Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Síða 46

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1997, Síða 46
Samstarf Félagsmálastofnunar Kópavogs og Svæðisskrifstofu Reykjaness um þjónustu við fólk með fötlun Samstarfshópurinn á óformlegum fundi í byrjun ársins Frá vinstri: Sigrún, Hrafn, Anna, Hanna og Hrönn. Ahaustdögum 1996 ákváðu Félagsmálastofnun Kópa- vogs og Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi að treysta samstarfsgrunn sinn með stofnun samráðshóps. Um árabil hafa þessar stofnanir átt mjög gott og árangursríkt samstarf, þá sérstaklega hvað varðar liðveislu og atvinnumál fólks með fötlun. Það samstarf var á margan hátt kveikjan að stofnun samráðshópsins. Starfs- fólk stofnananna telur það verðugt og spennandi verkefni að samnýta betur reynslu sína og þekkingu og feta þannig nýjar leiðir í samstarfi og þróun á þjónustu við fólk með fötlun. Markmið samráðshópsins er að tengja og samræma betur einstakl- ingsbundna þjónustu stofnananna, þannig að hún verði eins skilvirk, hag- kvæm og árangursrík og kostur er. Hópurinn vinnur að verkefnum varð- andi þjónustu beggja stofnananna við sömu einstaklinga í Kópavogi, það er að segja samkvæmt lögum um félags- þjónustu sveitarfélaga og lögum um málefni fatlaðra. Hópurinn hefur til grundvallar ákveðið vinnuferli sem Félags- málastofnun og Svæðisskrifstofa hafa komið sér saman um hvað varðar þjónustu við fólk með fötlun í bæjar- félaginu. Samkvæmt því leita Kópa- vogsbúar sem óska eftir þjónustu vegna fötlunar fyrst til Félagsmála- stofnunar þar sem gert er heildstætt mat á þjónustuþörf þeirra. Ef matið gefur til kynna að þjónustuþörf ein- staklingsins verði ekki eingöngu mætt með félagsþjónustu sveitarfélagsins, heldur sé einnig þörf fyrir þau sértæku úrræði sem Svæðisskrifstofa getur boðið upp á, þá er erindið lagt fyrir samráðshópinn. Verkefni hópsins er þá að samhæfa á sem árangursríkastan háttfélagsþjónustu sveitarfélagsins og viðbótarþjónustu Svæðisskrifstofu sem getur t.d. verið stoðþjónusta í atvinnu- og/eða búsetumálum. Verkefni samráðshópsins fela m.a. í sér eftirlit með heildstæðu mati á þörf fyrir þjónustu og gerð þjónustu- áætlana í framhaldi af því, ákvarðanir um þjónustu, mat á framgangi þjón- ustuáætlana, fyrirbyggjandi starf og samræmingu á þjónustu. Fundir eru haldnir reglulega, ákveðin dagskrá liggur fyrir fundunum og fundargerðir eru skráðar, þar sem m.a. kemur fram hver hefur verkstjórn þeirra mála sem til umfjöllunar eru. Samráðshópurinn kallar til sín umsagnaraðila eftir þörf- um s.s. annað fagfólk stofnananna. Samráðshópinn skipa Anna Jóhannsdóttir og Hrafn Sæmundsson frá Félagsmálastofnun Kópavogs, Hanna Björnsdóttir, Hrönn Kristj- ánsdóttir og Sigrún Þórarinsdóttir frá Svæðisskrifstofu Reykjaness. Hóp- urinn hefur nú þegar haldið nokkra fundi þar sem vinnulag og verka- skipting hefur verið skipulögð og ákveðin. Frétt frá hlutaðeigandi Hlerað í hornum Oft hefur verið sagt að Austfirðingar hefðu áður verið flámæltir s.s. þessi vísa ort í orðastað Austfirðings á að sanna: Hérna líður Lögurinn ljúfum meður sefa. Hingað stefnir högurinn hérna vil ég lefa. Og önnur staðfesting þessa: Verkfræðingur einn var að mæla fyrir vatnsaflsvirkjun hjá bónda eystra og þurfti margt að mæla. Einu sinni sagði hann við bónda: “Viltu nú skrefa þarna niðureftir svo við sjáum hvað langt er frá ánni og hingað”. Bóndi varð vandræðalegur og sagði svo: “En ég hef bara ekkert tel að skrefa með”. Palli sem var fertugur hitti afa sinn á götu og þeir fóru inn á kaffihús til að fá sér tíu dropa. Palli tók upp pilluglas og fékk sér eina töflu með kaffinu, kvað það nauðsyn fyrir menn á sínum aldri, kostuðu enda ekki nema hundrað kall stykkið. Afinn vildi fá að prófa eina og gleypti hana á staðnum. Nokkru síðar hittust þeir og þá rétti afinn Palla fimmhundruðkall fyrir töfluna. “En hún kostaði bara hundrað”, sagði Palli. “Veit ég vel, hitt er frá ömmu þinni”. 46

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.