Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 2
fréttabréf
ÖRYRKJABANDALAGS
ÍSLANDS
4. TÖLUBLAÐ
10. ÁRGANGUR 1997
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Helgi Seljan
Umbrot og útlit:
K. Fjóla Guðmundsdóttir.
Prentun:
Steindórsprent/
Gutenberg h.f.
Teikning á forsíðu:
Arnþór Hreinsson.
Aðrar ljósmyndir: Hafliði
Hjartarson o.fl.
Frá ritstjóra
Með þessu tölublaði telst ákveðnum merkisáfanga náð í útgáfu
þessa rits. Fertugasta tölublaðið er staðreynd, í tíu ár hefur
Fréttabréfið borizt ókeypis til allra félaga í aðildarfélögum okkar.
Oneitanlega hefur þetta viss þroskasaga verið, þetta málgagn hefur
vaxið - allavega að vexti, þó um vizkuna sé eflaust vafamálið meira.
Fyrsta tölublaðið var t.d. 16 síður og þótti bara
efnilegt afkvæmi, en nú um nokkurt skeið hefur
ritið verið frá 48 upp í 56 síður með allt öðru og
betra útliti á ýmsan veg en í upphafi var.
Eintakafjöldinn hefur einnig heldur betur vaxið
og nú kemur Fréttabréfið út í nálægt sextán
þúsundum eintaka hverju sinni.
Ritstjóranum er afkvæmi þetta býsna hjart-
fólgið, enda annað hvort eftir tíu ára samfylgd og táningsaldurinn á
næsta leiti. Hann er því ekki í minnstu færum um að dæma það
hversu til hefur tekizt. Efst í huga hans hlý þökk fyrir að hafa mátt
eiga þessa samleið svo og fyrir að hafa rnátt eiga að svo marga þá
sem hafa ljúft liðsinni sitt látið í té.
Ritstjóri hefur reynt að hafa ákveðna fjölbreytni í fyrirrúmi, ekki
síður reynt að gera blaðið að sem beittustum málsvara í hinni
víðfeðmu baráttu öryrkja fyrir kjörum sínum og réttindum öllum.
Eftir er svo að sjá hversu til hefur tekizt, því hér mun sagan dæma
sem alltaf áður.
En nú fer í hönd friðarins hátíð með lýsandi kærleiksboðskap
sinn okkur öllum til handa.
Megi jólin veita birtu sinni og yl í allra hjörtu svo enn megi fagna
öll Adamsætt eins og í sálminum segir. Árnaðar er lesendum óskað
á ári nýju.
H.S.
EFNISYFIRLIT
Frá ritstjóra....................................2
Á brattann að sækja..............................3
Hlerað.................. 4,11,14,27,38,41,47,51,53
Tvö ljóð.........................................4
Sjálfsbjargarkona með sterkar rætur..............5
SPOEX 25 ára.....................................9
Frá mínum sjónarhóli ...........................10
Samtök lungnasjúklinga......................... 11
Könnun á atvinnumálum sjónskertra...............12
Tjáritinn.......................................15
Hvernig horfa málefni öryrkja við þér?..........16
Nýrnaígræðsla...................................17
Aðalfundur 1997................................ 18
Tillögur skipulagsnefndar.......................19
Hugleiðing......................................21
Ályktanir aðalfundar............................22
‘ Slitgigt.........................................23
Kjararáðstefna ÖBÍ..............................24
Bæklingur Heyrnarhjálpar........................25
Bæklingur um heilablóðfall......................25
Umsjónarfélag einhverfra 20 ára.................26
Hvað er “Dystonia“..............................27
Lífskjör öryrkja................................28
Létt hurð - greið leið........................29
Af stjómarvettvangi...........................30
Frá mínum bæjardyrum séð......................31
Geðdeild Landspítalans........................32
Lífið með öryrkjanum..........................36
Bernskujól....................................38
Skýrsla Hússjóðs ÖBÍ..........................39
Lífskjör öryrkja 1997.........................40
Af fræðslunámskeiðum .........................41
Háskólinn útskrifar táknmálstúlka.............42
Annað líf.....................................43
Frá MG-félagi Islands.........................43
Kynning.......................................43
Hér leynist fólk..............................44
Af 10. október................................45
Þegar amma var ung............................46
Þekking skapar skilning.......................47
Aðlögunarnámskeið.............................48
Ef ég get ekki................................49
Menningardagar heyrnarlausra..................49
Dvalarheimilisgjöld...........................50
Flækjufótur á Norðurlöndum....................51
Um fegrunartannlækningar......................52
Hávaði og heyrnarskaði........................53
I brennidepli.................................54
2