Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 4
4 17. janúar 2020FRÉTTIR
Það er
staðreynd að …
11 ára gömul stúlka átti hugmyndina
að því að nefna plánetuna Plútó eftir
rómverska guði undirheima.
Jack Daniel, stofnandi viskísins fræga,
lést eftir að hafa sparkað í skáp. Hann
braut á sér tána og fékk sýkingu í
kjölfarið.
Við fæðingu eru pöndubirnir smærri
en mýs.
Þú brennir kaloríur á því að standa
kyrr.
Hægt er að fá allt að 25 ára fang-
elsisvist fyrir að skera kaktusa í
Arizona-ríki í Bandaríkjunum.
Rekstrarumsjón ehf. • Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði • S: 571 6770 • www.rekstrarumsjon.com • umsjon@rekstrarumsjon.com
LÁTIÐ OKKUR UM REKSTUR
HÚSFÉLAGSINS
Við sérhæfum okkur í umsjón með rekstri húsfélaga
og bjóðum trausta og faglega þjónustu á góðu verði
Hafðu samband og fáðu tilboð strax í dag!
Hver er
hann
n Hann er fæddur
árið 1949 í Reykjavík.
n Hann lærði lækn-
isfræði við Háskóla
Íslands.
n Hann útskrifaðist þaðan árið
1976.
n Hann var prófessor við Harvard-
háskóla frá 1993 til 1997.
n Hann er með um 7 milljónir
króna á mánuði.
SVAR: KÁRI STEFÁNSSON
ÓSÁTT VIÐ
„ÓVIÐEIGANDI“
LÍKAMSLEIT
n Sakar starfsmann um gróft áreiti n Bíður enn svara frá Isavia
M
ér fannst þetta veru-
lega óþægilegt og alger-
lega ástæðulaust,“ seg-
ir Helga Waage, en hún
hefur sent opið bréf á forsvars-
menn Isavia vegna grófs áreitis
sem hún telur sig hafa orðið fyrir
við öryggisleit í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar.
Helga er búsett í Bandaríkjun-
um en hún var á leið í flug frá Ís-
landi þann 6. janúar síðastliðinn.
Opna bréfið birtir Helga á Face-
book-síðu sinni. Í samtali við
DV kveðst Helga ekki vilja tjá sig
nánar um atvikið að svo stöddu
en aðspurð segist hún ekki hafa
fengið nein viðbrögð við bréfinu
frá forsvarsmönnum Isavia. Hún
bíður því enn svara. Hún vek-
ur athygli á að erfitt hafi verið að
finna viðeigandi tölvupóstfang til
að koma kvörtuninni á framfæri.
„Þannig að ég endaði á að senda
þetta á einhverju formi á vefsíð-
unni þeirra og finnst líklegt að
þeir „pulli“ „við heyrðum ekkert
af þessu“. Ég gaf þeim alveg sólar-
hring áður en ég póstaði þessu á
Facebook,“ segir Helga.
Hér má lesa bréf Helgu í heild
sinni:
Ég var að fara í gegnum öryggi-
stékk á Leifsstöð og lenti í því –
eins og iðulega – að leitarhliðið
bíbbaði á mig.
Það kom starfskona til að leita
á mér og ég sagði kurteislega (eins
og svo oft áður) að þau ættu nú að
laga stillinguna á hliðinu þannig
að brjóstahaldarar triggeruðu
ekki leit.
Hún brást við því með því að
strjúka mér vandlega um brjóstin,
og klípa aðeins í leiðinni. Hún
strauk með opnum lófum en ekki
handarbakinu eins og tíðkast
annars staðar.
Mér fannst þetta verulega
óþægilegt og algerlega ástæðu-
laust.
Ég flýg mikið, ca 15 sinnum á
ári. Keflavíkurflugvöllur er eini
flugvöllurinn þar sem ég lendi
nánast alltaf í auka-tékki og þar
sem líkamsleit fer fram á svona
óviðeigandi máta.
Helga bendir jafnframt fólki á
að fá ferðafélaga sinn til að vera
viðstaddan öryggisleit til að kom-
ast hjá óþægilegum uppákomum
á borð við þessa.
Fjölmargir hafa ritað
athugasemd undir færsluna og
hvetja Helgu til að taka málið
lengra. Í athugasemd undir færsl-
unni segir Helga að hún hafi verið
„konan sem sat og skældi á Saga
Lounge“ eftir atvikið.
Þingforseti ósáttur
Í nóvember 2009 kvartaði þáver-
andi forseti Alþingis, Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir, yfir því
að hafa verið tekin í líkamsleit
í Leifsstöð þótt öryggishlið hafi
ekki gefið frá sér viðvörunarhljóð.
Þetta kom fram í Fréttablaðinu á
sínum tíma.
„Ásta og fleiri fóru utan
sunnudaginn 1. nóvember í op-
inbera heimsókn til Króatíu í
boði þingsins þar. Eins og aðrir
fór Ásta úr jakka og skóm og gekk
á sokkaleistunum í gegnum ör-
yggishlið í Leifsstöð. „Það pípti
ekkert í hliðinu en ég var tekin
til hliðar og leitað á mér hátt og
lágt. Ég gerði enga athugasemd
við það en spurði hvort þetta væri
venja þegar pípir ekki í neinu.
Mér var sagt að þetta væri stund-
um gert,“ segir þingforsetinn og
ítrekar að öryggisverðir í Leifsstöð
hafi einungis verið að sinna sínu
starfi. „Það er virðingarvert og
sjálfsagt að það sé leitað vel áður
en fólk fer í flugvélar en þetta kom
mér bara svolítið á óvart.“
Í samtali við Fréttablaðið sagði
Friðþór Eydal hjá Keflavíkurflug-
velli ohf. að alls ekkert óvenjulegt
væri við það að leitað væri á fólki
þótt öryggishlið hafi ekki pípt á
það. „Hér eru gerðar alls konar
reglubundnar handahófsúttekt-
ir.“
Blaðamaður leitaði viðbragða
hjá Isavia en svör bárust ekki áður
en blaðið fór í prentun. n
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is