Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 33

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Blaðsíða 33
og eiginkonunni til hægri. á sjúkrahús. Þannig urðu þrengslin til að skapa vítahring og örðugleika við að leysa vanda þeirra, sem urðu skyndilega veikir. Sjúklingamir voru flestir með geð- klofa eða alvarlegan geðhvarfasjúkdóm, en jafnframt var nokkuð af erfiðum þroskaheftum ein- staklingum, sem festu pláss árum eða áratugum saman. Árið 1919 var byrjað að grafa fyrir grunni nýbyggingar á Kleppi fyrir 80 sjúkrarúm til við- bótar. Framkvæmdir drógust á lang- inn, svo að húsið var ekki vígt fyrr en 28. mars 1929 (1). Meðan á byggingu stóð var leitað til læknis, sem var í sémámi í geðlækningum í Danmörku, og leitað álits hans og danskra lækna á teikningunum (4). Þeir vildu gera nokkrar breytingar á, en ekki var farið eftir þeim nema að litlu leyti og arki- tektinn hafði sitt fram. Fljótlega fór á sömu leið og eftir byggingu elsta hluta spítalans, plássið varð of lítið svo að gripið var til ýmissa ráða til að bjarga vandræðum fólks; deild var opnuð í Laugamesspítala, í fjósi og hlöðu á Kleppi, og íbúðum starfsfólks var breytt í sjúkradeildir. Auk þess vom um tíma útibú að Elliðavatni og í Stykkishólmsspítala. Þannig voru um þrjú hundruð sjúklingar á spítal- anum, þegar flest var í lok sjötta áratugarins. Framfaraspor Þrengslin voru í sjálfu sér orðin heilsuspillandi og brýn þörf að bæta allt meðferðarumhverfið og færa það til nútímalegra horfs. Þetta varð unnt þegar rými buðust á Reykjalundi og að Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði fyrir endurhæfingar- og langdvalar- sjúklinga, og frk. Guðríður Jónsdóttir, fyrram forstöðukona spítalans, setti á stofn heimili fyrir langveika. Á þessum tíma óx mjög skilningur og áhugi í þjóðfélaginu fyrir því að bæta hag hinna geðsjúku, sem leiddi til þess, að keypt var einbýlishús í einu besta hverfi bæjarins og tekið á leigu húsnæði hjá Hússjóði Öryrkjabanda- lagsins og komið upp göngudeildar- og rannsóknaraðstöðu til bráðabirgða. Þegar sérstakt heilbrigðisráðuneyti hafði verið stofnað 1970, var ákveðið að hefjast handa um undirbúning að byggingu geðdeildar á Landspítal- anum. Næst á eftir byggingu Klepps- spítalans 1907 er þetta stærsta fram- faraspor, sem tekið hefur verið í þágu geðsjúklinga, og einangrun þeirra þar með rofin. Jafnframt byggingu geð- deildar Landspítalans var stöðugt unnið að endurbótum á aðstöðunni á Kleppi, sem lauk 1987 og er aðstaða þar nú ekki síðri en á Landspítalanum. Aðrar meiri háttar breytingar fylgdu í kjölfar laga um meðferð ölv- aðra manna og drykkjusjúkra og yfir- töku Kleppsspítalans á hjúkrunar- heimili Bláa bandsins, stofnun bama- geðdeildar með aðstoð kvenfélagsins Hringsins 1970 og unglingageð- deildar með aðstoð Kiwanis-hreyftng- arinnar. Fyrr og síðar hefur Kiwanis- hreyfingin gefið fé til endurhæfingar með stofnun og eflingu Bergiðjunnar og til að koma upp vernduðum íbúð- um fyrir Geðvemdarfélag íslands. Starfslið Hinn ytri rammi hefði komið að takmörkuðum notum, ef ekki hefðu fengist hæfir starfsmenn, læknar, hjúkrunarfræðingar, og síðar iðju- þjálfar, sálfræðingar, félagsráðgjafar, sjúkraþjálfarar og sjúkraliðar til að sjá um meðferð og umönnun sjúkling- anna, auk allra annarra starfsmanna, sem nauðsynlegir eru til reksturs stórrar spítaladeildar, sérstaklega umsjónarmanna og iðnaðarmanna til að annast viðhald og framkvæmdir. Störf allra þessara aðila í þágu sjúklinganna og spítalans hafa verið ómetanleg. Margra þyrfti að geta sérstak- lega, en tímans vegna læt ég nægja að nefna í viðbót við fyrstu tvo yfirlæknana Þórð Sveinsson og Helga Tómasson, Þórð Möller, sem varð yfir- læknir er Helgi féll frá 1958, og gegndi því starfi til dauðadags 1975. Af hjúkrunar- fræðingum vil ég sér- staklega geta tveggja, sem spítalinn stendur í mestri þakkarskuld við, fröken Guðríðar Jónsdóttur, sem var forstöðukona Kleppsspítala frá 1933- 1963, og Þórunnar Pálsdóttur, núver- andi hjúkrunarforstjóra geðdeildar- innar, sem gegnt hefur því starfi síðan 1970 og hafði áður unnið sem deildar- stjóri og sem yfirhjúkrunarkona á spítalanum, eftir að hún lauk tveggja ára framhaldsnámi í geðhjúkrun í Noregi. Samstarfið við hana hefur verið með ágætum allan þann tíma sem við höfum unnið saman og á hún meiri þátt en flestir aðrir í þeim breyt- ingum og endurbótum, sem orðið hafa á hjúkrun og aðbúnaði geðsjúkra á síðasta aldarfjórðungi. Þess má sér- staklega geta, að það var fyrir atfylgi hennar sem sérnámi í geðhjúkrun var komið á í Nýja hjúkrunarskólanum á sínum tíma. Hún hefur unnið af meiri ósérhlífni en flestir aðrir og gengið í öll hjúkrunarstörf, ef ekki hafa fengist aðrir til að gegna þeim, til þess að halda starfseminni gangandi og til þess að koma af stað nýrri starfsemi. Einnig vil ég nefna umsjónarmennina Baldur Skarphéðinsson og Hagerup Isaksen, sem hafa með útsjónarsemi og óeigingirni þrotlaust unnið að lagfæringum á húsakosti Kleppsspít- alans síðustu 40 ár. Hlutverk Hlutverk geðdeildar Landspítalans er og hefur alla tíð verið 1) lækning, hjúkrun, endurhæfing og önnur aðstoð við geðsjúka; 2) rannsóknir á orsökum, eðli, meðferð og gangi geðsjúkdóma; 3) kennsla heilbrigðis- FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.