Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Blaðsíða 32
MOLAR TIL MELTINGAR
Hinn 20. desember sl.
voru samþykkt á
Alþingi lög til breytinga á
lögum um málefni fatlaðra.
Þetta er afrakstur nefndar-
starfs á liðnu ári, en sú var
niðurstaða þess að ekki
skyldi nein breyting gerð á
efnisatriðum laganna sem
gilt hafa, heldur í raun taka
aðeins á flutningi mála-
flokksins yfir til sveitar-
félagannafráríkinu. Hauk-
ur Þórðarson varaformaður
Öryrkjabandalagsins var
fulltrúi þess í endurskoð-
unarnefndinni og skrifaði
upp á þessa niðurstöðu.
Eflaust geta verið eitthvað
skiptar skoðanir um það
hvort svo skyldi með fara,
en mála sannast að annað
hvort var að taka á öllum
lagaþáttum og gefa sér þá
til þess lengri tíma eða eins
og gert var: lögfesta yfir-
færsluna og lítið annað og
sjá svo hvernig úr ynnist og
hver nauðsyn verður yfir-
leitt á sérlögum eftir að við
höfum vonandi fengið
fullgilda félagsmálalöggjöf
og málaflokkurinn kominn
að fullu inn í félagsmála-
kerfi sveitarfélaganna.
Fyrst menn ákváðu að taka
þetta stóra skref þá hygg ég
að þetta hafi verið eina
rökrétta niðurstaðan.
Breytingar nú eru sem sagt
litlar og miðast í raun nær
alveg við væntanlega yfir-
töku og hversu brúa skal
bilið fram til þess tíma, en
til framkvæmda á yfir-
færslan að koma 1. janúar
1999 eða eftir tæp tvö ár.
✓
Il.gr. er gert ráð fyrir
þeirri breytingu í kjölfar
þess að fræðslustjóra-
embættin eru ekki lengur
til, að í stað fræðslustjóra í
svæðisráðum áður komi nú
ráðherraskipaður fulltrúi án
tilnefningar. Þó skal
svæðisráð kveðja á sinn
fund fólk með sérþekkingu
á skólamálum þegar ástæða
er til.
í 2.gr. er fjallað um skip-
unartíma framkvæmda-
stjóra svæðisskrifstofa sem
er þá að sjálfsögðu til 1.
janúar 1999.
3. greinin varðar Grein-
ingar- og ráðgjafarstöð
ríkisins um skipun for-
stöðumanns hennar til
fimm ára að fengnum til-
lögum stjórnar stofnunar-
innar. Þetta er til samræmis
aðeins við aðra skipan
starfsmannamála hjá hinu
opinbera.
4. gr. laganna fjallar um
framlög Framkvæmda-
sjóðs fatlaðra til fram-
kvæmdaaðila íbúða fyrir
fatlaða. Ístað5%framlags
til sveitarfélaga kemur nú
10% framlag s.s. til annarra
framkvæmdaaðila.
En auðvitað er það
ákvæðið til bráða-
birgða sem öllu skiptir, en
þar er félagsmálaráðherra
gert skylt að gera ráðstaf-
anir til að undirbúa yfir-
færslu málefna fatlaðra til
sveitarfélaga og skipa
verkefnisstjórn eða stjórnir
í því skyni. Við undirbún-
inginn skal huga að rétt-
indagæzlu fatlaðra. Og svo
kemur yfirfærslan til fram-
kvæmda 1. janúar 1999,
enda þá tilkomin ný lög um
félagsþjónustu, sérstök lög
um Greiningar- og ráðgjaf-
arstöð ríkisins og að sjálf-
sögu samkomulag um
breytta tekjuskiptingu ríkis
og sveitarfélaga.
í greinargerð lagafrum-
varpsins var út frá því
gengið að samtök fatlaðra
ættu fulla aðild að verk-
efnisstjórn eða stjórnum og
verður að treysta því að svo
verði. Það er ekki sízt á
sviði Öryrkjabandalags
íslands og fjölmargra
félaga þess með þjónustu
sína og rekstur, sem ýmis
álitamál munu upp koma
og á því brýn þörf að þar sé
vel á málum haldið svo
félögin fái haldið þeim hlut
sinnar starfsemi sem þau
helzt kjósa eða þess vegna
allri starfseminni með
eðlilegum stuðningi ríkis-
valdsins. Þar verður eflaust
nrestur vandinn um að véla,
því í mínum huga er svo
ótalmargt í þessari þörfu
starfsemi sem hvergi er
betur komið en hjá þessum
virku og vakandi félagsein-
ingum okkar.
✓
Iöllu þessu starfi þarf og
grannt að því að gæta að
sem fyllst jafnræði gildi
rnilli fötlunarhópa og þeirra
ólíku þarfa sem þar eru
óneitanlega. Yfirfærsla
málaflokksins verður að
taka til ótvíræðra skyldna
sveitarfélaganna að sinna
öllum þeim sem bezt er við
einhverjafötlunbúa. Sann-
leikurinn er nefnilega sá að
í samningum unr yfirtöku
sveitarfélaga á mála-
flokknum af félagsmála-
ráðuneyti, sem fram hafa
gengið að undanfömu hefur
sú yfirtaka nær einvörð-
ungu snert einn fötlunarhóp
aðeins.
Til allra átta verður að
líta við heildaryfirfærsluna
og það skal vissulega von-
að að verði gert.
***
Félagsmálaráðuneytið
hefur að undanförnu
verið að gera samninga við
fjögur sveitarfélög um
yfirtöku á þjónustu við fatl-
aða - yfirtöku málaflokks-
ins s.s. hann er á gildandi
fjárlögum í raun með
nokkurri viðbót þó á samn-
ingstímanum. Ýmist hafa
þessir samningar verið
gerðir á grundvelli laga um
reynslusveitarfélög eða þá
á grundvelli laganna um
málefni fatlaðra. Sveitar-
félögin eru Akureyri,
Húsavík, Vestmannaeyjar
og Hornafjörður. Á Norð-
urlandi eystra þýðir þetta að
Svæðisskrifstofa um mál-
efni fatlaðra hefur verið
lögð niður, enda hefur
Akureyri tekið að sér
Eyjafjörðinn allan og
Húsavík Þingeyjarsýsl-
urnar, svo þessi tvö sveit-
arfélög eru í raun ábyrg
fyrir öllum málefnum
fatlaðra í kjördæminu.
Hornafjarðarbær tekur
að sér Austur-Skafta-
fellssýslu og Djúpavogs-
hrepp að auki og svo yfir-
tekur Vestmannaeyjabær
32