Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Page 2
2 17. janúar 2020FRÉTTIR
íslenskar barnastjörnur sem sneru sér að öðrum sviðum
Salan trompaði
ábreiðurnar
Katrín Sigurðardóttir var aðeins
tíu ára gömul þegar hún gaf
út geisladisk með ábreiðum
af vinsælum lögum árið 2002.
Hún sagði skilið við söngferilinn
þegar hún varð eldri og hóf nám
við Háskóla Íslands í ferða-
málafræði með markaðsfræði og
alþjóðaviðskipti sem aukagrein. Í
dag starfar hún í söludeildinni hjá
Nordic Visitor.
Á morgun segir sá …
Jónmundur Grétarsson gerði
garðinn frægan í leiksýningunni
Bugsy Malone í Loftkastalanum
á sínum tíma, sér í lagi með
laginu Á morgun. Árið 2011 hlaut
hann fótboltastyrk við Academy
of Art University í San Francisco.
Einnig vann hann til fjölda verð-
launa í fimleikum og hefur spilað
knattspyrnu.
Bíódagar eða bíladagar?
Örvar Jens Arnarsson fór eftir-
minnilega með hlutverk Tómasar
í kvikmyndinni Bíódagar sem
kom út árið 1994. Þá var hann
rétt um tíu ára gamall en leiklist-
aráhuginn vék síðar fyrir öðru.
Örvar er menntaður viðskipta-
fræðingur í dag og hefur starfað
hjá Zo-On Iceland, Latabæ og
Budget-bílaleigu.
Úr dúfu í fjárfestingar
Hlutverk Benjamíns dúfu
fylgdi Sturlu Sighvatssyni
langt fram að fullorðinsár-
um. Sturla kom einnig fram í
kvikmyndunum Skýjahöllin
og 101 Reykjavík og fór með
hlutverk Emils í Kattholti í
langlífri sýningu Þjóðleik-
hússins árið 1992. Á síðari
árum lagði hann leiklistina
til hliðar og stundaði nám í
viðskiptalögfræði og starfar
í dag við fasteignaþróun og
fjárfestingar.
Leiðsögn í London
Sigurbjörg Alma Ingólfsdóttir
heillaði marga íslenska kvik-
myndagesti upp úr skónum
þegar hún lék í barna- og
fjölskyldumyndinni Regínu. Á
unglingsárunum hóf hún leik-
listarnám við Rose Bruford
College í London og tók upp
erlenda sviðsnafnið Siddý
Holloway. Á endanum vék
leiklistin fyrir leiðsögumanna-
starfi fyrir London Transport
Museum.
Á þessum degi,
17. janúar
1929 – Stjáni blái var afhjúpaður í
fyrsta sinn í teiknimyndablaði.
1922 – Bandaríska leikkonan Betty
White er fædd.
1945 – Nasistar byrjuðu að tæma
Auschwitz-útrýmingarbúðirnar.
1975 – Bob Dylan gaf út breiðskífuna
Blood on the Tracks.
1991 – Heklugos, hið fjórða á 20. öld,
hófst og stóð í rúmar 7 vikur.
Fleyg orð
„Mælikvarði velgengninnar
getur oltið á öfundsýki
hinna uppreisnargjörnu.“
– Salvador Dali
FRAMTÍÐIN MÆTIR
TIL ÍSLANDS
n Erlent fyrirtæki kannar möguleika á geimskotum frá Íslandi
n Ólíklegt að mannaðar ferðir verði farnar héðan
A
ðilar frá
frumkvöðlafyrirtækinu
Skyrora hafa dvalið
á Íslandi undanfarið
til að skoða möguleika á að
skjóta eldflaugum frá Íslandi og
kanna hæfni nýrra eldflauga.
Líta þeir til Langaness í þessum
tilraunum sínum, en markmið
Íslandsferðarinnar er einnig til
að mynda og styrkja tengsl við
íslensk fyrirtæki og stofnanir sem
tengjast geimiðnaðinum. Vonir
standa til að ljúka þremur smærri
tilraunaskotum frá Íslandi innan
tólf mánaða, en starfsemi Skyrora
var kynnt á blaðamannafundi
í gær undir handleiðslu
Geimvísinda- og tækniskrifstofu
Íslands, Space Iceland.
Einn af stöðunum sem
forsvarsmenn Skyrora hafa
heimsótt hér á landi er
Húsavík og tók Örlygur Hnefill
Örlygsson þar á móti þeim.
Örlygur er sérfræðingur í
könnunarsögunni, áhugamaður
um geimvísindi og stofnandi
Könnunarsögusafnsins. Þá er
hann einnig stofnandi Iceland
GeoSpace, sem sérhæfir sig í
þjálfun geimfara og þeirra sem
hafa áhuga á að leggja það starf
fyrir sig. Hann fagnar komu
Skyrora til landsins.
„Það var gríðarlega áhugavert
að heyra þeirra sýn fyrir Ísland,“
segir Örlygur er blaðamaður DV
nær tali af honum stuttu eftir
heimsókn Skyrora á Húsavík.
„Þetta er fyrirtæki sem er búið að
sýna sína getu mjög vel og er með
fjármögnun. Maður hittir á alls
konar fugla í þessum bransa og
margir oft með háleit markmið,
sem maður verður að vera með í
geimiðnaðinum. En Skyrora
er traust fyrirtæki,“ bætir
hann við. Hann segir
geimiðnaðinn vera stærri
en margir halda og að
hann snúist ekki aðallega
um að kanna geiminn
heldur einnig að koma
til dæmis gervitunglum
fyrir úti í geim, líkt og
Skyrora áformar, til að
kanna jörðina betur. Því
gæti iðnaður eins og
landbúnaður og sjávarútvegur
nýtt sér þessa tækni.
„Þetta er vaxandi geiri á
Íslandi og er það í rauninni því
það eru fleiri sem átta sig á því að
þeir hafa praktískt not af gögnum
sem koma úr þessu.“
Umhverfisvænna eldsneyti
Mikil orka og eldsneyti fer
í geimskot og því hljóta
spurningar að vakna um
kolefnisfótspor vegna aukinnar
umhverfisvitundar í heiminum.
Skyrora leggur mikla áherslu
á umhverfismál og hlaut
bresku GO:TECH verðlaunin
2019 fyrir nýtingu og þróun
á umhverfisvænni tækni.
Robin Hague, verkfræðingur á
þróunarsviði fyrirtækisins, segir
fyrirtækið hafa háleit markmið í
umhverfismálum.
„Okkar markmið er að
þróa eldflaugar þar sem
kolefnisfótsporið er í lágmarki.
Þannig viljum við sýna ábyrgð
gagnvart umhverfinu sem og
komandi kynslóðum.“
Örlygur tekur undir það.
„Bæði er
eldsneytið miklu
umhverfisvænna en það sem
gengur og gerist í þessum bransa,
það er ekki jafn kraftmikið og
mörg önnur efni en það er miklu
stöðugra og skilur eftir miklu
minna fótspor. Hitt er síðan það
að þeir reyna að endurnýta eins
mikið og þeir geta úr þessum
þrepum sem þeir nota til að koma
flaugum á braut í seinni ferðir.“
Engar geimferðir fyrir
almenning
Örlygur hefur unnið þétt með
Space Iceland síðan klasinn var
stofnaður af aðilum geimvísinda-
og tæknigeirans á Íslandi í fyrra.
Meðal þess sem klasinn hefur
lagt áherslu á er að Ísland gerist
aðili að Geimvísindastofnun
Evrópu. Alþingi samþykkti
að kanna möguleika á aðild
árið 2016 og segir Örlygur það
mikilvægt vísindasamfélaginu
að ganga inn í sambandið sem
allra fyrst, ekki síst vegna þess
hve mikla verðmætasköpun það
gæti haft í för með sér. Þá eru
miklir atvinnumöguleikar í
geimiðnaðinum. Örlygur
segir ljóst að Skyrora fái
að skjóta hér upp litlum
eldflaugum. Varðandi
stærri geimför verður
tíminn að leiða í ljós
hvernig þróun á því
gengur, en slíkar stórtækar
aðgerðir kalla á betri
innviði í geimiðnaðinum
á Íslandi. Hvað varðar
mannaðar geimferðir
frá Íslandi telur Örlygur litla
möguleika á því.
„Ég sé það ekki í nálægri
framtíð. Ísland hefur marga kosti
hvað gervihnattaskot snertir út af
brautum sem liggja um pólana.
Það er eitt af þeim tækifærum
sem okkar norðlæga staða býður
upp á. Ísland gæti leikið töluvert
hlutverk í gervihnattaskotum á
heimsvísu og það er ánægjulegt
að fyrirtæki eins og Skyrora komi
hingað og kanni möguleika á
því að eigin frumkvæði,“ segir
hann, en mannaðar geimferðir
fyrir almenning njóta sívaxandi
vinsælda. Þar hefur Richard
Branson verið innsti koppur í
búri, en slíkar ferðir eru ekki á færi
allra, enda kosta þær morðfjár,
allt frá nokkrum milljónum upp
í milljarða.
„Slíkar ferðir verða alltaf dýrari
en þessi markaður er að opnast,“
segir Örlygur. En kitlar það hann
ekkert að safna peningum og
kaupa sér ferð út í geim? „Jú,
eigum við ekki að segja það?“
segir hann og hlær. n
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is