Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Side 8

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Side 8
Frá Samtökum sykursjúkra: F ORM AÐURINN FENGINN í SPJALL henni veröld og ekki má gleyma því að ferðakostnaður fatlaðra er oft meiri en annarra vegna ýmissa sérþarfa, hjálparmanna svo eitthvað sé nefnt. Ég minntist hér í upphafi máls míns á HELIOS fundinn sem ég sótti í Brussel. Þar heyrði ég gleðileg tíðindi sem vonandi hafa áhrif hér með tíð og tíma. Það ku vera búið að samþykkja hjá Evrópusambandinu lög þar sem aðildarrrkjunum er gert skylt að gera alla strætisvagna og alla áætlunarbfla sem sinna almenningi aðgengilega öllum. Breytingin á að mér skilst að gerast innan fárra ára. Fróðlegt verður að fylgjast með því hvernig menn hér á bæ bregðast við, gangi þetta eftir. Að lokum þetta: Það er margt í ólagi en höfum hugfast að hálfnað er verk þá hafið er og Islendingar geta gert svo miklu betur. Það þarf góða samvinnu þeirra er að málum koma, það þarf öfluga upplýsingavinnu, það þarf að sýna fötluðum ferðamönnum í verki að þeir séu velkomnir, það þarf gott skipulag á hlutunum . Islensk náttúra getur verið erfið en hún er þess virði að við öll sækjum hana heim. íslensk ferðaþjónusta er tækið til að gera okkur það kleift . Viljinn er allt sem þarf. Sigurður Björnsson. Erindiflutt á ráðstefnunni: Ferðalög fyrir alla Hlerað í hornum í markaðsmálum og auglýsinga- mennsku er mönnum ekkert heilagt og því til sönnunar var þessi saga sögð. Stanley fyrirtækið - það sem m.a. selur nagla - átti afmæli og menn vildu gjarnan fá nýja ímynd og ásjónu í auglýsingabransanum. Leitað var til auglýsingastofu og ungir menn þar tóku að sér verkið. Eftir viku komu þeir með afraksturinn, stórt flettiskilti með Jesú Kristi á krossinum og undir stóð flenniletri: Þeir halda vel nagl- arnir frá Stanley. Ungu mennirnir voru gerðir afturreka með þetta og tveim dögum seinna komu þeir með mynd af Jesú Rristi hlaupandi niður Golgatahæðina frá krossinum og undir stóð með stríðsletri: Það hefði verið betra að nota naglana frá Stanley. s liðnu hausti bættust tvö félög í flota Öryrkjabandalags Islands, en það voru MND félag íslands og Samtök sykursjúki'a. Aður hefur hér í blaðinu verið gerð grein fyrir MND félaginu og nú skal úr bætt varð- andi Samtök syk- ursjúkra. Við fengum formann félagsins, Sigurð V. Viggósson, til að gera félaginu nokkur skil hér í blaðinu og fer frásögn hans hér á eftir með fáeinum innskotum frá ritstjóra. Hvað um aldur og tilgang? Samtök sykursjúkra voru stofnuð 25. nóv. 1971 og varð félagið því 25 ára á síðastliðnu ári. Aðalhvatamaður að stofnun þess og fyrsti formaður um leið var Helgi Hannesson. Félags- svæðið er landið allt og félagar geta orðið sykursjúklingar, fagfólk í sykur- sýki og velunnarar sem styðja vilja tilgang félagsins. Tilgangur félagsins skv. lögum þess er m.a.: a) að halda uppi fræðslu um sykur- sýki, b) að vinna að því að komið verði á fót lækningastöð fyrir sykursjúka með sérmenntuðu starfsliði, c) að bæta félagslega aðstöðu sykur- sjúkra. Hvar er félagið með aðstöðu og hverjir skipa nú stjórn þess? Samtök sykursjúkra eru með skrif- stofu sína á þriðju hæð að Laugavegi 26, er þar í vissu samstarfi við Park- insonsamtökin og Félag heilablóð- fallsskaðaðra s.s. þú munt áður hafa sagt frá. Núverandi stjórn er þannig skipuð: Sigurður V. Viggósson for- maður, Þuríður Björnsdóttir varafor- maður, Helga Geirsdóttir gjaldkeri og meðstjórnendur þau Björn Erlingsson og Helen Sjöfn Steinarsdóttir. Hver eru helztu viðfangsefni núverandi stjórnar eða hafa verið? Helstu viðfangsefni stjórnar hafa verið að bæta samstarf við alla helstu aðila sem með einhverjum hætti koma að málefnum sykursjúkra t.d. Göngu- deild sykursjúkra, Samtök sykur- sjúkra á Akureyri, IDF - alþjóða- samtök sykursjúkra og þó sérstaklega hin ýmsu samtök sykursjúkra á Norð- urlöndum. Til gamans má geta þess að mikil gróska er í þessum mála- flokki þar og ýmsar samstarfsnefndir eru í gangi og erum við nú orðin þátttakendur í allnokkrum þeirra. Einhver sérstök verkefni sem þú vildir koma inn á? Já, eitt helsta verkefnið sem verið hefur í gangi og gengur undir heitinu “Tvinning” felst í því að sérhvert Norðurlandanna tók að sér eitthvert Eystrasaltsríkjanna og studdi þá við uppbyggingu samtaka þar. Á ráð- stefnu sem haldin var í Ósló í ágúst síðastliðnum benti ég á að “litlu lönd- in” innan Norðurlandanna (fsland, Færeyjar, Grænland) væru ekki síður aðstoðar þurfi og niðurstaðan varð sú að norsku samtökin tóku okkur að sér í eins konar fóstur og hafa þau verið okkur mikill styrkur. Við líturn einnig mjög til uppbyggingarheildarsamtaka sykursjúkra í Noregi, þar sem innan þeirra eru yfirleitt allir þeir sem að málum sykursjúkra koma á einhverju stigi. Þessum aðilum öllum þurfum við að ná til okkar einnig hér. Hvað um unga fólkið? Við teljum að ungt fólk, segjum á aldrinum 16-30 ára, sé alltof mikið utanveltu. Við þurfum að virkja þenn- an hóp, fá hann til liðs við okkur og í forsvar einnig. Undirbúningur er haf- inn að stofnun deildar innan samtak- anna sem ætluð er ungu fólki -16 -30 ára. í þessu sambandi má geta þess að við höfum ákveðið að þiggja boð sænsku samtakanna að senda tvo unga Sigurður V. Viggósson 8

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.