Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1997, Side 54
• I B RENNIDEPLI
Iágætri samantekt danskri um
norræna velferðarsamfélagið og
þriðja aflið eða afl hinna frjálsu
félagasamtaka er áherzla lögð á
mikilvægi þess mikla starfs er hin
frjálsu félög inna af hendi. Einkenni
þeina er sagt það að þau hafi ekki hinn
hagræna ávinning sem æðsta boð og
hið frjálsa félagsstarf sé afgerandi
hluti af velferðarkerfinu sem í engu
megi glatast. Þar segir einnig að
yfirvöldum á Norðurlöndum hafi hætt
til að vanmeta virkni og starf þessara
frjálsu félagasamtaka. Bent er á að
oft hafi starf þeirra hafizt sem eins
konar sjálfshjálparhópar og þannig
eins og hér komið “sjúkum til sjálfs-
bjargar”. Undirstrikað er að hin
frjálsu félagasamtök eigi mikil verð-
mæti í sjálfum sér og þau séu einkan-
lega vel hæf til fyrirbyggjandi starfs.
Margt fleira mætti til tína, en aðal-
atriðið mikilvægi þess fyrir samfélag-
ið allt og þá málaflokkinn alveg
sérstaklega að hin frjálsu félagasam-
tök séu virt og viðurkennd og um leið
efld til athafna góðra, svo mikilvægur
hlekkur sem þau eru í samfélagslegum
efnum.
Engum sem til þekkir hins fjöl-
breytta starfs sem félögin inna af
hendi kemur þessi niðurstaða á óvart,
en gott er öllum og hollt að halda
henni til haga, þegar uppi eru kenn-
ingar um það að félögin eigi að halda
sig til hlés og alls ekki koma nálægt
rekstri af nokkru tagi.
Kjararáðstefna Öryrkjabanda-
lagsins þótti einstaklega vel
heppnuð og málefnaleg. Þar kom
margt það fram í ljósu máli sem
ástæða er til að endurtaka og reyna ef
unnt er að koma sem bezt til skila þar
sem ákvarðanir eru teknar og örlög
lífeyrisþega ráðast öðru fremur.
A aðalfundinum daginn eftir var
svo rækilega hnykkt á þeim atriðum
öllum sem athygli vöktu og verðug
voru til ályktana og þær birtar hér í
blaðinu. Alyktanirnar munu svo
kynntar hlutaðeigandi sem bezt og
þeim síðan fylgt eftir svo árangur
megi bera.
Ein ályktananna varðandi örorku-
mat er hvergi nærri ný af nálinni, því
sannast sagna hefur þar alltof lengi
ríkt óþolandi ástand þ.e. þegar sú eða
sá sem sannanlega er 75% öryrki er
færður niður í mati vegna þess að
viðkomandi hefur tekist að afla sér
einhverra vinnutekna. Þegar allir
bótaflokkar taka skerðingum á ein-
hvern hátt vegna vinnutekna þá ætti
að vera kappnóg að beita þeim, enda
nógu tilfinnanlegar, jafnvel svo að
afrakstur erfiðisins hverfur að mestu.
Margar ferðirnar hafa verið
farnar til að freista þess að ná
fram þessu sanngirnis- og réttlætis-
máli, því ef viðkomandi er sannanlega
læknisfræðilega metinn 75% öryrki
þá er hann það auðvitað áfram eða
eins og við segjum stundum: það vex
ekki nýr fótur á mann og blindur fær
ekki sýn, því miður, svo augljós dæmi
séu tekin. Við niðurfærslu á matinu
missir öryrkinn dýrmæt réttindi og
sjálfsögð um leið henni eða honum
til handa. Tryggingayfirlæknir er nú
með tillögur uppi um lagabreytingu
sem hann hyggst beita sér fyrir við
tryggingaráðherra að fram megi ná að
ganga og að lögum verða sem felur í
sér aðra skilgreiningu örorkumats en
aflahæfið eitt s.s. nú er. Við þá
breytingu verður hið læknisfræðilega
mat látið ráða og þessi óhæfa þá
vonandi úr sögunni. Sannleikurinn sá
að svo rækilega er fyrir bótaskerðingu
séð skv. þeim reglum er nú gilda að
ekki ætti að þurfa að taka af fólki þann
rétt og þau réttindi sem viðkomandi
ber þess vegna. Þetta framtak trygg-
ingayfirlæknis er því hið bezta, það
er heilshugar stutt af forstjóra Trygg-
ingastofnunar og að sjálfsögðu mun-
um við þar leggast á sveif sem við eig-
um afl til, svo þetta brýna baráttumál
bandalagsins um áraraðir fái farsælan
framgang.
Vasapeningarnir fengu að venju
sína umfjöllun og ályktun, enda
ekki spurning um það að upphæð
þeirra er smánarlega lág og hreinlega
engum bjóðandi. Það að ætla viðkom-
andi að hafa aðeins 11.589 kr. á mán-
uði til alls annars en fæðis, húsnæðis
og brýnustu þjónustuþátta er vitanlega
alger lítilsvirðing við þetta fólk.
I máli Ögmundar Jónassonarkomu
fram afar athyglisverðar upplýsingar
sem hann hafði beint frá Hagstofu
Islands um hlutdeild hinna ýmsu þátta
í neyzlugrunni fólks. Þar kom það
fram að tilsvarandi hlutdeild neyzlu-
grunns sem vasapeningar eiga að
mæta er hvorki meira né minna en
þriðjungur þessa grunns. Það þýðir á
mæltu máli það að heildarneyzlu-
grunnur þess fólks sem vasapening-
ana fær er 11.589 x 3 = eða nær 35
þús.kr. samtals.
Einmitt þessi staðreynd sem Hag-
stofan reiknar út eins nákvæmlega og
54