Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Síða 13

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Síða 13
og einföld störf. Þess vegna unnu þeir helst við körfu-og burstagerð, vefnað og prjónaskap. A þessu hefur orðið mikil breyting þar sem tækifæri til menntunar hafa aukist fyrir blinda. Meðal annars á tölvutækni þar stóran hlut að máli. Margir skjólstæðingar Sjónstöðvar íslands láta í ljós ótta við að missa vinnu vegna versnandi sjón- ar. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt að segja upp starfi sínu áður en þeir koma á Sjónstöðina. Það fylgir því bæði andlegt og líkamlegt álag að missa sjón og/eða vinnu. Otti og afneitun eftir sjóntap getur staðið í vegi fyrir endurhæfingu. Þó finna megi blinda og sjónskerta á Islandi við ólík störf úti í þjóð- félaginu er þó enn hópur fólks sem vinnur einhæf störf á vernduðum vinnustöðum. Val á viðmælendum Viðmælendur í könnuninni voru fengnir úr skrám Sjónstöðvar Islands. í hópnum eru allir sem skráðir hafa verið frá og með 1987 til og með 1995 og uppfylla eftirtalin skilyrði: * Að vera á aldrinum 18-66 ára þegar könnunin var gerð. * Að vera fæddir fullsjáandi og missa sjón síðar á ævinni. * Að hafa sjón minni en 3/60 eða hafa þrengra sjónsvið en 15° * Að hafa fengið hjálpartæki og þjálf- un. Hópurinn samanstendur af 24 ein- staklingum. Af þeim var 21 tilbúinn að svara þeim 20 spurningum sem könnunin fól í sér. Ekki náðist í þrjá þar sem þeir voru erlendis. Niðurstaða Þessi hópur átti það sameiginlegt að sjónskerpa þeirra mældist frá 3/60 niður í algjöra blindu eða þeir höfðu þrengra sjónsvið en 15°. Þeirkallast blindir eftir alþjóðlegum lögum um greiningu blindra. Með þessum tölum er verið að tilgreina nákvæmlega sjón hvers og eins. Til að auðvelda þeim sem ekki þekkja til að átta sig á þessum tölum, tákna tölumar 3/60 að viðkomandi sér stóran bókstaf eða tákn í þriggja metra fjarlægð, en sá sem er fullsjáandi sér það sama í 60 mctra fjarlægð. Fingur- talning í eins metra fjarlægð táknar að viðkomandi sér hreyfingu handar eða fingra en greinir ekki bókstaf eða Kennsla í notkun hjálpartækja. tákn. Einstaklingur telst alblindur ef hann sér ekki mun dags og nætur. Könnunin leiddi í ljós að sjúk- dómsgreiningin Hereditary retinal dystrophies er lang algengasta orsök blindu og sjónskerðingar hjá hópnum. Alls höfðu 13 einstaklingar þá grein- ingu, níu karlar og fjórar konur. Sjúk- dómur þessi er flokkur margra sjúk- dóma þar sem nokkrir em arfgengir og þá frekar í karllegg. Næst koma svo slys, þ.e. eitrun og alvarlegir höfuðáverkar. Af þeim orsökum voru þrír karlar blindir eða alvarlega sjónskertir. Þá kom grein- ingin Optic atrophy sem tveir karlar greindust með og em þeir bræður. Að lokum em þrír flokkar þar sem einn einstaklingur greindist í hverjum. Athyglisvert er að 90% aðspurðra misstu sjón áður en þeir náðu 38 ára aldri. Það undirstrikar mikilvægi endurhæfingar hjá einstaklingum sem rnissa sjón á þeim aldri sem flestir eru önnum kafnir við að afla sér mennt- unar, stofna fjölskyldu og fjárfesta í húsnæði. Yfirgnæfandi meirihluti hópsins taldi sig nauðbeygða til að skipta um vinnu eftir sjóntap, aðrir sögðust ekki hafa haft orku til að berjast fyrir rétti sínum eða viljað hætta áður en þeir gerðu einhver alvarleg mistök vegna versnandi sjónar. Aðeins tveir héldu áfram í sínu starfi. Sumir vissu ekki að hægt væri að fá þjálfun eða endurhæfingu til að halda áfrafn í sínu starfi, aðrir misstu sjón áður en Sjónstöðin tók til starfa og enn aðrir höfðu þegar sagt upp störfum áður en þeir leituðu aðstoðar á Sjónstöðinni. Nokkur dæmi eru um einstaklinga sem misstu sjónina algjörlega og höfðu gegnt það sjón- krefjandi störfum að ógemingur var að sinna þeim eftir sjóntapið. Dæmi um slík störf em tannlækningar, hjúkr- un, sjómennska og farandsölu- mennska. Samt sem áður gætu fleiri haldið áfram í sinni vinnu með réttri endur- hæfingu, hjálpartækjum og jafnvel smávægilegum breytingum vinnu- staðarins eftir þörfum hvers og eins. Fyrir aðra er óhjákvæmilegt að endur- hæfa sig til nýrra starfa sem hentugri eru fyrir sjónskerta eða blinda. í þeim tilfellum sem einstakling- arnir eru haldnir sjúkdómum sem valda versnandi sjón er nauðsynlegt að viðkomandi sé í góðu sambandi við Sjónstöðina til að fá endurmat og áframhaldandi þjálfun eftir því sem sjóndepran ágerist. Nokkrir einstakl- ingar hlutu fleiri fatlanir en sjónskerð- ingu sem margfölduðu erfiðleikana. Þurftu þeir á fjölþættari endurhæfingu að halda áður en þeir hófu leit að nýju starfi. Ein spurningin var ætluð til að kanna hvort hinir sjónskertu gerðu tilraun til að leyna sjónvandamálum sínum þegar sótt er um vinnu. Sjónskertir virðast hafa tilhneig- ingu til að gera minna úr sjón- skerðingu sinni en efni standa til, annarsvegar af ótta við höfnun af vinnuveitendum, hinsvegar vegna erfiðleika við að gera öðrum grein fyrir eðli sjónskerðingar sinnar. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDAFAGSINS 13

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.