Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 25

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 25
komið sér almennt vel fyrir eignalega sem lífeyrislega. Hann kvað það einnig sjálfsagt að hver og einn nyti sinna persónulegu bóta án tillits til tekna maka. Hættum kákinu, tökum heildstætt á málum, sagði Hilmar. Skúli Þórðarson ræddi nokkuð unt gildi lífeyrissjóða og varaði við talinu um frelsið í þeim efnum, sem ætti einungis að þjóna gróðaöflunum. Sigurrós M. Sigurjónsdóttir sagði það brýnt að endurskoða og breyta lögum um almannatryggingar, þar stangaðist oft nú hvað á við annað. Löggjöfin ætti á öllum sviðum að aðlagast sem bezt lífsaðstæðum fatlaðra. Haukur Þórðarson gerði ýmis atriði í framkvæmd almanna- tryggingalaga að umtalsefni. Nefndi m.a. það atriði að fólk félli út af bótum eftir 4ra mánaða sjúkrahússvist á tveim árum. Meginmálið væri að hækka grunninn að lífskjörum öryrkja um leið og helztu agnúar yrðu sniðnir af. Guðmundur Vésteinsson sagðist hafa áralanga reynslu af framkvæmd laga um almannatryggingar og félags- lega aðstoð, einnig kvaðst hann þekkja vel til á Norðurlöndunum. Greinilegt væri að við hefðum dregizt verulega aftur úr og þar væri leiðrétt- inga þörf. Fannst tryggingamálin hálfgerð hornreka hjá stjórnvöldum. Sigurður Þór Guðjónsson sagði að sér fyndist vanta á svona ráðstefnu hina almennu öryrkja, það væru bara helztu “töffaramir” sem mættu og töl- uðu. Sigurður Þór sagði að líka þyrfti að huga að skattakerfinu. Kristinn H. Gunnarsson svaraði fyrirspurnum m.a. um líkur á sam- þykkt þingmannafrumvarps um teng- ingu launa og bóta, sem hann taldi ekki miklar. Kvað þungt undir fæti á Alþingi um allar breytingar á trygg- ingalöggjöfinni. Ráðstefnustjórar þökkuðu fyrir góðar framsöguræður og vandaðar svo og líflegar umræður. Mælendaskrá tæmd um kl. 16,30 og þá var ráðstefnunni slitið. Mál manna var að afar vel hefði til tekizt með ráðstefnu þessa, mörg sjónarmið verið reifuð og rædd og það eitt á skort að þátttakan væri meiri. Aðalatriði það svo að skilaboðum ráðstefnunnar sé skýrt og óhikað fylgt fram og þau borin áfram til árangurs. Það er enda ætlunin að gera sem allra bezt. Stjórn bandalagsins hefur enn betri grunn á að byggja en áður og atfylgi bak- landsins ætti að vera gulltryggt. Öryrkjabandalagið færir öllum fram- sögumönnum hlýjar þakkir fyrir fram- lög sín á þessari myndarlegu ráð- stefnu. H.S. Bæklingur Heymarhjálpar Heymarhjálp hefur gefið út myndarlegan og vel uppsettan bækling með meginspurningu á forsíðu: Hefur þú skerta heyrn? Fyrst er svo spurt nokkurra áleitinna spuminga varðandi heym- ina s.s. hvort lesandinn kannist við að vera utanveltu í samræðum eða að eiga í erfiðleikum með sam- skipti á vinnustað o.s.frv. Sagt er frá félaginu, sem nú er sextíu ára. Fyrst með heymartækin, nú mest með félagslega þjón- ustu fyrir heyrnarskerta, gefur út fréttabréf og heldur fræðslufundi. Minnt er á helztu baráttumál Heymarhjálpar s.s. að hvetja til heymarvemdar, að bæta stöðu heymarskertra nemenda, tónmöskvi í opinberar byggingar, textað íslenzkt sjónvarpsefni og svo aðgangur að beztu heyrnartækjum, svo eitthvað sé nefnt. Fólk er hvatt til þess að ganga til liðs við félagið. Kafli er um heyrnartæki, sagt frá vonbrigðum fólks sem fær heymartæki og sagt er: Ekki gefast upp, leitið leiðsagnar og notið heyrnartækin. Þá er kafli um tónmöskvann sem er magnari tengdur við sjónvarp eða útvarp þegar heyrnartækin ein duga ekki. Tónmöskvar em í leikhúsum, flestum kirkjum á höfuðborgarsvæði og mörgum úti á landi. Með þessum ágæta bæklingi fylgir svo félagsumsókn að Heymarhjálp og vonandi að fleiri heymarskertir gangi til liðs við það félag sem sinnir svo þörfum málum fyrir þennan hóp. H.S. Bæklingur um heilablóðfall Félag heilablóðfallsskaðaðra hefur gefið út upplýsingabækling sem heitir: Hvað er til ráða? Fjallað er um hina ýmsu þætti þessa alvarlega máls, en truflun á blóðflæði til heilans er orsök heilablóðfalls. Minnt er á áhættuþætti s.s. háþrýsting, mikla blóðfitu, reykingar og hjarta- og æðasjúkdóma. Einkennum og fylgikvillum er lýst svo og meðferð. Þá er um endurhæfingu ítarlega fjallað. Hjálp til sjálfsbjargar, þar sem þungamiðja allrar endurhæf- ingar er auðvitað sá sem fyrir áfallinu verður. Helztu hjálpartækjum er lýst, ökumat þarf að fylgja í kjölfar áfalls, heimilisaðstæður þarf að kanna m.a. með tilliti til hjálpartækja. Sagt er frá ferli örorkumats og félagslegrar aðstoðar. Lögð er áherzla á aðlögun að breyttum högum. Alllangur kafli er um: Hvemig getur fjölskyldan orðið að liði? Varastu að ofvernda, en styddu og hvettu og gleymdu alls ekki sjálfum þér, þetta er meðal heilræðanna. Að lokum er svo stutt kynning á hinu þriggja ára gamla félagi sem er í Öryrkjabandalagi Islands í gegnum Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra. Félag heilablóðfallsskaðaðra er með upplýs- ingasíma 564 1045. Heimilisfangið: Pósthólf307, 200 Kópavogi. Þetta er skemmtilega unninn bæklingur og hinn læsilegasti. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.