Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Qupperneq 8

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Qupperneq 8
vel leisthonumá verkefnið. ífram- haldi af því hefur rektor Háskólans boðið samvinnu við forsvarsmenn þessara mála í Brussel. Verkefni frá Kópavogi kom til álita með bronsið, en þeim hefur fundist nóg um að Island hlyti þrjú efstu sætin - landið sem var ekki einu sinni með frá upphafi,” og Ólöf brosir. Á alþjóðadegi fatlaðra 3. desember '96 komu konumar til Brussel að taka á móti verðlaununum. Það var stór stund fyrir Island.” Laga sig að sínum veruleika Ólöf ber fötlun sína með reisn og hreyfihömlun hennar gleymist fljótt þeim sem við hana tala, eins og áður segir. - Hefur hún aldrei verið bitur? “Þettaerminn veruleiki. Égleiði hugann ekki að ímynduðum veru- leika. Við erum steinhissa á, hvernig blindir geta bjargað sér. Þeir segja aftur á móti, að heyrnarleysi sé erfið- arifötlun. Hverogeinn verðuraðlaga sig að sínu umhverfi í lífinu. Ég held að fatlað fólk sé ekki að vorkenna sér, a.m.k. ekki mænuveikisjúklingar. Könnun á mænuveikisjúkum í Bandaríkjunum leiddi í ljós, að þeir eru allir A-fólk - það er að segja “duglegt fólk.” B-maður er sá sem vill sofa út á morgnana.” Þegar horft er á Ólöfu og hennar starfsferil sem spannar yfir 50 ár þá sést að hún er A-manneskja. “Fötlun getur hjálpað fólki til að verða dugmeira. Annaðhvort dettur fólk niður eða tvíeflist!” Það er styrk- leiki í rödd Ólafar. “Anna Geirsdóttir læknir er gott dæmi um tvíeflda manneskju. Hún hryggbrotnaði og þarf að nota hjóla- stól, en það kom ekki í veg fyrir að hún héldi áfram sínu framhaldsnámi. Hún lærði heimilislækningar í Sví- þjóð, en festi ekki yndi þar. Nú er hún loks búin að fá vinnu hér heima. Hún var fyrst látin gjalda fyrir fötlun sína í starfsumsóknum, en nú er skort- ur á læknum og þá fær hún vinnu. Nei, að missa máttinn ífótunum er ekki það versta. - Erfiðasta fötlunin? “Tvímæla- laust sinnisveiki. Allt sem snýr að geðheilsu er langerfiðast. Þetta er svo mikil þjáning fyrir sjúklinginn, svo að ekki sé talað um hans nánustu. Ef fólk hefur vald á skynsemi sinni, á það að geta bjargað sér. Fullfrískur maður getur verið óduglegur, en sá fatlaði verður að horfast í augu við fötlun sína - verður að duga eða drepast. Mér finnst það bera vott um heimsku, þegar sagt er um fatlaðan mann í undrunartón: “Samt er hann alltaf svo glaður og kátur.” Hver nennir að vera alltaf í fýlu?” Ólöf er hugsi um stund, segir síð- an. “Það er svo margt annað mót- drægt í lífinu. Ég hef til dæmis aldrei skilið, hvernig konur geta búið með drykkjumönnum - það hlýtur að vera mikil lífsraun. Huglæg fötlun er erfið, þótt hún sé ekki jafn augljós og hreyfihömlun.” - Á sá sem fatlast síðar í lífinu erfiðara með að sætta sig við það? “Það er ekki réttur skilningur að tala um að sætta sig við. Enginn sættir sig við fötlun, annað mál að horfast í augu við staðreyndir. Trúlega tekur lengri tíma að átta sig á breyttum aðstæðum, þegar fólk er öðru vant. Sá einstaklingur hefur þó átt mörg góð ár, samanborið við þann sem er fatlaður allt sitt líf.” Jákvœðar breytingar, en langt í land Margar jákvæðar breytingar hafa orðið, segir Ólöf. “Áður stóð Sjálfs- björg alltaf fyrir skemmtunum. Núá mjög margt hreyfihamlað fólk bíla og tekurþátt í almennu félagslífi. Mesta breytingin er þó í ferlimálum fatlaðra, um betra aðgengi að almennum byggingum og vinnustöðum. Þetta hefur áunnist fyrir tilstilli Sjálfs- bjargar. Viðhorf fólks til fatlaðra hefur líka breyst mikið. Áður var glápt óþægilega, ef maður var gang- andi úti. Nú er fatlað fólk hluti af götulífinu.” Ólöfu finnst samt ennþá langt í land, einkum fyrir fólk í hjólastólum. “Ég fæ svo mikið af brosum í hjóla- stól,” segir hún, “eingöngu vegna stólsins. Ótrúlegt, hvað talað er yfir höfuðið á mér, ef ég sit í hjólastól - alltaf talað við þann sem er með mér - en um mig í þriðju persónu.” s Olöf segir dæmi um “þriðju persónu viðmót” - frá sínu sjónarhorni. “Ég fór nýlega á öldrunarráðstefnu fyrir Öryrkjabandalagið. Ung kona á símanum tók hjólastólinn út fyrir mig, en í anddyrinu stóð aðstoðarkona á ráðstefnunni. Þá áttu þessi orðaskipti sér stað á milli þeirra um hjólastóla- konuna - mig! “Tekur þú hana með þér upp?” “Nei, hann Ingimar tekur hana með sér!” Þarna var ég að koma á eigin bíl fráReykjavík. Sjálfstæðkona! Hefði ég komið gangandi með mína tvo stafi - hefði viðmótið orðið allt annað. Hjá lyftunni var sagt við mig, eins og óvita: “Þú ýtir á takka tvö og bakkar síð- an út.” Mér var hugsað til eldra fólks sem mætir svona “þriðju persónu við- móti,” eins og fólk sé ekki sjálfstæðar persónur eftir ákveðinn aldur. Svona væri ekki komið fram á hinum Norð- urlöndunum! Ein skýring er kannski 8

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.