Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1995, Side 47
Eldhúsverkin í algleymingi í iðjuþjálfun á Reykjalundi.
marka sameigin-
lega stefnu til
frambúðar.
Ekki sízt mun
þessa þörf, ef flytja
á verkefni mála-
flokksins til sveit-
arfélaga, að hér séu
sem hreinastar
línur.
Öryrkjabanda-
lagið mun leita
allra leiða til þess
að hér verði varan-
lega frá málum
gengið til heilla
fyrir fatlaða.
***
Geta skal þess
sem gert er -
þetta hefur verið
boðorð okkar hér á
bæ - jafnhliða því
að halda uppi
hiklausri gagnrýni á það sem miður
hefur farið.
Þegar fjárlög ársins 1995 eru
skoðuð og litið er til málaflokksins:
Málefni fatlaðra í félagsmálaráðu-
neyti og borið saman við fjárlög
síðasta árs, kemur í ljós að framlög
hafa hækkað um 40 milljónir kr. sam-
tals og það ber að meta á niðurskurð-
artímum.
Það sem mestu máli skiptir í þessu
efni er sú staðreynd að þar er gert ráð
fyrir með fjárveitingum - að vísu
aðeins síðustu mánuði ársins - nýjum
rekstrarverkefnum í Reykjavík og á
Reykjanesi, þar sem þörfin er
sannanlega brýnust.
Þetta þýðir í reynd það að rekstur
er heimilaður til tveggja nýrra sam-
býla í Reykjavík og til nýrrar skamm-
tímavistunar á Reykjanesi og um leið
hvílir sú skylda á Framkvæmdasjóði
fatlaðra að veita fé til þessara þriggja
verkefna á þessu ári þ.e. við útdeilingu
sjóðsins sem nú stendur yfir og verður
trúlega lokið þegar þessar línur koma
lesendum fyrir sjónir. Megináherzla
hefur verið á það lögð á liðnum árum
að fá fjárveitingar til nýs rekstrar, þar
sem þörfin kallar svo víða að og full
ástæða til að fagna þessu. Hins vegar
leiðir þetta til þess að staða Fram-
kvæmdasjóðs fatlaðra verði skoðuð
nú í ljósi þessara tíðinda.
Sannleikurinn er sá að skuldbind-
ingar sjóðsins eru ærnar orðnar eins
og greint var frá hér að framan, 40%
hans fara í ýmis rekstrarverkefni og
þó þar innifalin stofnframlög vegna
útskrifta af Kópavogshæli, viðhalds-
verkefni fjárfrek og knýjandi, aðgeng-
isverkefni brýn til úrbóta og skuld-
bindingar þar á ofan vegna framlaga
liðins árs, allt kallar þetta á ákveðna
skoðun varðandi forgangsverkefni
sjóðsins. I huga ritstjóra er enginn vafi
á því, að þar eiga stofnframkvæmdir
æðstan sess, nú eins og þegar sjóð-
urinn kom upphaflega til og það hljóta
áfram að vera meginmál sjóðsins til
úrlausnar. Sem dæmi um bein rekstr-
arverkefni skal aðeins minnzt á
umsóknir nú um frekari liðveizlu, en
þær nema að fjárhæð nálægt þriðjungi
alls sjóðsins s.s. hann er á fjárlögum
nú. Þeim sem útdeila eiga fé til svo
margra misleitra verkefna er því
vissulega vandi á höndum, en vonandi
að vel takist til.
Nú þegar sagt er að allt sé til
batnaðar að breytast í þjóðlífinu ætti
einmitt að vera til þess tækifæri að
létta af Framkvæmdasjóði fatlaðra
viðbótarálögum og gera hann á ný
virkan í nýjum krefjandi stofnfram-
kvæmdum sem leyst geta vanda þeirra
mörgu fötluðu sem nú búa við hinar
verstu aðstæður.
Við bíðum og sjáum hvað setur.
Lengi hefur Öryrkjabandalag
íslands barizt fyrir því að trygg-
ingabætur - laun
öryrkjanna - væru
greidd fyrirfram í
byrjun hvers
mánaðar. Ekki
alls fyrir löngu
náðist sá áfangi
að greiðsludagur
bóta var færður
fram um viku - frá
því að vera 10.
hvers mánaðar í
að vera 3. hvers
mánaðar. Og nú
um áramótin tóku
gildi lög sem
færðu rétt lífeyris-
þega til fulls sam-
ræmis við aðra
launþega hjá því
opinbera, þannig
að nú eru bætur
greiddar út 1.
hvers mánaðar.
Þessu ber sannarlega að fagna, því fáir
þola ver að þurfa að bíða sinna launa
en einmitt þeir sem hvað minnst bera
út býtum í samfélaginu.
Ráðherra og löggjafi eiga hér
þakkir skildar.
***
Um áramótin 1993-94 gengu í
gildi ný lög um öryrkjavinnu og
í framhaldinu var farið í vinnu að sem
vandaðastri reglugerð þar sem Amþór
Helgason og undirritaður komu að
verki frá Öryrkjabandalagi Islands.
Lögin voru góð framför frá eldri
lögum þar sem þröng ákvæði gildis-
tíma og greiðsluhlutfalls voru vel
rýmkuð og það sem mestu skiptir að
bætur féllu ekki niður á samn-
ingstíma heldur taka skerðingu á sama
veg og af öðrum launatekjum.
Reglugerðarvinna dróst á langinn af
ýmsurn ástæðum, en var lokið í
desember s.l. og þá fljótlega send
ráðuneyti tryggingamála til staðfest-
ingar. Vonandi verður búið að stað-
festa reglugerðina þegar þessar línur
koma fyrir lesenda sjónir, því margir
bíða þess nú þegar að nýta sér þennan
kost, sem nú er næsta fýsilegur fyrir
öryrkja jafnt sem atvinnurekendur.
Góðir hlutir gerast hægt segir einhvers
staðar. Megi það gilda um árangur
þessarar vinnu.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJAB ANDALAGSINS
47