Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Qupperneq 26

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Qupperneq 26
UMSJÓNARFÉLAG EINHVERFRA 20 ÁRA Eitt okkar ágætu aðildarfélaga, Umsjónarfélag einhverfra er 20 ára nú á þessu ári og í nóv- ember minntist félagið tímamótanna mjög myndarlega. Sunnudaginn 2.nóvember var afmælishátíð í Ráðhúsinu, en hana sótti mikið fjölmenni og þar flutt fjölbreytt og vönduð dagskrá við allra hæfi. Formaður félagsins, Ástrós Sverrisdóttir, setti samkomuna og bauð fólk velkomið til þessa fagnaðar. Þakkaði öllum er lagt höfðu fé- laginu lið á einn eða ann- an hátt. Fagnaði sérstak- lega myndlistarsýningu einhverfra sem bæri list- gáfu og hugkvæmni hið bezta vitni. Fól svo Maríu Ellingsen leikkonu stjóm- ina. Borgarstjórinn, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir flutti hamingjuóskirborg- arinnar og bauð fólk vel- komið í Ráðhúsið. Lýsti sérstakri gleði yfir því að samningar hefðu tekizt við þroskaþjálfa. Hún sagði skilgreiningar á einhverfu, misþroska, ofvirkni o.s.frv. vera nýjar, en sjálf fyrirbærin ekki ný. Vitnaði í Islendingasögur um þá ofvirku kappa Egil og Gretti. Talaði um kolbítana sem þó hefðu áður en yfir lauk risið úr öskustó, oftast fyrir tilverknað móður. Hver einstaklingur á sér vaxt- arsprota, líkja mætti ævigöngunni við fjallgöngu; ferð með fyrirheiti, stuðla bæri að því að sem flestir mættu fjalls- tindinum ná. Ræddi um mannvernd og kvað stærsta átakið í mannvemd vera baráttuna í málefnum fatlaðra. Iþróttaálfurinn úr Latabæ kom næst fram og kallaði á svið aðstoð- arfólk og framkvæmdi síðan kúnstir sínar af fimi og léttleika, einnig í töluðu máli og söng. Kunnu allir vel að meta, einkum hin yngri. Margrét Margeirsdóttir deild- arstjóri flutti félaginu ham- ingjuóskir ráðuneytis síns og ráðherra. Uppbygging í málefnum einhverfra átt sér stað á liðnum tuttugu árum og hlutur Umsjónarfélags þar einstaklega góður. Hún sagði eitt sitt fyrsta verk í félagsmálaráðuneyti að finna athvarf fyrir einhverfa einstaklinga. Bar sér- stakt lof á Guðna Garðarsson fyrsta formann Umsjónarfélagsins. Ráðu- neytið í raun borið ábyrgð á málum einhverfra í ríkara mæli en annarra fötlunarhópa. Rakti svo nokkra áfanga s.s. 1982 heimilið að Trönu- hólum, síðar heimilið að Sæbraut og svo í Hólabergi, vinnustaður fyrir einhverfa, skammtímavistun o.s.frv. Nýtt heimili í Kópavogi tilbúið um mitt næsta ár. Hún minnti á yfirfærsl- una frá Barna- og unglingageðdeild yfir á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og svo fyrirhugaða yfirtöku sveitarfélaga á málefnum fatlaðra. Væntir þess að sá eldmóður sem ríkti í upphafi megi fylgja félaginu áfram. Þá var ljúft og létt tónlistaratriði. Áslaug Gunnlaugsdóttir, nemandi í Brautarskóla, lék tvö lög á píanó með kennara sínum Elísabet Haraldsdóttur og var yndi gott á að hlýða. Ásgerður Ólafsdóttir kennari í Digranesskóla, við sérdeild þar, sagði og sýndi litla sögu. Tók líkinguna af að loka og opna hurð. Félagsleg samskipti erfið hjá ýmsum, aðlaga þyrfti einstaklinginn sem bezt að hinu daglega lífi. Mikil þörf sjónrænna upplýsinga. Lýsti fjórum gerðum setninga sem unnið væri með: lýsandi, leiðbeinandi, viðhorfs- og stýrandi setningum, en þær síðastnefndu samdar af einstaklingnum sjálfum eftir frásögnina. Tók dæmi af tveim áþekkum sögum með um leið ólíkum viðmiðunum. Leikhúsferð. Annar hlær lengur en aðrir, hræðist klappið og öskrar. Hinn talar gjaman meðan á sýningu stendur. Lýsti þessu ljóm- andi vel hversu á hvoru væri leiðbeinandi tekið. ndrea Gylfadóttir söng því næst tvö lög, ætluð þeim yngri en okkur til umhugsunar einnig og ekki síður. Hrífandi falleg fram- setning. Guðrún Stephensen leikkona og amma ein- hverfs drengs las kafla úr bókinni: Hér leynist drengur. Las kafla frá sjónarhóli aðstandenda og drengsins sjálfs einnig. Frábær lestur sem snart menn djúpt, en Guðrún las einmitt hugljúfan kafla um samskipti drengsins og ömmunnar. Þá var ann- að tónlistaratriði, Kjartan Orri Ragn- arsson 13 ára lék hreimfagurt verk á fiðlu við undirleik ömmu sinnar, Soff- íu Guðmundsdóttur tónlistarkennara. Lokaaatriðið var svo opnun sýn- ingar á myndverkum einhverfra svo og myndum úr starfinu af ýmsum vettvangi. Það var Andri Hilmarsson 13 ára nemi sem opnaði sýninguna með ávarpi og klippti svo á borða eins og ráðherrar gera og af engu minni reisn né tilþrifum. Boðið var upp á góða hressingu í lokin og síðan nutu menn sýningar- innar, sem sýndi ótrúlega breidd í listsköpun, ásamt svipmyndum af því góða starfi sem svo víða er unnið og Umsjónarfélag einhverfra á sína góðu hlutdeild í. Umsjónarfélagið hélt svo hið merkasta málþing sunnudaginn 9.nóvember og því gerð skil annars staðar. Hlýjar árnaðaróskir eru héðan færðar. jj.S. 26

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.