Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Page 26
INNLIT
HJÁ ÖRVA
Einn fagran febrúarmorgun
lagði ritstjóri leið sína í
Kópavoginn, yzt út á Kárs-
nesið, þar sem er aðsetur starfs-
þjálfunarstaðarins Örva, nánar tiltekið
að Kársnesbraut
110. Þar er með
ágætum á akri
iðjað, en forstöðu
staðarins hefur
Kristján Valdi-
marsson og hefur
við stjórnvöl þar
verið allt frá því
í ágúst 1991.
Ritstjóri gekk
þarna um garða
og gazt afar vel sú merka starfsemi er
þarna fer fram og Kristján með sínu
liði fræddi ritstjóra um fjölmargt sem
Örva varðar fyrr og nú.
1982 sótti Kópavogsbær um leyfi
til að reka vinnustofu fyrir öryrkja og
aldraða í húsnæði Sunnuhlíðar og það
leyfi fékkst 1983. Þar fór svo starf
fram til ársins 1987 að flutt var að
Kársnesbraut 110, en þá gerður leigu-
samningur til tíu ára. Húsnæðið þá
var 460 fm. Framkvæmdasjóður
fatlaðra lagði svo fram fé til kaupa og
fóru kaupin fram 1996 og þá fékkst
170 fm. viðbót við áður leigt húsnæði.
Þar í viðbótarrýminu eru nú lager-
aðstaða og vinnustofur tvær sem og
fékkst þarna nokkur stækkun verk-
stæðis. Þess má geta að áður var
lagerpláss ekkert og var það mjög
bagalegt svo sem nærri má geta.
Síðan hefur verið unnið að innrétt-
ingum og lagfæringum og þeim nú að
ljúka og er allt rými hið vistlegasta.
Þarna er skrifstofa forstöðumanns,
lítið fundaherbergi, skrifstofur fyrir
iðju- og þroskaþjálfa sem og fulltrúa,
kaffistofa mjög hugguleg, afar rúm-
góður vinnusalur, lítið verkstæði til
viðgerða, lagerinn og sitt hvorum
megin við hann vinnustofa með pökk-
unarborði og vinnuherbergi fyrir
sérverkefni og þar má hafa kennslu
o.fl. Sömuleiðis er í húsinu lítið her-
bergi með sýnishornum af framleiðsl-
unni, afdrep verkstjóra og sjúkiaher-
bergi um leið. Svo eru ágætar snyrt-
ingar o.fl.
Stöðugildi hjá Örva eru 5 1/2 og
skiptast þannig, að forstöðu-
maður er í fullu starfi, þroskaþjálfi og
iðjuþjálfi skipta með sér einu og hálfu
stöðugildi, fulltrúi á skrifstofu í hálfu
stöðugildi og 5 starfsleiðbeinendur og
verkstjórar í hálfu stöðugildi hver.
Kristján segir að styrkur Örva felist
ekki hvað sízt í góðu starfsfólki og
stöðugleika í starfsmannahaldi, marg-
ir unnið þarna vel og lengi.
í Örva stendur fötluðum til boða
starfsprófun og tímabundin starfs-
þjálfun, Örvi þannig mikilvægur
hlekkur í þjónustukeðju við fatlaða.
Örvi leitast við að líkja eftir aðstæðum
á vinnustöðum á almennum markaði.
Meginmarkmið eru þessi:
* Veita fötluðum þjálfun til starfa á
almennum vinnumarkaði.
* Þjálfa rétt vinnubrögð, góðar starfs-
venjur, aukið starfsþrek og félags-
leg samskipti.
* Veita starfsþjálfun sem eykur mögu-
leika til blöndunar í samfélagi ófatl-
aðra á gagnkvæmum forsendum.
* Annast starfsprófun sem hefur það
að markmiði að meta möguleika
hins fatlaða til vinnu og annarrar
iðju.
* Bjóða upp á næg og fjölbreytt verk-
efni sem taka fyrst og fremst mið
af þjálfunargildi.
* Líkja sem bezt eftir algengum
(væntanlegum) vinnuaðstæðum og
ki'öfum á almennum vinnumarkaði.
* Veita viðskiptavinum góða og
sveigjanlega þjónustu. Þjónustu
sem er jafngóð eða betri en vænst
er og fellur að mismunandi þörfum
og óskum þeirra.
* Starfsemi í Örva sé í sem mestum
tengslum við atvinnulífið og að
allar aðstæður og starfskjör lfkist
því sem almennt gerist.
Allir sem í Örva koma, fara fyrst
í 3ja mánaða starfsprófun til að
unnt sé að meta möguleika viðkom-
andi til vinnu. Að loknu þriggja
mánaða mjög skipulegu starfsprófun-
artímabili er skrifleg niðurstaða lögð
fyrir og ákvörðun tekin um fram-
haldið. Ef niðurstöður eru þær að
mælt sé með starfsþjálfun getur starfs-
maður farið í starfsþjálfun Örva,
annars er atvinnuleit hafin, en unnið í
Örva á meðan á leit stendur.
Fyrstu þrjá mánuði í nýju starfi fær
viðkomandi stuðning og eftirfylgd frá
svæðisskrifstofu og Örva, en slíkt er
mjög mikilvægt. Starfsþjálfun Örva
leggur hins vegar áherzlu á rétt vinnu-
brögð, góðar starfsvenjur, aukið
starfsþrek og félagsleg samskipti.
Lengd sniðin að þörfum hvers og eins.
Miðað er þó við 18 mánuði, en getur
varað í 36 í undantekningartilvikum.
Reglubundin viðtöl eru í tengslum við
starfsmat.
Einmitt þegar ritstjóri var þama á
ferð voru 34 á skrá í Örva, en almennt
miðað við 30 u.þ.b. helmingur fyrir
hádegi, hinir eftir hádegi. Kristján
benti einmitt á það alveg sérstaklega
að í gangi væru nú tvö samstarfs-
verkefni. Annað er í samvinnu við
Vesturhlíðarskóla - viðkomandi þaðan
var fyrst einn dag í viku, nú tvo daga
og stefnt að því að vera alla daga í
sumar; þ.e. hálfan daginn. Hitt sam-
starfsverkefnið er við Tjaldanes.
Þaðan koma 4 drengir sem eru þrjá
daga í viku og með þeim fylgir
starfsmaður frá Tjaldanesi, en Tjalda-
nes heyrir nú undir Svæðisskrifstofu
Reykjaness. Arangur fyrir drengina
verið umtalsverður og verður hans
vart í mörgu, ekki sízt heima í Tjalda-
nesi.
Við fórum svo yfir starfssvið
fólks: Starfsráðgjafar Örva eru
tveir, þær Geirlaug G. Björnsdóttir
þroskaþjálfi og Guðrún Á. Einars-
dóttir iðjuþjálfi. Þær annast í samein-
ingu stuðning við einstaklinga í
starfsprófun og starfsþjálfun, leggja
upp markmið, aðstoða við verkstjórn,
leggja á faglegt mat og gera tillögur
um áframhaldandi þjálfun, þetta er
gert í samvinnu við starfsleiðbein-
endur á staðnum. Guðrún iðjuþjálfi
26