Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Side 44

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Side 44
Magnús Einarsson: GUÐMUNDUR GAMLI s g kynntist nýlega gömlum manni. Lítill en knár þrátt fyrir háan aldur. Hann býr í blokkinni minni. “Góðan daginn, all- an daginn”. Hann heilsaði mér svona ásamt því að lyfta hægri hend- inni, í þeirri vinstri var stafur. Það leið ekki á löngu þar til við vorum orðnir mestu mátar enda sérvitringar. Hann bauð mér í bíltúr að Arnarstapa á Snæfellsnesi. Ég þáði boðið og ekki síst vegna þess að hann var staðráðinn í að veiða þar lúðu. “Ég var leigubíl- stjóri í 40 ár”. “ J æ j a ” . “Þessi jeppapúta er ágæt”. Hann átti gamla Lödu sport sem hann var nýbúinn að mála með pensli. “Hefurðu séð huldu- fólk?” “Huldufólk? Nei en ég hef séð einhverja liti á hreyfingu sem gætu hafa verið huldufólk”. “Sann- aðu til. Blessaðir á þeim hafa verið að hjálpa þér”. “Ja hérna, allt er nú til”, tautaði ég. “Ég var einu sinni kallaður til huldukonu sem var að fæða, þetta var í Dimmuborgum. Ég var kallaður til að gefa henni styrk og svo fæddist þessi líka myndarhnáta, hún hefur oft komið síðan að þakka mér fyrir”. “Það er margt skrýtið”, tautaði ég. “Já það er margt skrýtið í maga á Ingibjörgu”. s Eg fékk hláturskast og hann smit- aðist og við hlógum þar til við fórum að hósta. Hann hafði smitandi hlátur og líflegan þrátt fyrir aldurinn. Aksturinn gekk vel og greinilegt að hann var góður bílstjóri. “Einu sinni ætluðu tvær huldukon- ur að ná í mig og þá var stór maður sem varði mig og ég fór ekki fetið. Hann var svo stór að hann var á við tvær bílhæðir”. Hann var ákafur en brosti þó blítt að þessari minningu. Ég var orðinn mjög forvitinn um þennan mann og fannst eitthvað svo jákvætt við hann. “Það er nú fallegt hjá huldufólkinu, það sem við sjáum sem fjall eða klett getur verið konungleg höll. Þeir eru af holdi og blóði rétt einsog við”. Nú var ég mát. “Heyrðu nú mig, af holdi og blóði”. Hann hló. “Það held ég nú, þetta eru földu börnin hennar Evu sem voru skítug þegar Drottinn kom að vitja þeirra og Eva faldi þau og þá ákvað Drottinn að þau skyldu líka vera hulin mönnum”. Hann brosti og bætti svo við kíminn, “já það er margt skrýtið in harmonium”. Hann skellihló og ég líka. “Jú.jú, einnig in dominum”, bætti ég við. Sólin skein og hlý golan gældi við okkur þar sem við sátum í bflnum með opna glugga. Bíllinn fór þá leið hægt en örugglega sem bílstjórinn ætlaði. Fjöllin blöstu við, skýjahnoðr- ar svifu í loftinu og blár himinninn lofaði fögru í fjarlægðinni. Fuglar flugu allt í kring. “Einu sinni var ég að veiða fyrir austan þegar önd kom út úr grasinu og ungar á eftir, þegar óhræsið skúmur renndi sér niður og át ungana. Skömmin á honum. Ég var ekki seinn á mér að beita og kasta uppá land og dóninn kom og beit á. Kunningi minn sem var með mér gekk síðan frá honum”. Hann lifði sig inní frásögnina og það var gaman að heyra hann segja frá. “Vargurinn”, tautaði ég til að segja eitthvað yfir þessu afreki gamla mannsins. Loks vorum við komnir að Arn- arstapa og ævintýrið að ná hápunkti sínum. Við fórum úr bílnum. “Þeir segja að lúðan bíði við klettana til að éta egg sem detta”. Það var kominn keppnishugur í hann. Hann var með nælonþráð sem hann batt við bílinn og á hinum endanum var krókur með soðnu eggi. Hann kastaði þessu útí sjó og nú hófst biðin. Við settumst niður í laut og fengum okkur kaffi og með því. Við spjöll- uðum mikið og hlógum stöðugt, hann hafði svo smitandi hlátur. “Hvers vegna hlærðu svona mikið?” spurði ég. “Nú það verður enginn ágætur af aungu”. Við hlógum. að kom rykkur á þráðinn og hann rauk uppí bflinn og dró lúðuna á land. Hann hljóp til og drap fiskinn með steinhnullung. “Svona! komdu og sjáðu”. Ég gekk rólegum skrefum til hans. “Fyrst þetta er hægt þá er allt hægt in dominum”, tautaði ég. Við skellihlógum. Við keyrðum til baka í rólegheitum og ég keyrði stundum enda gamli maðurinn þreyttur. Hann tók lúðuna upp til sín og eldaði oní okkur og við kvöddumst hlæjandi, saddir en þreytt- ir. Ég vaknaði daginn eftir og eigin- lega mundi ég eftir deginum áður sem draumi en minningin var ljúf. Það var hringt bjöllunni. Ég opnaði dyrnar. “Góðan daginn, allan daginn”. Hann rétti mér höndina og hló smitandi hlátri. “Góðan daginn”, tautaði ég, brosti, og bauð honum inn. Ég hellti á kaffi, hann settist í sófann. Hann lagði stafinn til hliðar og tók ofan pottlokið. “Það er nú meiri blíðan. Það er kollheiðríkt”. “Já nú er blíð- an”, svaraði ég og settist í stólinn minn. “Já þetta er ekta gott veður”. “Það er lóðið Þórkatla”, sagði gamli og hló enn þessum smitandi hlátri. Hann tók þessar líka hlátursrokur og skellti hönd á læri og ók sér til enþetta varmjög smitandi. Ég náði í kaffið og hann horfði á fiskana mína. “Sérðu nokkuð prestinn í kringum mig?” “Prestinn?” “Æi, sleppum því, en þar af er löng saga og óskemmti- leg”. ið horfðumst í augu og enn og aftur fór hann að hlæja og ég smitaðist. Það var reyndar góð til- finning að gefa honum kaffi því hann hresstist alltaf. Magnús Einarsson. er greinir hér frá. 44

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.