Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Síða 10

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Síða 10
Sigurbjörg Ármannsdóttir: FRA MINUM SJÓNARHÓLI að dreymir engan um að verða öryrki, en fólk veikist, lendir í slysum og stendur allt í einu frammi fyrirþví að öll framtíðaráform og áætlanir verða að engu. En á þessum erfiðu tímamótum þegar öll sund virðast vera lokuð má eygja ljós í myrkrinu “við búum á Islandi, þar sem velmegunin er ein sú mesta í heim- inum og sam- félagið hlúir að þegnum sínum og styður þá, sem lenda í alvar- legum áföllum með öflugu almanna- tryggingakerfi.” Þetta höfum við öll heyrt ráðamenn tala um á hátíðastund- um og við þökkum Guði fyrir að búa hér, en ekki t.d. í Ameríku. Og fólk fer af stað til þess að leita réttar síns, en það reynist vera löng og ströng ganga, og alls ekki eins og við höfðum gert okkur vonir um. Því miður eru þeir margir í þessum sporum sem eru það ungir að þeir hafa ekki áunnið sér rétt til lífeyris- greiðslna úr lífeyrissjóðum og þurfa því alfarið að treysta á almannatrygg- ingakerfið sér til lífsviðurværis. Þetta er oft fólk nýkomið úr námi og er e.t.v. jafnframt að eignast þak yfir höfuðið. Við skulum nú líta á hvað bíður ungs öryrkja, sem er í hjónabandi. Oskertar örorkubætur nema 14.541 kr. á mánuði og ef um hreyfi- hamlaðan einstakling er að ræða fær hann að auki um 4.700 kr. á mánuði í bensínstyrk og ef hann á böm bætast við um 12.000 kr. barnabætur með hverju barni. Ef maki hans er með hærri tekjur en 74.654 kr. á mánuði fær öryrkinn enga tekjutryggingu, sem er 27.000 kr. á mánuði né mögu- leika á að fá frekari uppbót vegna lyfja og lækniskostnaðar. essi ráðstöfun, að tengja greiðslur bóta almannatrygginga við tekjur maka er, eins og Garðar Sverrisson benti á í erindi til umboðsmanns Alþingis síðla vetrar og síðan var rætt um í utandagskrárumræðu á Alþingi í apríl, algerlega ólögleg. Því að í 17. grein laga um almannatryggingar segir: “Ef aðrar tekjur örorkulífeyrisþega en lífeyrir almannatrygginga, bætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð og húsaleigubætur samkvæmt lögum nr. 100/1994 fara ekki fram úr 232.064 kr. á ári skal greiða uppbót á lífeyri hans að upphæð 330.036 á ári. Hafi bótaþegi hins vegar aðrar tekjur umfram 232.064 kr. skal skerða uppbótina um 45% þeirra tekna sem umfram eru.” Það er augljóst að hér er ótvírætt verið að ræða um tekjur bótaþegans sjálfs, og hvernig skerða skuli tekju- tryggingu hans fari tekjur hans yfir ákveðin mörk. Þegar rætt er um tekjur einstakl- ings er átt við hann sjálfan, nema annað sé tekið fram. Þetta kemur ekki aðeins fram í lagatextum á borð við almannatryggingalögin heldur hvarvetna þar sem einstaklingar þurfa að gera grein fyrir tekjurn sínum. í þessu sambandi gildir einu hvernig yfirvöld kjósa að skattleggja tekjur hjóna, enda er það annað mál. Fyrir nú utan það hvað þetta er óréttlátt hefur þessi ráðstöfun gríðarleg áhrif á sjálfsmat öryrkjans. Hann er að ganga í gegnum það ferli að þurfa að sætta sig við heilsubrest og sér ef til vill að menntun sú sem hann hefur verið mörg ár að afla sér, muni ekki nýtast honum til fram- færslu í framtíðinni. Hann þarf nú að ganga manna á milli og biðja um aðstoð, ekkert er sjálfgefið, allt þarf að sækja um með tilheyrandi vottorð- um og pappírsfargani. Og til að kóróna niðurlæginguna, er hann nú af því opinbera settur á framfæri maka síns. Því að bætumar til hans eru svo skammarlega lágar að þær duga oft ekki einu sinni fyrir læknis- og lyfjakostnaði. Út takti við sína jafnaldra Það ætti öilum að vera ljóst að hér er verið að níðast á þessum einstakl- ingi og brjóta hann niður. Og þetta bitnar ekki aðeins á honum því að fjölskylda hans líður einnig fyrir þetta. Þar að auki er öryrkinn okkar félags- 10

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.