Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Side 40
Iðnaður er unaður 17. janúar 2020KYNNINGARBLAÐ SÚPERBYGG: Öflugt byggingarfyrirtæki á Selfossi Súperbygg hefur verið starfandi í byggingariðnaðinum allt frá árinu 1986. Fyrirtækið hefur mest unnið í viðhaldi húsa og nýsmíði sumarhúsa, en einnig tekið að sér fjölda sérverkefna. „Við sjáum um alla almenna smíðavinnu og tökum að okkur verkefni í hvers kyns nýbyggingum og viðhaldsverkefni. Þá erum við í góðu samstarfi við færa rafvirkja, pípulagningamenn, múrara og málara,“ segir Steinar Árnason, eigandi Súperbygg. Lækjarbrekka 10. Súperbygg er staðsett að Eyrarvegi 31-33 á Selfossi. „Mest erum við í því að sinna verkefnum á Selfossi og í nágrenni. Síðasta nóvember vorum við að klára að byggja sumarhús í Grímsnesinu fyrir Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur. Einmitt núna erum við að byggja mjög vandað parhús á Selfossi. Önnur íbúðin er fullbúin og íbúarnir fluttir inn og hin er stutt frá því að vera tilbúin.“ Hafðu samband „Starfsmennirnir eru átta talsins að jafnaði, en þegar líða tekur á sumrið er meira að gera hjá okkur og ráðum við þá til okkar sumarstarfsmenn til þess að anna eftirspurn.“ Steinar bætir við að á veturna er mest að gera í inniverkum, viðhaldsverkum og við að setja upp innréttingar í nýbyggingar. „Núna er hins vegar góður tími að hafa samband við okkur ef menn hyggja á framkvæmdir í sumar. Þegar vorar fer dagskráin hjá okkur að fyllast hægt og bítandi fyrir sumarið. Það er því um að gera að hafa samband sem fyrst.“ Lækjarbrekka syðri brú. Súperbygg, Eyravegur 31-33, Selfossi. Sími: 845-1500 Nánari upplýsingar má nálgast á facebooksíðunni Súperbygg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.