Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Side 24
24 FÓKUS 17. janúar 2020 Dauðvona Laddi og Bubbi leikur sjálfan sig Fjölmargir íslenskir sjónvarpsþættir og bíómyndir líta dagsins ljós árið 2020 Í slenska kvikmynda- og sjónvarpsárið nýja er komið í gang og gaf kvikmyndin Gullregn frá Ragnari Braga- syni tóninn fyrir þann hafsjó af íslensku efni sem bíð- ur landsmanna. Fjölbreytni virðist vera í fyrirrúmi þetta árið og er útlit fyrir að eitthvað sé í boði fyrir hvern og einn. Þetta er brot af því helsta sem landsmenn mega vænta á skjánum, stóra sem smáa. Kvikmyndin Alma er úr smiðju Kristínar Jóhannesdóttur, sem skrifar handritið og leikstýrir. Myndin er örlagagasaga ungrar konu sem er lokuð inni á réttargeð- deild eftir að hafa játað á sig morð á kærasta sínum án þess þó að muna eftir þeim atburði. Eftir sjö ár berast þær fréttir að kærastinn sé sprelllifandi og á leið til lands- ins. Hún ákveður að drepa hann þar sem hún er hvort sem er búin að afplána dóm fyrir glæpinn. Þau Snæfríður Ingvarsdóttir, Snorri Engilbertsson, Kristbjörg Kjeld og Hilmir Snær Guðnason eru á með- al þeirra sem skjáinn prýða. Alma er væntanleg í febrúar. Það er erfitt að kenna gömlum hundum að sitja, en hér er sagt frá vinahópi sem fer í sinn árlega veiði- túr. Brátt þróast mál þannig að allt fer á versta veg, eins og sæmir í góðri framvindu. Síðasta veiðiferðin skartar kunnuglegum andlitum og ættu þau að vekja kátínu hjá þeim sem tengja sig við umrædda hrak- fallabálka sögunnar. Þess má geta að Bubbi Morthens leikur sjálfan sig í myndinni. Jarðarförin mín er gráglettin gamanþáttaröð þar sem Þórhallur Sigurðsson, sjálf- ur Laddi, leikur mann sem greinist með ólæknandi heilaæxli sama dag og hann kemst á eftirlaun. Andspæn- is dauðanum áttar hann sig á því að hann hefur lifað fánýtu lífi og sóað dýr- mætum tíma, áratugum, í tilgangsleysi. Skuggahverfið er samstarfsverkefni þeirra Jóns Gúst- afssonar og Karolinu Leqicka. Í þessum dramatrylli segir frá ungri konu sem erfir hús ömmu sinnar sem hún hitti aldrei, í borg sem hún hefur aldrei séð. Í trássi við vilja móður sinnar leggur hún í ferðalag til að ná skilningi á sársauka fortíðarinnar, en með þeirri ákvörðun veldur hún uppnámi og róti sem hún kemst ekki lifandi frá nema með aðstoð látinna forfeðra og -mæðra. María og Ingvar búa á afskekktum sveitabæ. Þegar lítil og óvenjuleg vera kemur inn í líf þeirra verður breyting á högum þeirra sem færir þeim mikla ham- ingju um stund. Hamingju sem síðar verður að harm- leik. Myndinni er leikstýrt af Valdimari Jóhannssyni og skrifar hann handritið ásamt hinum góðkunna Sjón. Ný kvikmynd úr smiðju uppistandarans Sigurð- ar Antons Friðþjófssonar, sem gerði kvikmyndirn- ar Webcam og Snjór og Salóme. Ekki er vitað mik- ið um söguþráð myndar- innar að svo stöddu en að henni kemur megnið af teyminu sem vann að ofannefndum myndum. Með hlutverk fara þau Sonja Rut Valdin, Pétur Óskar Sigurðsson, Anna Hafþórsdóttir og Júlí Heiðar Halldórsson. Ólafur Darri Ólafsson fer með aðalhlutverkið í Ráðherranum, nýrri þáttaröð sem framleidd er af Sagafilm. Þegar forsætisráðherra greinist með geð- hvarfasýki þarf aðstoðarmaður hans að leggja bæði stöðugleika ríkisins og einkalíf sitt að veði til þess að halda sjúkdómnum leyndum fyrir þjóðinni. Fram- leiðslukostnaður þáttanna er um 675 milljónir króna. Handritaskrif eru í höndum Birkis Blæs Ingólfssonar, Bjargar Magnúsdóttur og Jónasar Margeirs Ingólfs- sonar. Magaluf er gaman- þáttaröð í leikstjórn Magnúsar Leifsson- ar og gerist árið 1979. Í aðalhlutverki verður Steindi Jr. sem leikur plötusnúð á skemmti- staðnum Hollywood sem gerist fararstjóri í Spánarferð til að endur- heimta æskuástina. Ragnar Bragason skrif- aði handritið ásamt Magnúsi og Snjólaugu Lúðvíksdóttur. Magaluf Dýrið Ráðherrann Skuggahverfið Þar sem vondir verða að vera Síðasta veiðiferðin Jarðar- förin mín Alma

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.