Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 5

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 5
s SJALFSBJARGARKONA MEÐ STERKAR RÆTUR Ólöf Ríkarðsdóttir, Sjálfsbjargarkona og fyrrverandi formaður Öryrkjabandalagsins situr fyrir svörum s löf Ríkarðsdóttir. Fallegt nafn með sterka vísun til föður. Ríkarður Jónsson, myndhöggvari, var einn af fræg- ustu sonum Islands. Dóttirin Olöf er að góðu kunn, kona sem aldrei hefur látið deig- an síga. Faðir- inn teiknaði merki Sjálfs- bjargar. Dóttir- in hefur borið merkið hátt, klifið þrítugan hamarinn fyrir sjálfa sig og aðra - til að fatlaðir njóti jafnréttis á við aðra. Um áratugi var Olöf fulltrúi Islands hjá Bandalagi fatlaðra á Norð- urlöndum, flutti þekkingu heim sem byggt var á. Hún var einn stofnfélaga Sjálfsbjargar og helgaði félaginu starfskrafta sína. Olöf lét nýlega af störfum sem formaður Öryrkja- bandalagsins. Hún er sótt heim í föðurhús í Þingholtunum. Að Grundarstíg 15 er lagt á borð að austfirskum sið fyrir gestinn, með rjómakökum og hnossgæti. Austfirskt andrúm í þessu Reykjavíkurhúsi, sem hýst hefur skapandi persónuleika. Hér bjó skáldið Jón Trausti sín síðustu ár, Helgi Valtýsson, en Ríkarður keypti húsið af honum 1928. Á loftinu var vinnustofa myndhöggvarans, sem var meistari í að meitla andlitsdrætti íslendinga, sájafnvel hvaðan af land- inu þeir voru eftir lögun eymasnepla. Dóttir myndhöggvarans er skarp- eygð - hefur líka mótað og byggt upp í óeiginlegri merkingu. I fjörutíu ára sögu Sjálfsbjargar er Ólöf sá Islend- ingur sem lengst hefur unnið að heill félagsins og aldrei látið deigan síga. Engin sjálfsvorkunn í yfirbragði Ólaf- ar. Fötlun hennar er ekki hluti af ímynd persónuleikans - hverfur í bak- sviðið undarlega fljótt, bæði vegna þjálfaðra hreyfinga, en ekki síður vegna staðfestu í viðmóti og rólegrar íhugunar gagnvart viðmælanda. s Otrúlegt að þessi kona skuli vera komin yfir sjötugt, gæti verið tíu árum yngri. Austfirskt svipmót ein- kennir smávöxnu konuna með rauð- leita hárið sem gránar aldrei, enda for- eldrar hennar báðir með ættboga það- an, en móðir Ólafar var María Ólafs- dóttir frá Borgarfirði eystra. - Skyldu írsku blóðtengslin vera sterkari í Austfirðingum en öðrum landsmönnum? “Eg tel mig alltaf Austfirðing,” segir Ólöf, “finnst Reykjavík ekki geta verið æskustöðvar, þótt foreldrar mínir hafi flutt hingað, þegar ég var eins árs. Pabbi og mamma töluðu svo mikið um Austfirði, að ég tengdist þeim íhuganum. Austfirðingarkomu líka mjög mikið á vinnustofuna hjá pabba. Þá var geysilegur gestagangur hér og sjálfsagt þótti að bjóða öllum í kaffi og mat.” Ólöf er hugsi, en segir síðan: “Ég veit ekki, hvort fólk almennt veit, hvað pabbi var mikill gleðimaður og eftirsóttur á skemmtanir bæði sem sagnaþulurogsöngmaður. Foreldrum mínum þótti ekkert tiltökumál að tæma stofurnar héma og slá upp fjör- ugu balli með vinunt sínum. Foreldraminningin er Ólöfu dýr- mæt, enda bjó hún með þeim alla ævi. Ríkarðsbörn voru fjögur. Már var elstur og lærður arkitekt, en dó ungur úr berklum. Björg var gift Pétri Þor- steinssyni, fyrrum sýslumanni í Dala- sýslu. Ásdís er tvíburasystir Ólafar og tónlistarkennari á Akranesi. - Hefur listhneigð komið fram hjá ykkur systkinunum? “Kannski kom hún helst fram hjá Ásdísi í tónlistinni. Már var líka listfengur og lærði tréskurð af pabba. Við bárum öll við að skera út. Sjálf hef ég yndi af góðri list, enda alin upp við að fara á hverja einustu málverka- sýningu og tónleika í fleiri áratugi.” Dóttir inyndhöggvarans Ekki undarlegt þótt Ólöf hneigist til lista með listmuni allt í kringum sig. Ómetanlegir listmunir með hand- verki tréskurðarmeistara Islands prýða stofurnar á ættarsetrinu að Grundarstíg 15. Utskorinn stóll með drekahöfðum er drottningar gersemi, en Ríkarður skar út tvo slíka, ásamt setbekk með samtengdri bókahillu. Góbelínteppi eftir dótturina Björgu er yfir setbrík, en höfðaletur og land- vættir liðast upp eftir súlunum. “Pabbi teiknaði og skar út land- vættirnar,” segir Ólöf. “Hann hafði líka mikinn áhuga á höfðaletri. Ófáa sunnudaga sat hann á Landsbóka- safninu við rannsóknir, og náði að samræma hið besta úr höfðaleturs- gerðunum í eina.” Útskorna veggklukkan er dýr- gripur, með bjamarfjölskyldu þar sem húnninn teygir sig upp á móðurbak til að sjá tímaglasið og syndandi sel- um á neðstu brún. “Klukkan sú arna á merkilega sögu,” segir Ólöf. “Árið 1930 fékk pabbi heiftarlega hettusótt sem leiddi til taugabólgu og varð hann að leita sér lækninga til Kaupmannahafnar. Hann tók klukkuna með sér til að kaupa gangverk í hana, en freistaðist í heimsborginni til að skipta á klukkunni fyrir útvarpstæki. Klukkan hefði verið að eilífu glötuð, ef örlögin hefðu ekki gripið inn í. Áratugum síðar erfðum við klukkuna frá systurdóttur mömmu SJÁ NÆSTU SÍÐU FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.