Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Side 41
AF FRÆÐSLUNAMSKEIÐUM
FÉL AGS MÁL ARÁÐUNE YTIS
Frá því í mars 1993 hefur starf-
að sérstök nefnd, fræðslu-
nefnd í félagsmálaráðuneyt-
inu undir forystu Margrétar Mar-
geirsdóttur deildarstjóra. Verkefni
hennar eru þau að koma á starfsnámi
til að efla færni og þekkingu starfs-
fólks á heimilum og stofnunum fyrir
fatlaða og fyrir börn og unglinga í
vanda. Ákveðið í framhaldi af því að
efna til námskeiða til að ná þessu
markmiði. Þessi nefnd hefur heldur
betur tekið til hendinni; hún réði
Þórarin Eyfjörð til að annast undir-
búning og hafa umsjón með nám-
skeiðunum. Fyrsta grunnnámskeiðið
hófst í nóvember 1993, kennt var
fjórar klukkustundir daglega í
vikulotum með vikuhléum, en allir
þátttakendur voru jafnframt í vinnu
með náminu. Því lauk svo í marz
1994 með formlegri útskrift 28
þátttakenda, metið til tveggja launa-
flokka hækkunar. Fram til haustsins
nú hafa verið haldin átta slrk grunn-
námskeið, 5 í Reykjavík og svo á
Akranesi, Sauðárkróki og Isafirði en
nú í október og fram til áramóta er
svo allt á fullu og frá því síðar sagt.
Þegar litið er til þeirra námsgreina er
þarna hafa verið kenndar þá er um
ærna fjölbreytni að ræða: Lög og
reglugerðir um málefni fatlaðra, lög
um barnavernd, lög um félagsþjón-
ustu sveitarfélaga, lög um réttindi og
skyldur opinberra starfsmanna, upp-
eldisfræði, félagssálfræði, siðfræði,
lífeðlis- og erfðafræði, helztu flokkar
fötlunar, næringarfræði, áfallakenn-
ingar, tómstundir, persónuleika-
sálfræði, meðferðaráætlanir og sam-
starf við aðstandendur.
✓
Aþessari þó ekki tæmandi upp-
talningu sjá menn að víða er
fanga leitað, enda spannar hvert
námskeið um 160 klst. Reynt er að
sníða námsefni og fyrirkomulag sem
bezt að þörfum þátttakenda, m.a.
dreifist námið yfir lengri tíma, allt upp
í 4 - 5 mánuði. Áherzla hefur verið á
það að fá færa kennara með mikla
þekkingu og reynslu og því hafa þama
að verki komið fæmstu sérfræðingar
hver á sínu sviði, margir kennt á öllum
námskeiðunum. Uti á landi fór
kennslan fram í húsnæði fjölbrauta-
skólanna þar sem þeir eru, í góðri
samvinnu við svæðisskrifstofur og
forstöðumenn farskóla á svæðunum.
Á sl. ári var fyrsta framhaldsnám-
skeiðið haldið í Reykjavík, þátttak-
endur um 30 talsins og kennt í 80 klst.
Mikil áherzla þar lögð á fræðslu um
geðsjúkdóma fullorðinna og barna,
orsakir þeirra og meðferðarúrræði,
ennfremur námsgreinar um forvarnir
og meðferðarstarf með unglingum
sem ánetjasthafa vímuefnum. Einnig
voru stofnanir heimsóttar og mikil
áherzla lögð á alla þætti er vinnustað
viðkom.
Nýlokið er svo grunnnámskeiði í
Reykjavík með 29 þátttakend-
um. Þá hafa um 300 manns lokið
grunnnámskeiðum. Yfir standa svo
þegar þetta er ritað tvö grunnnám-
skeið, á Akureyri með 30 manns og á
Húsavík með 20 þátttakendum.
Haustið 1998 er svo áætlað að grunn-
námskeið verði haldið á Egilsstöðum.
í nóvemberbyrjun nú hófst svo fram-
haldsnámskeið í Reykjavík sem 30
sækja og stendur fram í febrúar.
Fræðslunefndin fær styrk til þessa
námskeiðshalds hjá Starfsmennta-
sjóði félagsmálaráðuneytis. Gefin
hafa verið út tvö ítarleg sérrit á vegum
fræðslunefndar, bæði um grunnnám
sem og framhaldsnám. Hvorutveggja
ritin fela f sér glögga námsvísa ásamt
greinargóðu yfirliti yfir námsgreinar,
hvað þær hafa að markmiði o.s.frv.
Þetta er þarft og gott framtak sem
örugglega skilar sér afar vel í starfi
þeirra sem þessa mega njóta, víkkar
sjónhring þeirra og veitir þeim betri
innsýn í svo ótalmargt sem að gagni
getur komið í vandasömum og
viðkvæmum störfum.
Ráðuneytið, og þá deildarstjórinn
Margrét Margeirsdóttir sérstaklega,
eiga miklar þakkir skildar fyrir
framtak þetta.
H.S.
Hlerað í hornum
Þær voru þrjár aldraðar að ræða sam-
an á elliheimilinu. Ein þeirra sagðist
vera orðin svo kölkuð að þegar hún
stæði á þröskuldinum í herberginu
myndi hún ekki hvort hún væri að
koma eða fara. Önnur sagðist vera
enn verri, því þegar hún væri í úti-
tröppunum myndi hún ekki hvað væri
upp og hvað niður. “Ósköp eru að
heyra þetta”, sagði sú þriðja, “ég vona
að ég verði aldrei svona kölkuð- 7-9-
13”. Svo barði hún til enn frekari
áherslu þrjú högg í borðið, en eftir
stundarkorn sagði hún: “Kom inn”.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
41