Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 34
Ferðafélag Íslands 17. janúar 2020KYNNINGARBLAÐ
Viðtal við Sigrúnu Valbergsdóttur
Sígildar ferðir og nýjar í bland, dagsferðir, helgarferðir og sumarleyfisferðir,
lýðheilsuverkefni, fjallaverkefni,
hreyfihópar, Ferðafélag barnanna
og FÍ Ung. Það eiga allir að geta
fundið ferðir við sitt hæfi.” Segir
Sigrún Valbergsdóttir formaður
ferðanefndar FÍ um nýútkomna
Ferðaáætlun FÍ 2020.
Ferðaáætlun Ferðafélags Íslands
2020 er komin út hefur verið
dreift til félagsmanna og einnig
birt á heimasíðu FÍ, www.fi.is . En
það er kannski ekki á allra vitorði
hvernig ferðaáætlunin verður til. Við
leituðum til Sigrúnar Valbergsdóttur,
formanns Ferðanefndar FÍ, til að
forvitnast um hvert ferlið er.
„Það er öflugt teymi sem kemur
að því að setja saman Ferðaáætlun
FÍ. Teymið samanstendur af sjö
manna Ferðanefnd og starfsfólki
skrifstofunnar sem heldur utan ferðir
og verkefni félagsins. Þetta teymi er
gríðarlega reynslumikið og víðförult
og hefur því góða yfirsýn og þekkingu
á landinu öllu, ásamt öllum okkar
fararstjórum sem leiða ferðirnar.“
Tillögur koma úr ýmsum áttum
Hún segir deildir Ferðafélagsins
um allt land skila sínum tillögum
að áliðnu hausti á sama tíma og
Ferðanefndin er að ljúka störfum. Þá
er dagskrá Ferðafélags barnanna
og Ferðafélag unga fólksins einnig
tilbúin og svo eru það fjallaverkefnin
og hreyfihóparnir.
„Fjallaverkefnin, lýðheilsuverkefnin
og hreyfihóparnir hafa sína föstu
umsjónarmenn sem vinna þétt
með skrifstofunni. Við byrjum þessa
vinnu um leið og sumarvertíðinni
er að ljúka, þá koma í ljós viðtökur
áætlunar síðasta árs og það er
í raun það fyrsta sem lagt er til
grundvallar fyrir næstu áætlun.
Auk eigin hugmynda leitum við eftir
tillögum frá fararstjórum og oft
berast tillögar að ferðum frá félögum
í FÍ. Þetta er alltaf jafn spennandi
vinna og sumarið er ekki búið þegar
plönin fyrir næsta sumar verða til.“
Sumar ferðir eru sígildar
Sigrún segir áherslurnar geta verið
nokkuð breytilegar en þó séu sígildar
og vinsælar ferðir alltaf endurteknar
eins og á Hornstrandir, í Lónsöræfi
og að sjálfsögðu Laugavegsgöngur.
Þá eru einnig nokkrar dagsferðir
sígildar eins og Leggjabrjótur á 17.
júní og Síldarmannagötur að hausti.
„Svo eru geysivinsælar
fjallaskíðaferðir, ekki alltaf þó á
sömu svæði og sama má segja um
Sögugöngurnar sem eru í áætluninni,
en eru alltaf á nýjum slóðum.“
Sigrún bendir líka á að á meðan
sum landssvæði komist í tísku detti
önnur út og að þau fylgist vel með því.
Kostnaður við ferðirnar skiptir máli
sem og fjölbreytni
„Við reynum að hafa ferðirnar eins
hagstæðar og hægt er, minnka trúss
og annað sem hleypir upp kostnaði.
Við horfum til þess að allt landið er
undir í þessari áætlun og sömuleiðis
fylgjumst við vel með þegar út
koma bækur með leiðarlýsingum á
svæðum sem lítið hefur verið horft
til. Svo eru félagar í FÍ á öllum aldri
og það þarf að vera mikil fjölbreytni
i ferðaframboðinu. Allt frá léttum
dagsferðum yfir í fjögurra skóa
langar sumarleyfisferðir, þar sem
gengið er með allt á bakinu og gist
í tjöldum yfir í ferðir með rútu þar
sem gist er í uppbúnum rúmum á
gistihúsum og allt þar á milli.“
Nýjungar nauðsynlegar
„Það er alger nauðsyn að bjóða upp
á nýjungar og á það leggjum við mikla
áherslu. Það eru yfirleitt 30-40% nýjar
ferðir í áætluninni hverju sinni.“