaverð-
laun voru einnig. Helga flutti hvatn-
ingu í lokin um leið og hún þakkaði
öllum ágæta þátttöku.
Björn Ástmundsson greindi frá mörgum góðum gjöfum
til Reykjalundar. Fyrirtækið Árvík hafði gefið tölvu
til iðjuþjálfunar. Jón bóndi á Reykjum og hans fólk gefið
peningaupphæð, Haukur Níelsson bóndi gefiðlandsspildu
við landamerki Reykjalundar og Helgafells, Pálína
Magnúsdóttir sem er vistmaður á Reykjalundi bókagjöf
og svo höfðu fjölmargar hlýjar kveðjur borist.
Jóhann Sigurjónsson bæjarstjóri Mosfellsbæjar flutti
árnaðaróskir, kvað Reykjalund einn þýðingarmesta
hlekkinn í bæjarfélaginu, reksturinn þar til mikillar
fyrirmyndar og sagði Reykjalund skipa stóran sess í hugum
Mosfellinga. Færði fagurt málverk að gjöf frá bæjar-
félaginu.
Ólöf Ríkarðsdóttir flutti heillaóskir Öryrkjabandalags
íslands og þakkir fyrir hið dýrmæta starf sem þarna hefði
verið og væri innt af hendi. Framsýni hefði ráðið ferð í
upphafi, framþróunin verið einkar gleðileg. Reykjalundur
væri sannarlega í fararbroddi í endurhæfingu og heilsu-
gæzlu. Afhenti frá bandalaginu peningagjöf til lista-
verkakaupa.
Fulltrúi Lionsklúbbs Mosfellsbæjar færði gjafabréf til
kaupa á tæki sem mælir súrefnisupptöku í líkamanum.
á talaði Haukur Þórðarson form.
SÍBS og yfirlæknir á Reykja-
lundi. Hann kvað söguna úa og grúa
af tímamótum. Tímamótin krefðust
uppgjörs: “ Það er svo bágt að standa
í stað “. Hann minnti alveg sérstaklega
á þá byltingu sem orðið hefði í
endurhæfingu. Hann sagði SÍBS alltaf
hafa stutt við alla nýsköpun á Reykja-
lundi og ný verkefni þar.
1. feb. sl. samþykkti stjórn SÍBS
að beita sér fyrir áframhaldandi vinnu
að endurhæfingarmálum að Reykja-
lundi og að ráðast í byggingafram-
kvæmdirþær, sem þörf væri á. Endur-
skoða þarf alla starfsemi í þágu endur-
hæfingar. Færði starfsfólki einkar góð-
ar þakkir fyrir trúmennsku sfna, seiglu
og þátttöku í farsælli þróun. Hann
þakkaði góðar gjafir og kveðjur f.h.
SÍBS.
Þá söng Reykjalundarkórinn nokk-
ur Iög og í lokin var sunginn söngur
SÍBS, lag Oddgeirs Kristjánssonarvið
ljóð Árna úr Eyjum við undirleik
skólahljómsveitar Mosfellsbæjar. Var
það fagur endir á ánægjulegri hátíð.
Á eftir fóru flestir gestir að skoða
sýninguna góðu.
Ritstjóri sendir til Reykjalundar
árnaðaróskir góðar yIjaðar kærri þökk
fyrir mætar stundir þar efra. Þar er
unnið af alúð og kærleik, elju og bjart-
sýni, en bezt þykist ritstjóri orða þetta
í litlu ljóði sem hann birtir hér með.
Það er ljómi og reisn um Reykjalund.
Helgi Seljan.
Reykjalundur
50 ára
Að veita æ því veika lið
og víkja hvergi af leið.
Var frumherjanna fremsta mið
sem fræknir út í sólskinið,
oss báru sigurseið.
Með bjartsýni að vopni var
til varnar snúizt greitt.
Með frjóa sýn til framtíðar
þar fremst var leið til sjálfshjálpar,
og öllum vonin veitt.
í hljóðri þökk skal hylla sveit
og heiðra minning þá.
Þau gáfu okkur griðareit
þau gáfu djörfust fyrirheit.
Þar verkin víst má sjá.
Þið áfram hafið erjað þar
og ávaxtað það pund.
Á vegi sannrar samhjálpar
er sótt og varizt alls staðar.
Og reisn um Reykjalund.
En margra þakkir eigið þið
sem þarna áttu stund.
Því ennþá er það æðsta mið
að auka þrótt og veita lið.
Og Ijómi um Reykjalund.
Helgi Seljan.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
19