Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 40
Iðnaður er unaður 17. janúar 2020KYNNINGARBLAÐ
SÚPERBYGG:
Öflugt byggingarfyrirtæki
á Selfossi
Súperbygg hefur verið starfandi í byggingariðnaðinum allt frá árinu 1986. Fyrirtækið
hefur mest unnið í viðhaldi húsa og
nýsmíði sumarhúsa, en einnig tekið
að sér fjölda sérverkefna. „Við sjáum
um alla almenna smíðavinnu og
tökum að okkur verkefni í hvers kyns
nýbyggingum og viðhaldsverkefni.
Þá erum við í góðu samstarfi við
færa rafvirkja, pípulagningamenn,
múrara og málara,“ segir Steinar
Árnason, eigandi Súperbygg.
Lækjarbrekka 10.
Súperbygg er staðsett að
Eyrarvegi 31-33 á Selfossi. „Mest
erum við í því að sinna verkefnum
á Selfossi og í nágrenni. Síðasta
nóvember vorum við að klára að
byggja sumarhús í Grímsnesinu
fyrir Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur. Einmitt núna erum við
að byggja mjög vandað parhús á
Selfossi. Önnur íbúðin er fullbúin
og íbúarnir fluttir inn og hin er stutt
frá því að vera tilbúin.“
Hafðu samband
„Starfsmennirnir eru átta talsins
að jafnaði, en þegar líða tekur
á sumrið er meira að gera hjá
okkur og ráðum við þá til okkar
sumarstarfsmenn til þess að
anna eftirspurn.“ Steinar bætir
við að á veturna er mest að gera
í inniverkum, viðhaldsverkum og
við að setja upp innréttingar í
nýbyggingar. „Núna er hins vegar
góður tími að hafa samband
við okkur ef menn hyggja á
framkvæmdir í sumar. Þegar vorar
fer dagskráin hjá okkur að fyllast
hægt og bítandi fyrir sumarið.
Það er því um að gera að hafa
samband sem fyrst.“
Lækjarbrekka syðri brú.
Súperbygg, Eyravegur 31-33,
Selfossi.
Sími: 845-1500
Nánari upplýsingar má nálgast á
facebooksíðunni Súperbygg.