Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Side 20

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Side 20
enn. Þórður var á Dalbraut til haustsins 1984. Haustið áður hafði hann farið í Safamýrarskólann en verið á dagdeildinni við Dalbraut hinn tíma dagsins. Haustið 1984 fór hann á Lyngás. Það var gott að vera í Mosfellssveitinni með börn. Þórður gat leikið sér þar í fjörunni og vaðið í leirunum og oft voru slíkar ferðir farnar. Við fórum að tala um lækinn hans Þórðar, þar sem hann gat dundað við að sulla, leirurnar höfðu mikið aðdráttarafl. Og þegar háfjara var óð hann oft alveg yfir Leiruvoginn. Það er fljótt að flæða að á þessum slóðum og því kom það fyrir að ég stóð gargandi í fjörunni og bað hann að koma. En í mörgum tilvikum varð ég reyndar að vaða yfir og sækja hann. Það var mikið um að vera hjá þessari litlu fjölskyldu þessi ár. Pabbinn var kom- inn í sjálfstæðan atvinnurekstur eftir að hafa verið í öryggi ríkisstarfsmannsins í tíu ár. Mamman var byrjuð í háskólanámi eftir að hafa unnið ýmis störf ásamt uppeldi og húsmóður- störfum undanfarin ár. Það var oft ansi rnikið að gera. En við nutum lífsins á okkar hátt. Við fórum á skíði með börnunum og mikið í sund. Það hjálpaði mikið hvað Þórður var einstaklega vel á sig kominn líkamlega. Vonin að skiptir afar miklu máli í lífi fjölskyldu með einhverfan einstakling að halda ætíð í vonina, vonina um betra tímabil þegar erfiðleikar ganga yfir. Vonina um að barninu fari fram og geti þannig verið betur fært um að lifa lífinu. Vonina um að e.t.v. öðlist menn betri skilning á einhverfunni og þannig verði fremur hægt að aðstoða hinn einhverfa við að læra. Það fólk sem unnið hefur með Þórð og hefur haft einhverjar vonir fyrir hans hönd hefur ætíð tekist best upp með hann. Það er mikill misskilningur sem ég hef stundum rekið mig á meðal fagfólks þegar talað er um að það megi ekki vekja einhverjar falsvonir hjá foreldrum. Við þekkjum okkar barn best og það eru ekki falsvonir að vona hið besta. Að halda í vonina og vera jákvæður léttir róðurinn jafnvel þó að vonirnar rætist ekki. Við erum jú það raunsæ að við vitum mæta vel að allar vonir rætast ekki. Einn af fyrstu kennurum Þórðar hafði mjög ákveðnar skoðanir og lagði margt jákvætt og gott til málanna. Það jók bjartsýni okkar foreldranna að heyra hann tala um að Þórður myndi fyrst nota tákn og svo yrði hann farinn að tala eftir nokkur ár. Að ýmsu leyti reyndist þetta rétt vera. Fyrst notaði hann tákn og síðar gat hann talað þ.e.a.s. hann getur beðið um það sem hann vanhagar um. Vonin hefur e.t.v. hjálpað okkur í fjölskyldunni við að halda táknunum að Þórði og hvetja hann til að segja orðin og því aukið líkurnar á því að hann færi að nota orð aftur. Vonin er þýðingarmikil í öllu lífinu. Vœntingar uðvitað tengjast væntingar voninni en eru ekki alveg það sama. Þær væntingar sem ég bar fyrst af öllu til Þórðar sem barns var að hann gæti orðið hamingjusamur þrátt fyrir sína erfiðu fötlun. Að hann yrði fær um að njóta þess í lífinu sem geta hans leyfði. Sem betur fer var hann vel á sig kominn líkamlega þannig að hann gat notið þess að koma með á skauta og skíði. Sundið var vettvangur mikillar ánægju. Eg hafði væntingar um að hann gæti lært eitthvað í skólanum sem síðar gæti nýst honum í tóm- stundum. Þar lærði hann m.a. að vefa með aðstoð og gekk vel. Eg álít að sú skólun sem Þórður fékk í Safamýrarskóla hafi nýst honum mjög vel. Og raunar hef ég þær væntingar nú að einhverfir einstakl- ingar geti fengið að vera mun lengur í markvissri kennslu en nú er. Mér fannst að Þórður tæki mun betur við átján ára en tíu ára. Þær væntingar sem ég hef til sam- félagsins fyrir hans hönd í dag er að hann geti fengið að njóta leiðsagnar og þjálfun- ar við hans hæfi. Að hann þurfi ekki að hanga aðgerðarlaus. Aðgerðarleysið er hans versti óvinur eins og annarra ein- hverfra einstaklinga. Eg hef líka þær væntingar að skiln- ingur aukist á þessari sérstæðu fötlun sem einhverfan er. Hamingja amingja er eins og önnur hugtök ákaflega teygjanleg. En því þarf ekki að fylgja nein óhamingja að hafa einhverfan einstakling innan vébanda fjölskyldunnar. Gildin breytast við að verða samferða slíkum einstaklingi í gegnum lífið. Hvert örstutt skref fram á við er hamingja. Það skiptir svo miklu máli hvernig við sjálf, foreldrarnir, lítum á aðstæðurnar. Þótt oft hafi blásið á móti og erfið- leikar verið í okkar fjölskyldu get ég samt sagt að við höfum verið hamingjusöm fjölskylda. Við höfum notið þess að vera samvistum við þennan einhverfa einstakling og auðvitað líka ófatlaða barnið okkar. En það sem hefur auðveldað okkur lífið er að í mörg ár fórum við eitthvað í burtu á hverju ári með dóttur okkar en Þórður var í vistun á meðan. Þar gátum við sinnt henni betur en oft áður og lifað saman eins og “venjuleg” fjölskylda. Það hjálpaði okkur að hlaða “batteríin” okkar og takast á við það álag sem fylgir því óhjákvæmilega að vera samvistum við ofvirkan einhverfan dreng. Þá nutum við líka betur samvistanna við hann er heim kom. Hamingjan hjá Þórði í dag þegar hann kemur heim felst í því að fara að hjóla með pabba sínum, að fara í sund eða í búðarferð. Það þarf ekki að vera mikið til að gleðja hann. Hann er fljótur til að rjúka upp úr sæti sínu þegar talað er um að hjóla eða fara í sund. Oft biður hann líka um þetta sjálfur. En ég held að 20

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.