Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 33
Ferðafélag Íslands17. janúar 2020 KYNNINGARBLAÐ að auki og margir eru jafnvel ágætir til gangs því til viðbótar. Flug er mikilvæg aðlögun sem gefur fuglum forskot í lífsbaráttunni. Flug auðveldar fuglunum t.d. að forðast hættur og ferðast milli fjarlægra staða í leit að betri skilyrðum en sumir hafa talað um að skilyrði fyrir fugla hafi snarversnað á Hornströndum með vernd refsins. „Ég hafði heyrt hryllingssögur af aldauða fugla á Hornströndum vegna refanna en þessar sögur áttu ekki við nein rök að styðjast. Það kom mér því mjög á óvart hversu mikið fuglalíf er þrátt fyrir allt á svæðinu,“ segir Svenni. Hann ætti að vita hvað hann syngur því hann ferðast afar mikið í tengslum við fuglana og hefur myndað alla varpfugla Íslands og leggur kapp á að mynda að auki alla flækinga sem hingað koma. Sveinn nýtur að auki trausts vísindamanna við Háskóla Íslands sem hafa hann með í verkefnum en hann hefur myndað hátt á þriðja hundrað flækinga til þessa og er rétt að byrja. „Áhugi minn á fuglum kviknaði þegar ég var sex ára og sá fugla í Háaleitishverfinu sem eru engum öðrum líkir og ekki hægt að rugla við neina aðra tegund,“ segir Svenni. Hann varð bergnuminn og linnti ekki látum fyrr en hann hafði flett upp í bók sem fáanleg var á bókasafni Hvassaleitisskóla. Hann nam staðar á síðu þar sem skrautfuglinn silkitoppa blasti við en hún sést hér oft á flækingi. Fuglar geta flogið vegna þess að þeir eru léttir og hafa fjaðrir og langa framlimi sem mynda vængi. Það að geta flogið hefur gríðarlega kosti eins og til dæmis að geta yfirstigið gríðarlegar landfræðilegar hindranir og numið afskekkt búsvæði. Bein fugla eru að auki hol til léttingar fyrir flugið. „Frelsi, heillar mig mest við fuglanna, líf farfuglsins, ótrúleg aðlögunarhæfni þeirra og lífsbaráttan öll,“ segir Svenni. „Fjölbreytileikinn er líka alveg stórkostlegur enda eru um tíu þúsund tegundir í heiminum. Fuglarnir tengja mann við svo ótrúlega margt, náttúru, land, sjó, sögu og bara lífið í heild sinni. Þeir færa manni hreinlega trú á lífið og líka það að bera virðingu fyrir því.“ Hornstrandir bera birtu inn í skammdegið Þeir mágar segja að ferðin á Hornstrandir fari með þeim inn í skammdegið sem sólarglenna sem veki með þeim yl í allan vetur. „Það snart okkur djúpt,“ segir Svenni, „að vera laus frá umheiminum í smátíma. Allt þetta áreiti sem fylgir síma, interneti og samfélagsmiðlum, það hreinlega hvarf og við tók óspillt náttúra og spennandi og heillandi saga sem tilheyrir löngu liðinni fortíð. Sögur fararstjóranna af mannlífinu voru algjör snilld.“ Rüdiger tekur heilshugar undir og segir Hornstrandir einstakar en Ísland allt sömuleiðis. „Hér er allt til alls, hafið, svartar og gylltar strandir, fjöll, fjörur, jöklar, eldfjöll, eyðisandar, jökullón, hreint vatn og loft sem verður sífellt sjaldgæfara í okkar heimi, og útsýni með ólíkindum. Það má svo ekki gleyma algerlega frábærum fararstjórum í Hornstrandaferðinni og ferðafélögunum öllum sem snertu okkur hver með sínu lagi, enda er hver manneskja frábær alveg á sinn einstaka hátt.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.