Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Qupperneq 12
Samstöðuhátíð á Suðurlandi
Sá ágæti siður Öryrkjabanda-
lagsins að halda á aðventu
svonefnda samstöðuhátíð var
í heiðri haldinn á aðventunni 1996 og
að þessu sinni varð Selfoss fyrir val-
inu. Samstöðuhátíð er um leið ákveð-
inn viðurkenningarvottur fyrir vel
unnin störf að málefnum fatlaðs fólks
og mála sannast að sú hefur raunin
verið um árabil á Suðurlandi með Sel-
foss sem miðstöð starfsins. Að þessu
sinni var sá háttur á hafður að tillögu
heimamanna að sameina samstöðu-
hátíð því þegar kveikt væri á aðaltrénu
í Selfossbæ og því gaf Öryrkjabanda-
lagið hið myndarlegasta jólatré austur
þangað og bandalagið og Selfossbær
stóðu svo sameiginlega að hátíðar-
fundi við Hótel Selfoss þar sem trénu
hafði verið valinn staður. Hátíðin var
hinn 14. des. sl. Veðrið lék hins vegar
ekki við okkur þennan dag og fleira
hafði til hrellingar verið því Asgerður
Ingimarsdóttir átti að ávarpa hátíðina
sem sannur Sunnlendingur en var
allsófær til ferðalaga af flensu völd-
um. Eggert Jóhannesson frarn-
kvæmdastjóri sem annaðist allan
undirbúning eystra fyrir okkar hönd
lét hins vegar ekki veður né vinda
hindra Selfossferð en sendi sérútbúna
bifreið Björgunarsveitar Selfoss eftir
okkur og ekki nóg með það heldur
skilaði hún okkur aftur í bæinn. Við
vorum í góðum höndum þeirra
Hreiðars Hallgrímssonar og Trausta
Traustasonar og send-
um þeim hlýjar þakk-
arkveðjur okkar fyrir
alúðarfulla og trausta
vörzlu báðar leiðir.
Framkvæmdastjómar-
fólkið Ólöf, Haukur,
Hafliði, Ólafur og
Þórey fóru austur
ásamt ritstjóra sem
reit þessa minnis-
punkta.
Mikill mannfjöldi
var á hátíð
þessari þrátt fyrir
hryssinginn og börn í
miklum meirihluta.
Barnakór söng í
upphafi nokkur
jólalög við undirleik tveggja
harmonikuleikara og var unun á að
hlýða. Björn Gíslason formaður
íþrótta- og tómstundaráðs Selfoss
setti hátíðina, lýsti dagskrá, greindi
einnig frá ýmsum atburðum dagsins
á Selfossi sem gnótt virtist af. Jóla-
sveinarnir (aðrir en við) mættu á
svæðið og sungu jólalög með góðum
undirtektum gesta. Þá flutti Helgi
Seljan ávarp Öryrkjabandalagsins r
forföllum Ásgerðar og er það birt hér
s.s. venja er til. Hann bað í lokin
gamlan nemanda sinn austan frá
Reyðarfirði, Guðna Ragnar Val-
dórsson, að kveikja á jólatrénu og var
það gert við góðan fögnuð. Sigríður
Jensdóttir forseti bæjarstjórnar Sel-
foss flutti ávarp og þakkaði Öryrkja-
bandalagi Islands fyrir þetta fallega
tré og þann hlýhug til Sunnlendinga
sem að baki byggi. Hún kvað mikla
þörf á vakandi starfi að velferðar-
málum fatlaðra og lagði áherzlu á að
hlutur Selfyssinga yrði þar sem allra
beztur. Hún minnti á nálægð jólanna
og bað þess að allir mættu sem bezt
fagnaðar þeirra njóta. Jólasveinarnir
tóku nú við á ný og gengið var kring-
um jólatréð og sungið nokkra stund.
Eftir athöfnina bauð bæjarstjórn
Selfossbæjar til kaffidrykkju að
Hótel Selfoss, þar sem einnig var
mætt starfsfólk Svæðisskrifstofu og
heimila að ógleymdum kveikjaranum
knáa Guðna Ragnari. Þar svignuðu
borð beinlínis undan kræsingum og
gerðu menn þeim góð skil eftir kulda-
hrollinn sem að hafði sótt úti. Sigríður
bauð gesti alla velkomna. Eggert
Jóhannesson framkvæmdastjóri
Svæðisskrifstofu Suðurlands flutti
stutta ræðu. Færði Öryrkjabanda-
laginu einlægar þakkir svo og Sel-
fossbæ fyrir mætar móttökur. Hann
kvað bæjarfélagið frá upphafi hafa
sýnt góðan skilning á málefnum
fatlaðra m.a. með breytingum á skipu-
lagi eftir þörfum. Hann vakti máls á
flutningi málaflokksins frá ríki til
sveitarfélaga og kvað þar margs að
gæta, enda sveitarfélögin afar misvel
í stakk búin til að axla þessa miklu
ábyrgð. Sveitarfélögin yrðu að sam-
einast um málefni þessi. þar sem smá
sveitarfélög myndu illa eða ekki ráða
við verkefnið. Hins vegar sagðist
hann fagna því að málefnin færðust
frá ráðuneyti heim í héruð, það væri
góð þróun. Hann sagðist vona að full-
trúar frá svæðisskrifstofum um mál-
efni fatlaðra fengju að vera með í
vinnu að flutningnum, svo ríkreynsla
sem þar væri. Eggert gerði málefni
geðsjúki'a og geðsjúkra bama sérstak-
lega að umræðuefni, tryggt yrði að
vera að þessu fólki væri ekki ýtt milli
kerfa, hvenær sjúkt, hvenær fatlað?
Lagði rnikla áherzlu á að greining og
meðferð geðsjúkra barna kæmist í
betra horf. Itrekaði þakkir þeirra er að
þessu störfuðu fyrir
viðurkenninguna.
s
Olöf Ríkarðs-
dóttir form.
Öryrkjabandalagsins
þakkaði hinar hlýju
móttökur. Hér væri
virkilega vel unnið
og það bæri að
þakka. Hún sagði
vissulega margt að
varast við flutning
málaflokksins, þar
þyrfti að hafa fulla
gát. Með því yrði
fylgzt vel af hálfu
Öryrkjabandalagsins.
Hún minnti á fyrir-
hugað átak Hússjóðs
12