Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 16
16 17. janúar 2020FRÉTTIR EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI „AF HVERJU ER VERIÐ AÐ AUKA STRESS OG ÁLAG Á FORELDRA?“ n Leikskólar Reykjavíkur munu loka hálftíma fyrr n Ákvörðunin hefur vakið hörð viðbrögð M eiri hluti skóla- og frí- stundaráðs hefur samþykkt að breyta starfs- tíma leik skóla borg ar inn- ar. Frá og með 1. apríl næstkomandi verða leikskólar Reykjavíkurborgar opnir til klukkan 16.30 í stað 17.00 líkt og hingað til hefur verið. Börn geta dvalið í leikskólanum í níu klukkustundir að hámarki á dag. Er það mat stýrihóps um umbætur og skipulag leikskólastarfs í Reykjavík að „stytting opnunartíma muni draga úr álagi á börn, stjórnendur og aðra starfsmenn og styrkja faglegt starf þar sem skipulag daglegs starfs og mönnun leikskólans verði einfaldari.“ Gefinn verður aðlögunartími að breytingunum sem munu taka gildi 1. apríl 2020. Foreldrum og forsjáraðilum með gildandi dvalarsamninga til kl. 16.45 eða 17.00 er heimilt að sækja um lengri aðlögunarfrest, eða til 1. ágúst 2020, vegna sérstakra aðstæðna. Önnur stór sveitarfélög hafa þegar breytt opnunartíma leikskóla á þennan veg. Þannig er lokunartími leikskóla kl. 16.15 á Akureyri, kl. 16.30 í Reykjanesbæ og Kópavogi og kl. 17.00 eða síðar hjá hinum sveitarfélögunum. Seltjarnarnes er með í athugun að hafa opnunartíma frá 07.30–16.30 og í Hafnarfirði hafa leikskólar heimild til að loka kl. 16.30 ef ekki er þörf á lengri opnun. Í Reykjanesbæ er opnunartími fjögurra af fimm leikskólum kl. 07.45–16.15. Helmingurinn sóttur fyrir klukkan fimm 5.202 börn eru á leikskólum Reykjavíkur. Í skýrslu stýrihópsins kemur fram að af þeim 416 börnum sem eru með dvalarsamning til kl. 16.45 eru 57% sem eru sótt fyrir kl. 16.30 á daginn. 10% eru sótt eftir að dvalartíma þeirra lýkur samkvæmt samningi. Af þeim 416 börnum, sem eru með dvalarsamning til kl. 16.45 á daginn, voru 220 börn sótt fyrir kl. 16.30. Af þeim 521 barni sem er með dvalarsamning til kl. 17.00 eru um 51% sótt fyrir kl. 16.30 á daginn á meðan 25% eru sótt fyrir kl. 16.45 og 24% eru sótt eftir kl. 16.45. „Skammsýni og vitleysa“ Tillagan hefur vakið vægast sagt hörð viðbrögð í samfélaginu undanfarna daga. Hátt í 100 manns hafa nú deilt Facebook-færslu Hildar Ýrar framhaldsskólakennara þar sem hún segist „orðlaus“ yfir málflutningi borgarfulltrúa í tengslum við tillöguna. Hildur segist blessunarlega ekki eiga börn á leikskólaaldri lengur og losni því við að „púsla og fá magasár yfir því að morgundagurinn sé ekki leystur og að kannski missi ég vinnuna af þvi að ég mæti stundum of seint af því að leikskólinn opnar ekki fyrr en korteri áður en ég á að mæta í vinnu í öðrum bæjarhluta“. „Ég hef séð borgarfulltrúa láta sér það um munn fara að við eig- um ekki að nota börnin okkar sem barefli í baráttu okkar fyrir femín- ismanum. En annar borgarfulltrúi segir að stytting leikskólaplássa eigi að þrýsta á styttingu vinnuvikunn- ar. Hvort er það? Má nota þau í bar- áttu eða ekki? Mega kannski bara borgarfulltrúar gera það?“ spyr Hildur Ýr. Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, skrifar á Twitter að þessi breyting muni hafa slæm áhrif á launafólk og bendir til að mynda á þá foreldra sem þurfa að vinna vaktavinnu. Gagnrýnir hún meirihlutann í borginni fyrir að sýna „takmarkaðan vilja til að mæta fjölskyldufólki“. Hún segir að um sé að ræða „óskiljanlega aðgerð“. „Fáir eiga þess kost að yfirgefa vinnu um klukkustund áður en hefðbundnum vinnudegi lýkur. Skert þjónusta mun eflaust koma verst niður á einstæðum foreldrum, vinnandi konum og láglaunafólki,“ segir Hildur. Hildur segir að þetta muni fæla ungar fjölskyldur frá Reykjavík í önnur sveitarfélög og sömuleiðis draga úr framgangi kvenna á vinnumarkaði. „Gæluverkefni hjá gjörsamlega marklausu fólki“ Þá hefur Vigdís Hauksdóttir, odd- viti Miðflokksins í Reykjavík, einnig gagnrýnt breytingarnar harðlega og spyr á Facebook-síðu sinni hvort um aprílgabb sé að ræða. Enn sé verið að þrengja að fjölskyldufólki í Reykjavík. „Hér er ráðist að þeim sem síst skyldi s.s. einstæðum foreldrum – það er ekkert að marka þetta fólk sem stjórnar borginni sem segja á hátíðarstundu að standa með þeim sem verst eru staddir.“ segir hún og kallar breytingarnar „gæluverkefni“ hjá „gjörsamlega marklausu fólki“. Björn Leví Gunnarsson bendir jafnframt á að stytting á þjónustutíma og minni sveigjanleiki fyrir börn og foreldra séu ekki framför. „Ég sagði ekkert um að langur vinnudagur væri góður fyrir börn. Ég er að tala um sveigjanleika í þjónustu þannig að þó barn sé ekki eins lengi í leikskóla þá séu ekki allir í hálf átta til hálf fimm boxi. Hvernig á að púsla því saman við grunnskóla sem byrjar 8.30 hjá systkini?“ „Auka stress og álag á foreldra“ Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður á barn á leikskólaaldri og hún er ein af þeim sem gagnrýnir fyrirhugaðar breytingar. Í færslu á Facebook bendir hún á að breytingar á opnunartíma leikskóla skarist á við opnunartíma grunnskóla, sem skapar vanda fyrir þá foreldra sem eiga fleiri en eitt barn. „Nú opnar skóli sonar míns til dæmis ekki fyrr en klukkan 8 á morgnana og ég vinn eins langt í burtu frá skólum og leikskólum barna minna og hægt er innan borgarinnar. Þegar dóttir mín byrjar á leikskóla, væntanlega í haust, þá þarf ég að koma henni og syni mínum á sína staði áður en ég mæti til vinnu. Ég þarf svo að skila 8 tíma vinnudegi og takast að sækja hana fyrir klukkan 16.30. Sem er ómögulegt. Af hverju er verið að auka stress og álag á foreldra?“ Aðeins 62 börn fullnýta opnunartímann „Við höfum auðvitað skilning á því að öllum breytingum fylgir ákveðið rask,“ segir Skúli Helgason, formaður skóla- og frí stundaráðs og borg ar full trúi Sam fylk ing ar, í sam tali við DV. „Það er ekki síst þess vegna sem við erum að gefa langan aðlögunartíma, fyrir þá sem telja sig þurfa svigrúm. Þetta er auðvitað ekki nema hálftími.“ Skúli segir að settur hafi verið starfs hópur með full trú um leik- skóla stjóra í októ ber síðastliðnum og meðal annars hafi verið kannað hvaða aðgerðir kæmu til greina til að draga úr álagi á börn in og starfs- fólkið. Það hafi verið niðurstaða fulltrúa leikskólastjóranna að umrædd breyting, stytting opnunartímans, bitni ekki á þeim hópi sem telst viðkvæmur, s.s einstæðum foreldrum og láglaunafólki. Það hafi ekki verið sá hópur sem hafi verið að kaupa síðasta hálftímann. „Það er frekar vel stætt fólk sem hefur verið að kaupa þennan tíma til að eiga það uppi í erminni. En er ekki að nýta hann í reynd. Ef við skoðum þann hóp sem er að nýta síðasta hálftímann þá eru ekki nema 62 börn sem nýta vistunartímann alveg til klukkan fimm. Af þeim rúmlega 5.000 sem eru í kerfinu.“ Skúli bendir jafnframt á að foreldrar geti samið við vinnuveitendur um breyttan vinnutíma eða samið við leikskólann um breytingu á dvalarsamning viðkomandi barns. Þannig sé til að mynda hægt að láta barnið byrja daginn fyrr á leikskólanum. „Þeir foreldrar sem komast ekki úr vinnu fyrr en klukkan fimm hljóta að hafa nú þegar þurft að gera ráðstafanir, enda loka leikskólarnir klukkan fimm. Það er engin ein lína í þessu. En ég skil alveg að þetta setji einhverja í ákveðinn vanda.“ n Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.