Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 24
24 FÓKUS 17. janúar 2020
Dauðvona Laddi og Bubbi leikur sjálfan sig
Fjölmargir íslenskir sjónvarpsþættir og bíómyndir líta dagsins ljós árið 2020
Í
slenska kvikmynda- og sjónvarpsárið nýja er komið
í gang og gaf kvikmyndin Gullregn frá Ragnari Braga-
syni tóninn fyrir þann hafsjó af íslensku efni sem bíð-
ur landsmanna. Fjölbreytni virðist vera í fyrirrúmi þetta
árið og er útlit fyrir að eitthvað sé í boði fyrir hvern og einn.
Þetta er brot af því helsta sem landsmenn mega vænta á
skjánum, stóra sem smáa.
Kvikmyndin Alma er úr smiðju
Kristínar Jóhannesdóttur, sem
skrifar handritið og leikstýrir.
Myndin er örlagagasaga ungrar
konu sem er lokuð inni á réttargeð-
deild eftir að hafa játað á sig morð
á kærasta sínum án þess þó að
muna eftir þeim atburði. Eftir sjö
ár berast þær fréttir að kærastinn
sé sprelllifandi og á leið til lands-
ins. Hún ákveður að drepa hann
þar sem hún er hvort sem er búin
að afplána dóm fyrir glæpinn. Þau
Snæfríður Ingvarsdóttir, Snorri
Engilbertsson, Kristbjörg Kjeld og
Hilmir Snær Guðnason eru á með-
al þeirra sem skjáinn prýða. Alma
er væntanleg í febrúar.
Það er erfitt að kenna gömlum hundum að sitja, en
hér er sagt frá vinahópi sem fer í sinn árlega veiði-
túr. Brátt þróast mál þannig að allt fer á versta veg,
eins og sæmir í góðri framvindu. Síðasta veiðiferðin
skartar kunnuglegum andlitum og ættu þau að vekja
kátínu hjá þeim sem tengja sig við umrædda hrak-
fallabálka sögunnar. Þess má geta að Bubbi Morthens
leikur sjálfan sig í myndinni.
Jarðarförin mín er gráglettin
gamanþáttaröð þar sem
Þórhallur Sigurðsson, sjálf-
ur Laddi, leikur mann sem
greinist með ólæknandi
heilaæxli sama dag og hann
kemst á eftirlaun. Andspæn-
is dauðanum áttar hann sig
á því að hann hefur lifað
fánýtu lífi og sóað dýr-
mætum tíma, áratugum,
í tilgangsleysi. Skuggahverfið er samstarfsverkefni þeirra Jóns Gúst-
afssonar og Karolinu Leqicka. Í þessum dramatrylli
segir frá ungri konu sem erfir hús ömmu sinnar sem
hún hitti aldrei, í borg sem hún hefur aldrei séð. Í
trássi við vilja móður sinnar leggur hún í ferðalag til
að ná skilningi á sársauka fortíðarinnar, en með þeirri
ákvörðun veldur hún uppnámi og róti sem hún kemst
ekki lifandi frá nema með aðstoð látinna forfeðra og
-mæðra.
María og Ingvar búa á afskekktum sveitabæ. Þegar
lítil og óvenjuleg vera kemur inn í líf þeirra verður
breyting á högum þeirra sem færir þeim mikla ham-
ingju um stund. Hamingju sem síðar verður að harm-
leik. Myndinni er leikstýrt af Valdimari Jóhannssyni og
skrifar hann handritið ásamt hinum góðkunna Sjón.
Ný kvikmynd úr smiðju
uppistandarans Sigurð-
ar Antons Friðþjófssonar,
sem gerði kvikmyndirn-
ar Webcam og Snjór og
Salóme. Ekki er vitað mik-
ið um söguþráð myndar-
innar að svo stöddu en
að henni kemur megnið
af teyminu sem vann að
ofannefndum myndum.
Með hlutverk fara þau
Sonja Rut Valdin, Pétur
Óskar Sigurðsson, Anna
Hafþórsdóttir og Júlí
Heiðar Halldórsson.
Ólafur Darri Ólafsson fer með aðalhlutverkið í
Ráðherranum, nýrri þáttaröð sem framleidd er af
Sagafilm. Þegar forsætisráðherra greinist með geð-
hvarfasýki þarf aðstoðarmaður hans að leggja bæði
stöðugleika ríkisins og einkalíf sitt að veði til þess að
halda sjúkdómnum leyndum fyrir þjóðinni. Fram-
leiðslukostnaður þáttanna er um 675 milljónir króna.
Handritaskrif eru í höndum Birkis Blæs Ingólfssonar,
Bjargar Magnúsdóttur og Jónasar Margeirs Ingólfs-
sonar.
Magaluf er gaman-
þáttaröð í leikstjórn
Magnúsar Leifsson-
ar og gerist árið 1979.
Í aðalhlutverki verður
Steindi Jr. sem leikur
plötusnúð á skemmti-
staðnum Hollywood
sem gerist fararstjóri í
Spánarferð til að endur-
heimta æskuástina.
Ragnar Bragason skrif-
aði handritið ásamt
Magnúsi og Snjólaugu
Lúðvíksdóttur.
Magaluf
Dýrið
Ráðherrann
Skuggahverfið
Þar sem vondir
verða að vera
Síðasta veiðiferðin
Jarðar-
förin mín
Alma