Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Page 14

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Page 14
Suðurnes sótt heim að væri efni í þetta blað utan enda að greina frá hinu fjöl- þætta starfi sem svo víða á vettvangi er unnið, að ekki sé nú á fómfýsi sjálfboðastarfsins minnzt sem svo mörgum Grettistökum hefur lyft. Menn segja gjarnan að tími sjálfboða- starfsemi sé liðinn, nú vilji menn fá greitt fyrir hvaðeina sem gert er. Verkalaun af því tagi að sjá góðan afrakstur erfiðis síns séu að mestu óþekkt orðin, allt krefjist hins bein- harða endurgjalds. Eflaust er mikið til í þessu, en þó má enn auðveldlega finna dærni um þessa fórn- fýsi, þetta framtak án alls endurgjalds nema ánægjunnar af að sjá eitthvað verða að virkileika. Eitt þess- ara dæma má finna ljóslega í Reykja- nesbæ, hjá Sjálfs- björg á Suðurnesjum, þar sem viljinn til verka og vinnufúsar hendur hafa á eitt lagzt. Við höfðum af því áreiðanlegar spurnir að Sjálfsbjörg á Suðumesjum hefði komið sér upp hinni ágætustu félagsaðstöðu í rúm- góðu húsnæði þar syðra og fýsti að sjá hversu þeir byggju þar suðurfrá. Ólöf Ríkarðsdóttir formaður okkar hafði raunar við vígslu þessa húss verið og lofaði meistara verksins sem verðugt var og vildi að fleiri fengju að njóta. Einn góðan janúardag var því haldið á Suðurnes - í Reykja- nesbæ - þar sem þær Asgerður og Ólöf höfðu ritstjóra sem ekil og fréttamann í senn. Hús það sem Sjálfsbjörg á þama er að Fitjabraut 6 a, neðan aðal- vegar inn í bæinn, nær hafnarsvæði, enda átti Landshöfnin í Njarðvík þetta hús á árum áður, en byggt var það um 1950. Þangað komin heilu og höldnu vorum við velkomin boðin af þeim forystumönnum Sjálfsbjargar, Friðrik Arsæli Magnússyni og Jóni Stígssyni, en þeir eru jafnframt mennirnir á bak við þau salarkynni og umhverfi allt sem við augum blasir þegar að er komið. Og við fengum allan fróðleik hjá þessum heiðursmönnum þó þeir gerðu allt til þess að draga úr því verki sínu sem hvarvetna mátti líta merki um. Þeir félagar sögðu að allt hefði þetta nú byrjað með því að ágætur Sjálfsbjargarfélagi, Gísli Gíslason, hefði arfleitt þá að 3/5 húseignar að Hafnargötu 4 í Keflavík. Félagið átti smásjóð í handraða. Þeim fannst um svipað leyti félagsstarf allt vera að lognast út af hjá Sjálfsbjörg og hugðu á bót og betrun og m.a. gæti félags- aðstaða orðið til þess að hleypa nýju lífi í félagið. Farið var að svipast um eftir hentugu húsnæði og þá kom Landshafnarhúsið svo að segja upp í hendurnar á þeim. Þetta þótti þeim kjörið til átaka, keyptu húsið sem þá var í eigu Sparisjóðsins í Keflavík á 4 millj. kr„ en svo var látið heita sem Sparisjóðurinn gæfi þeim eina millj- ón, húsið hefði átt að fara á 5 millj. kr. En ekki var sopið kálið þó komið væri í ausuna. Hér þurfti sem sé flestu að umturna svo unnt yrði að nýta til væntanlegra nota og þar komu þeir félagar svo sannarlega við sögu og útilokað að telja og tíunda allan þann aragrúa vinnustunda sem þeir lögðu hér að verki. Húsið var með 12 herbergjum enda um fjölda ára gististaður með matsölu. Langur gangur var eftir endilöngu og þeirra fyrsta verk var að rífa 4 herbergi og ganginn meðfram þeim og jafna þar allt við jörðu, ef svo má segja, til að fá verulega góðan sal um 80 fermetra, þar sem fyrir geta komizt við borð á annað hundrað manns. Þeirfengu svo verktaka til að leggja að öllu nýtt raf- magn í húsið, sömuleiðis setti verktaki veggi, gólf og loft inn í salinn en erfiðleikar voru m.a. í þvf að gólf voru mishá. En svo tóku þeir félagar og þeirra konur og fleiri til óspilltra málanna við að mála og innrétta, en þar kom nú ónefndur trésmíða- meistari afar vel við sögu með sínum mönnum. Ekki bara salurinn, heldur voru herbergi öll máluð og innréttuð og ekki má gleyma hinni ágætu snyrtiaðstöðu í and- dyri og þar afar vel um allt búið, enda aðgengisvænt fólk sem að verkum kom. Eldhúsaðstaða var eðilega fyrir og hún er hin ágæt- asta í alla staði. Allt ber góðu handbragði og mikilli smekkvísi vitni og enn er þó ýmislegt ógert en efni vart til meiri afreka alveg í bráð. M.a. þarf að skipta um alla glugga og útidyra- hurð og ganga enn frekar frá úti m.a. mála allt húsið, en málningin er þó til. En aðkoman úti er þó fyllilega unandi enda sögðu þeir félagar að í það hefðu farið 26 bílhlöss og næst útidyrum er steypt plan og í því hiti. Sjálfsbjörg á Suðurnesjum hefur eðli- lega sótt í Framkvæmdasjóð fatlaðra um nokkurn styrk til að standa undir þessum kostnaði öllum, en nokkur skuld hvílir hér á. Er vonandi að af verði því rétturinn er ótvíræður lögum samkvæmt. Leigutekjur af húsnæði að Hafnargötunni standa hins vegar nokkurn veginn undir rekstrarkostn- aði hússins að Fitjabraut. 14

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.