Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Blaðsíða 24
Kynning
framkvæmdastjóra
Jón Snævarr Guðnason hjá LAUF
leyfir. Stafurinn er nýtt hjálpartæki,”
og Áslaug bendir á stafinn sem
Magnús hefur við hlið sér.
“Hann fékk líka tölvustýrðan rúm-
botn í fyrra, til að geta hreyft sig í
rúminu.”
- Þetta hlýtur að vera geysilegt álag?
“Ég verð að passa bakið og herð-
arnar.”
kyndilega hefur hægt um mann-
inn í stólnum, hann situr grafkyrr.
“Svona gengur þetta, upp og niður.
Hann fer oft beint úr mikilli ofvirkni
niður í algjöra óvirkni. Oft er hann
betri fyrri hluta dagsins, þá sætum við
lagi og reynum að komast eitthvað
út.”
Áslaug reisir Magnús upp úr stóln-
um, ýtir á fætur hans, en líkaminn
bregst ekki við, maðurinn stendur
stjarfur. Þá er sprautan aftur eina
úrræðið.
“Það er mikið álag á konuna mína,”
segir hinn sjúki maður.
“Það hjálpar mér mikið, að þú
æðrast aldrei,” segir hún.
- Ertu aldrei bitur, Magnús?
Dökku augun eru alvarleg og svarið
kemur um síðir:
“Nei, ég held ekki.”
“Biblían og bænabókin liggja alltaf
á skrifborðinu hans,” Áslaug bendir
á hinar helgu bækur.
- Hver var aðalboðskapurinn í
prédikunum þínum, Magnús?
Aftur er löng þögn. Síðan:
“Ég hélt mig við guðsorð.”
Heimsóknin, á fimmtu hæð við
Grandaveg, er og verður
ógleymanleg. Presturinn sem horfir
yfir sundin, í píslarfjötrum Parkinson.
Kjarkmikla konan við hlið hans.
Áslaug og Magnús gefast ekki upp.
Æðrulaus barátta þeirra getur gefið
mörgum Parkinsonsjúklingnum og
aðstandendum aukið þrek.
Skrifstofa Parkinsonsamtak-
anna er á Laugavegi 26, gengið
inn frá Grettisgötu. Hún er opin á
miðvikudögum kl. 17-19. Sími: 552-
4440.
Félagsmenn eru hvattir til að hafa
samband eða líta inn.
Utan skrifstofutíma er alltaf hægt að
hafa samband við samtökin hjá Jóni
Jóhannssyni, gjaldkera í síma: 566-
6830.
Oddný Sv. Björgvins.
Formáli: Haldið skal fram þeirri
hollu venju að kynna hér í blaðinu
framkvæmdastjóra félaga okkar. Nú
er röðin komin að Jóni S. Guðnasyni
hjá LAUF, sem inntur var eftir frekari
fróðleik urn eigin persónu sem og um
þau helztu verkefni sem félagið vinn-
ur að. En gefum Jóni nú orðið:
s
Eg er fæddur þann 31. janúar 1947
í Reykjavík og sleit mínum
barnsskóm í Hlíðunum og á sumrin á
Breiðabólsstað í Reykholtsdal. Að
lokinni skóla-
göngu í Gagn-
fræðaskóla Aust-
urbæjar stundaði
ég verslunarnám
við Verslunar-
skóla íslands í
einn vetur og síð-
an lá leiðin til
London, þar sem
ég stundaði nám
við London
School of Foreign Trade. Að lokinni
sveitavist var ég eitt sumar í brúar-
vinnu í Borgarfirði og Dalasýslu, en
vann síðan tvö sumur hjá Heklu hf.
Eftir heimkomu mína frá London árið
1967 hóf ég störf hjá Ferðaskrifstof-
unni Sunnu og var þar um þrettán ára
skeið. Ég vann hjá Ferðaskrifstofunni
Atlantik og Ferðaskrifstofunni Sögu
uns ég gerðist framkvæmdastjóri
DHL Hraðflutninga á íslandi. Fyrir
nokkrum árum fór ég í hjartaaðgerð
og ákvað að breyta um lífsstíl og taka
lífinu með meiri ró og vann við ýmis
smærri verkefni. Þegar leitað var til
mín síðastliðið vor um að ég tæki að
mér starf framkvæmdastjóra LAUFS
til áramóta, í fjarveru Bergrúnar H.
Gunnarsdóttur vegna fæðingarorlofs,
ákvað ég að slá til og gegni nú þessu
starfi en er jafnframt með rekstur eigin
fyrirtækis ásamt breskum meðeigend-
um á sviði upplýsingamála fyrir
Evrópusambandið.
egar ég kom til LAUFS vissi ég
ekki mikið um flogaveiki, en mér
hefur opnast nýr heimur en ekki
eingöngu um flogaveiki heldur um
ýmsa aðra sjúkdóma sem því miður
eru til staðar í okkar þjóðfélagi. Síð-
astliðið ár var viðburðarríkt fyrir okk-
ur á skrifstofu LAUFS, en þar bar
hæst fund formanna og framkvæmda-
stjóra norrænu flogaveikisamtakanna,
sem haldinn var í júní og ekki síður
fundur evrópsku flogaveikisamtak-
anna, sem haldinn var í Helsinki í júlí.
Sá fundur var sérstaklega ætlaður
þeim, sem eru með flogaveiki og
reyndist hann gagnlegur þeim sem
hann sóttu. Afar brýnt er að koma
markvissri fræðslu um flogaveiki til
allra þeirra stétta og starfshópa í þjóð-
félaginu, sem hugsanlega gætu þurft
að veita flogaveikum aðhlynningu.
Má þar nefna kennara og starfsfólk
skóla, heilbrigðisstéttir, löggæslu-
fólk, starfsfólk skemmti- og veitinga-
staða og svo mætti lengi telja. Áætlað
er að fara í alla grunn- og sérskóla í
Reykjavík með sérstaka fræðslu fyrir
kennara og annað starfsfólk og síðan
verður landið allt tekið í áföngum eftir
efnum. Húsnæðismál LAUFS hafa
verið á döfinni, en félagið leigir hús-
næði að Laugavegi 26, sem er í eigu
Félags heyrnarlausra. Við njótum
góðrar aðstöðu hjá Félagi heyrnar-
lausra, en þeir hafa yfir að ráða góðum
samkomusal í húsakynnum sínum,
sem hentar rnjög vel fyrir fræðslu-
fundi okkar og aðrar smærri samkom-
ur. Félagið hefur fengið styrk frá
Framkvæmdasjóði fatlaðra til hús-
næðiskaupa og er unnið að því. Fram-
tíðarverkefni félagsins eru mörg og
mikilvæg, en þessa stundina leggjum
við megináherslu á annars vegar
fræðslu- og upplýsingastarfsemi og
hins vegar félagslega þáttinn, svo sem
fjölskyldu og foreldraráðgjöf og
félagsráðgjöf, en þessi þjónusta er
veitt af fagfólki á skrifstofu okkar. Við
hjá LAUFI lítum framtíðina björtum
augum, það er mikill þróttur í félaginu
og mikil samstaða um að ná settum
markmiðum.
Jón Snævarr Guðnason.
Jón Snævarr
Guðnason.
24