Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Side 33

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Side 33
umtalsverðan rekstur ríkis- ins þar í Eyjum. Það er í raun ágæt reynsla sem þarna myndast, en enn ber þess að gæta að yfirtakan nær að yfir- gnæfandi hluta til þroska- heftra og þeirra stofnana sem fyrir eru þeim til halds og trausts og gefur því ekki að fullu mynd af yfirtöku alls málaflokksins sem til allra þarfa taki. Þar má auðvitað segja að fyrst reyni verulega á þegar málaflokkurinn flyzt yfir á Stór-Reykjavíkursvæðinu en það á sem sagt lögum samkvæmt að gerast 1. janúar 1999. ^ ^ ^ Ohugnanlegar stað- reyndir blasa við okkur í grein í danska blað- inu Femína þar sem í glöggu viðtali við brezka konu, er fjallað um stór- aukna misskiptingu lífs- gæða í Bretlandi síðasta hálfan annan áratug í kjöl- far hinnar óheftu auð- hyggju er stjórnvöld hafa gert að æðstu stefnu sinni. Þar er hinn ríkari sannan- lega skipulega gerður ríkari og ekki síður hinn fátæki fátækari. Heimilislausir í Bretlandi munu vera um 600 þús. nú og fólk með tekjur við eða undir hung- urmörkum segir hún vera um 4 milljónir. Þessi brezka kona hefur ásamt félögum sínum fengið hina heimilislausu til að selja blað sem þau gefa út og það gengið mjög vel, jafnvel komið sumum þein'a alveg á réttan kjöl - styrkingu til sjálfshjálpar kallar hún það. En hún bendir um leið á bjargar- leysi allra hinna sem fer vaxandi. Þegar maður les þannig um afleiðingar hinnar hörðu frjálshyggju þá spyr maður sig býsna óþægilegra spurninga í ljósi þess að hér á landi hafa ákveðin valdamikil öfl í þjóðfélaginu sótt hug- myndir sínar í frjáls- hyggjubankann og ýmsar aðgerðir borið þess ríkuleg merki. Er ekki ráð að líta til reynslunnar í Bretlandi og ógnvænlegra afleiðinga þess, ef blinda hálfgildings trúarskoðana tekur öll völd? Því bak við allt frels- ishjalið liggur aðeins eitt: frelsi fjármagnsins umfram frelsi fólksins. *** Hingað barst á okkar borð ítarleg skýrsla um verndaða vinnustaði og stöðu þeirra í hinurn ýmsu Evrópulöndum, en skýrsla þessi mun hafa verið unnin í tengslum við Helios-verk- efnið blessað. Þama kemur margt áhugavert í Ijós og greinilega misjafnlega að málum staðið í hinum ýmsu ríkjum, bæði hvað varðar form og framlög. Lengi hefur verið vitað urn um- talsverðan kostnað hins opinbera af vernduðum vinnustöðum, en þeir fá rekstrarstyrki á fjárlögum s.s. menn vita. Oft hefur þaðjafnhliða heyrzt hversu drjúg þessi framlög séu nú og útgjöld ríkisins mikil þ.a.l. Samkvæmt þessari ágætu skýrslu kemur það hins vegar í ljós að tekjur ríkisins af framleiðslu þess- arar sömu vernduðu vinnu- staða em eilítið hærri en hin rómuðu framlög ríkisins til rekstrarins. Þaðerþvímeð fullurn rétti hægt að segja að þessi framlög borgi sig fyrir hið opinbera. En lýsandi er það að það skyldi þurfa erlenda skýrslu, auðvitað byggða á íslenzkum upplýsingum, til að draga þessa staðreynd í dagsljós fram. Samanburður í raun- framlögum hér við rnargar aðrar þjóðir sem vel gera í þessum efnum er vægast sagt heldur óhagstæður okkur og er það önnur saga, en ber þó að taka tillit til í framtíðarstefnumótun þessara ágætu vinnustaða, sem eru tvímælalaus nauð- syn, jafnhliða sókn út á hinn almenna vinnumark- að. Hlerað í hornum Hjón nokkur ætluðu á grímudansleik, en rétt áður en þau ætluðu að fara fékk konan svo slæman höfuðverk að hún varð eftir heima og sá á eftir bónda sínum í fullum skrúða fara á dans- leikinn. Þegar frá leið batnaði kon- unni svo mjög að hún dreif sig á dans- leikinn. Sá hún bónda sinn fljótlega og þótti hann skemmta sér konung- lega og einkum var hann elskulegur við dansdömur sínar. Konan bauð honum svo upp og þeim samdi svo vel að þau brugðu sér afsíðis í léttan ástarleik. Konan flýtti sér svo heirn að því búnu og beið bónda síns. Þegar hann kom svo heim, seint og um síðir spurði hún hvernig dansleikurinn hefði verið. “Eg var þar nú ekki lengi, því mér hundleiddist og fór heim til Jóns vinar okkar, en þeir sátu þá þar tjórir að spilurn. Þegar Gunnar Jóns sá mig í búningnum bað hann mig að lána sér hann. Ég tók svo til við að spila, en hann fór á dansleikinn”. ** Maður einn kom inn í Norðurleiða- rútuna hér í Reykjavík og bað bílstjór- ann að vekja sig þegar þeir kæmu í Varmahlíð. Svo var ekið norður og á Akureyri vaknaði maðurinn, óð að bílstjóranum með óbótaskömmum og svívirðingum fyrir að hafa ekki vakið sig. Nærstaddur maður rann á hljóðið og spurði bílstjórann hvað í ósköpunum gengi hér á, hvað væri eiginlega að manninum. Þá svaraði bílstjórinn: "Blessaður vertu, þetta er nú ekkert. Þú hefðir átt að heyra í þeim sem ég lét fara út í Varmahlíð”. ** Fljótfæri dýralæknirinn var að lesa inn skilaboð á símsvarann hjá sér og ætlaði auðvitað að segja: “Þetta er sjálfvirkur símsvari, það er dýra- læknirinn sem talar”. En útkoman varð: “Þetta er sjálfvirki dýralækn- irinn sem talar”. Þetta fréttist og menn hringdu ákaft í síma dýralæknisins þennan dag til að hlýða á þessi sér- kennilegu skilaboð. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 33

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.