Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Page 41
SAMHUGUR
Blátt land - blátt haf
björt framtíð sem gaf
okkur sagnir, sögur, Ijóð,
eitt land - ein þjóð.
Blá fjöll - björt nótt
blikar haf sem gaf
okkur allt í sarp og sjóð
eitt land - ein þjóð.
Hvít fjöll - hvít mjöll
fellur þung - færir burt
fólk sem sefur, grið ei gefur
grimmt land - gott fólk.
Allt er hljótt - er eilíf nótt?
Gefðu þeim guð þinn frið.
Þöglar bænir safnast í sjóð
eitt land - ein þjóð.
Kemur vor - eykur þor
grimms vetrar gengin spor.
Lífsins vonir safnast í sjóð
mitt land - mín þjóð.
Ásgerður Ingimarsdóttir.
• • /
Stjórn Oryrkjabandalags Islands
Fámennið á auðvitað eftir að há
okkur eitthvað í þessu sem öðru, en
hér á íslandi eru um 130 manns með
afdráttarlausan úrskurð og annar eins
hópur með óljósari greiningu.
Nú þegar höfum við haldið tvo
fundi. Stofnfundurinn var haldinn í
maí og var mjög vel sóttur. Þar gerðust
um 65 manns félagar og við vorum
mjög ánægðar með undirtektir. Helgi
Jónsson, gigtarsérfræðingur talaði um
rauða úlfa og síðan voru fjörugar
umræður og veitingar veittar.
Annan fund héldum við í nóvem-
ber og þar talaði Kristján Steins-
son gigtarsérfræðingur um nýjustu
rannsóknir á rauðum úlfum og erfð-
um. Það var líka mjög fróðlegt og
mikið spurt og spjallað. Þar kom fram
að á íslandi eru tvær ættir, sem hafa
óeðlilega tíðni af rauðum úlfum og
öðrum alvarlegum bandvefssjúkdóm-
um og fara nú fram miklar rannsóknir
á þessu fólki í samvinnu við erlenda
háskóla og verður spennandi að sjá
niðurstöður .
Við í Kjarnanum erum með ýmis-
legt á prjónunum, því ekki á þetta
aðeins að vera félagsskapur sem held-
ur fræðsluerindi, þótt þau séu sann-
arlega mikilvæg. Okkur langar til að
fá fólkið í félaginu til að taka þátt í
starfinu, því margt þarf að gera,
útvega fræðsluefni, stofna stuðnings-
hópa og ótalmargt annað. Allir sem
hafa áhuga á þessu málefni eru vel-
komnir í félagið og er ekkert skilyrði
að hafa þennan sjúkdóm, en félagar
verða um leið meðlimir í Gigtarfélagi
Islands. Við þurfum að kynnast og
finna samkennd, því reynslan erlendis
hefur sýnt að það er mikilvægasti
þáttur svona félaga og getur gert
okkur auðveldara að gera það sem
allir króniskir sjúklingar verða að gera
- að lifa með sjúkdómi sínum á sem
bærilegastan hátt.
Sigríður Gunnarsdóttir,
talsímavörður.
HLERAÐ
í HORNUM
Kona hældi sér af því að hafa misst
90 kíló á einu bretti. „Og hvemig þá?“
var spurt. „Jú ég skildi við karlinn og
90 kíló af skvapi um leið“.
Anna Jóna Lárusdóttir:
Félag heyrnarlausra.
Dagfríður Halldórsdóttir:
Félag nýrnasjúkra.
Eggert Sigurðsson :
Alnæmissamtökin á Islandi.
Elísabet Á. Möller:
Geðvemdarfélag íslands.
Emil Thóroddsen :
Gigtarfélag íslands.
Guðbjörg Jóna Sigurðardóttir:
Blindravinafélag Islands.
Guðjón Ingvi Stefánsson :
Heymarhjálp.
Hafdís Hannesdóttir:
MS félag íslands.
Hafliði Hjartarson :
Styrktarfélag vangefinna.
Halldór S. Rafnar:
Blindrafélagið.
Haukur Þórðarson :
S.Í.B.S.
Hugrún Þórðardóttir:
F.A.A.S.
Jóna Sveinsdóttir:
Foreldra - og styrktarfélag
heymardaufra.
Kristjana M. Thorsteinsson :
Parkinson - samtökin.
Olafur H. Sigurjónsson :
Umsjónarfélag einhverfra.
Ólöf S. Eysteinsdóttir :
MG félagið.
Ólöf Ríkarðsdóttir:
Sjálfsbjörg.
Sigrún Bára Friðfinnsdóttir:
Geðhjálp.
Valgerður Auðunsdóttir:
S.P.O.E.X.
Þórey J. Ólafsdóttir :
L.A.U.F.
Þórir Þorvarðarson :
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Framkvæmdastjórn Ö.B.I.:
Formaður : Ólöf Ríkarðsdóttir
Varaformaður: Haukur Þórðarson
Ritari: Þórey J. Ólafsdóttir
Gjaldkeri : Hafliði Hjartarson
Meðstjóm. : Hafdís Hannesdóttir
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
41