Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 48
48 17. janúar 2020
SAKAMÁL
F
rederick Henry Seddon hét
maður sem bjó í London
í upphafi 20. aldar. Þegar
þessi saga hefst var herra
Seddon 40 ára og var forstöðu-
maður London and Manchester
Industrial Assurance Company
(núna London and Manchester
Group Plc.).
Seddon bjó í stóru húsi í Toll-
ington Park í Islington ásamt eig-
inkonu sinni, Margaret, fimm
börnum þeirra hjóna og föður
sínum, sem var kominn á efri ár.
Efnaður leigjandi
Í júlí árið 1910 ákvað Seddon að
taka inn leigjanda, piparjúnku
að nafni Eliza Mary Barrow, 49
ára, og einstaklega viðskotaill og
ógeðfelld í umgengni.
Frederick Henry lét það ekki á
sig fá, enda hafði hann um mikil-
vægari hluti að hugsa. Þannig var
nefnilega mál með vexti að fröken
Barrow var ágætlega fjáð því hún
átti 4.000 sterlingspund í reiðufé,
gulli, verðbréfum og fasteignum.
Vafasamur samningur
Ástæða þess að fröken Barrow
gerðist leigjandi hjá herra Seddon
var sú að henni hafði, engum til
furðu, sinnast við frændur sína
sem hún hafði búið með. Seddon
var ekkert að tvínóna við hlutina,
því neyta skal meðan á nefinu
stendur, eins og sagt er.
Innan nokkurra mánaða hafði
Seddon komist yfir öll auðæfi
frökenar Barrow, gegn vikuleg-
um afborgunum upp á þrjú sterl-
ingspund.
Krampi og almennur krankleiki
En Seddon sá eftir hverju penníi
sem hann þurfti að greiða fröken
Barrow og hann ákvað því að losa
sig við þessar vikulegu afborgan-
ir – með því að losa sig við lánar-
drottininn.
Sem fyrr tvínónaði Seddon
ekki við hlutina og 1. september
1911 kvartaði fröken Barrow sár-
an yfir magakrampa, steinsmugu
og almennum krankleika.
Læknir hennar skrifaði upp
á hinar ýmsu mixtúrur og leit
reglulega til hennar næsta hálfa
mánuðinn.
Rukkaði fyrir viðskiptin
Árla morguns 14. september til-
kynnti Seddon lækninum að frö-
kenin hefði gefið upp öndina og
gaf læknirinn út dánarvottorð;
banamein var niðurgangur af
völdum alvarlegrar sýkingar.
Frederick Henry Seddon lét
síðan hola fröken Barrow nið-
ur meðal sótsvarts almennings í
Islington-kirkjugarðinum og kór-
ónaði athöfnina með því að krefja
útfararstjórann um þóknun fyr-
ir að hafa fært honum þessi við-
skipti.
Frændur fyllast grunsemdum
Dauði frökenar Barrow hafði
gjörsamlega farið fram hjá frænd-
um hennar og það var ekki fyrr en
annar þeirra ákvað að heimsækja
hana sem þeir fengu vitneskju
um það allt saman.
Eðli málsins samkvæmt spurði
frændinn um eignir hennar og
Seddon fullvissaði hann um að
samkvæmt afborgunarskilmálum
hefðu allar eignir frökenar Bar-
row runnið til hans.
Frændanum fannst þó svör
Seddon helst til loðin og leitaði
því til yfirvalda og sagðist telja
að maðkur væri í mysunni hvað
dauða frænku sinnar áhrærði.
Hjónin handtekin
Það varð úr að lík frökenar Bar-
row var grafið upp og rannsakað
og fundust í því leifar af arseniki.
Herra Seddon var handtekinn 4.
desember og ákærður fyrir morð.
Frú Seddon var síðan einnig
handtekin og ákærð fyrir slíkt hið
sama.Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
AUÐUR, EITUR OG AFTAKA
n Herra Seddon gerði samning sem hann hugðist ekki standa við n Fröken Barrow varð að deyja n Upp komast svik um síðir
„Ég lýsi
því yfir,
frammi fyrir hin-
um mikla skap-
ara alheimsins,
að ég er saklaus.
Í dómsal Seddon (í stúkunni til vinstri) reyndi að
höfða til dómarans, en þeir voru báðir frímúrarar.