Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Side 16
16 17. janúar 2020FRÉTTIR
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR
& UNDIRKERFI
„AF HVERJU ER VERIÐ AÐ AUKA
STRESS OG ÁLAG Á FORELDRA?“
n Leikskólar Reykjavíkur munu loka hálftíma fyrr n Ákvörðunin hefur vakið hörð viðbrögð
M
eiri hluti skóla- og frí-
stundaráðs hefur
samþykkt að breyta starfs-
tíma leik skóla borg ar inn-
ar. Frá og með 1. apríl næstkomandi
verða leikskólar Reykjavíkurborgar
opnir til klukkan 16.30 í stað 17.00
líkt og hingað til hefur verið. Börn
geta dvalið í leikskólanum í níu
klukkustundir að hámarki á dag.
Er það mat stýrihóps
um umbætur og skipulag
leikskólastarfs í Reykjavík að
„stytting opnunartíma muni draga
úr álagi á börn, stjórnendur og
aðra starfsmenn og styrkja faglegt
starf þar sem skipulag daglegs
starfs og mönnun leikskólans verði
einfaldari.“
Gefinn verður aðlögunartími
að breytingunum sem munu taka
gildi 1. apríl 2020. Foreldrum
og forsjáraðilum með gildandi
dvalarsamninga til kl. 16.45 eða
17.00 er heimilt að sækja um lengri
aðlögunarfrest, eða til 1. ágúst
2020, vegna sérstakra aðstæðna.
Önnur stór sveitarfélög
hafa þegar breytt opnunartíma
leikskóla á þennan veg. Þannig er
lokunartími leikskóla kl. 16.15 á
Akureyri, kl. 16.30 í Reykjanesbæ
og Kópavogi og kl. 17.00 eða síðar
hjá hinum sveitarfélögunum.
Seltjarnarnes er með í athugun að
hafa opnunartíma frá 07.30–16.30
og í Hafnarfirði hafa leikskólar
heimild til að loka kl. 16.30 ef ekki er
þörf á lengri opnun. Í Reykjanesbæ
er opnunartími fjögurra af fimm
leikskólum kl. 07.45–16.15.
Helmingurinn sóttur fyrir
klukkan fimm
5.202 börn eru á leikskólum
Reykjavíkur. Í skýrslu stýrihópsins
kemur fram að af þeim 416 börnum
sem eru með dvalarsamning til kl.
16.45 eru 57% sem eru sótt fyrir kl.
16.30 á daginn. 10% eru sótt eftir að
dvalartíma þeirra lýkur samkvæmt
samningi. Af þeim 416 börnum,
sem eru með dvalarsamning til kl.
16.45 á daginn, voru 220 börn sótt
fyrir kl. 16.30.
Af þeim 521 barni sem er með
dvalarsamning til kl. 17.00 eru um
51% sótt fyrir kl. 16.30 á daginn á
meðan 25% eru sótt fyrir kl. 16.45
og 24% eru sótt eftir kl. 16.45.
„Skammsýni og vitleysa“
Tillagan hefur vakið vægast sagt
hörð viðbrögð í samfélaginu
undanfarna daga.
Hátt í 100 manns hafa nú
deilt Facebook-færslu Hildar
Ýrar framhaldsskólakennara
þar sem hún segist „orðlaus“
yfir málflutningi borgarfulltrúa í
tengslum við tillöguna.
Hildur segist blessunarlega ekki
eiga börn á leikskólaaldri lengur og
losni því við að „púsla og fá magasár
yfir því að morgundagurinn sé
ekki leystur og að kannski missi ég
vinnuna af þvi að ég mæti stundum
of seint af því að leikskólinn opnar
ekki fyrr en korteri áður en ég á að
mæta í vinnu í öðrum bæjarhluta“.
„Ég hef séð borgarfulltrúa láta
sér það um munn fara að við eig-
um ekki að nota börnin okkar sem
barefli í baráttu okkar fyrir femín-
ismanum. En annar borgarfulltrúi
segir að stytting leikskólaplássa eigi
að þrýsta á styttingu vinnuvikunn-
ar. Hvort er það? Má nota þau í bar-
áttu eða ekki? Mega kannski bara
borgarfulltrúar gera það?“ spyr
Hildur Ýr.
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, skrifar á
Twitter að þessi breyting muni hafa
slæm áhrif á launafólk og bendir til
að mynda á þá foreldra sem þurfa
að vinna vaktavinnu. Gagnrýnir
hún meirihlutann í borginni fyrir
að sýna „takmarkaðan vilja til að
mæta fjölskyldufólki“. Hún segir
að um sé að ræða „óskiljanlega
aðgerð“.
„Fáir eiga þess kost að yfirgefa
vinnu um klukkustund áður en
hefðbundnum vinnudegi lýkur.
Skert þjónusta mun eflaust
koma verst niður á einstæðum
foreldrum, vinnandi konum og
láglaunafólki,“ segir Hildur.
Hildur segir að þetta muni fæla
ungar fjölskyldur frá Reykjavík í
önnur sveitarfélög og sömuleiðis
draga úr framgangi kvenna á
vinnumarkaði.
„Gæluverkefni hjá gjörsamlega
marklausu fólki“
Þá hefur Vigdís Hauksdóttir, odd-
viti Miðflokksins í Reykjavík, einnig
gagnrýnt breytingarnar harðlega
og spyr á Facebook-síðu sinni hvort
um aprílgabb sé að ræða. Enn sé
verið að þrengja að fjölskyldufólki
í Reykjavík.
„Hér er ráðist að þeim sem síst
skyldi s.s. einstæðum foreldrum
– það er ekkert að marka þetta
fólk sem stjórnar borginni sem
segja á hátíðarstundu að standa
með þeim sem verst eru staddir.“
segir hún og kallar breytingarnar
„gæluverkefni“ hjá „gjörsamlega
marklausu fólki“.
Björn Leví Gunnarsson
bendir jafnframt á að stytting
á þjónustutíma og minni
sveigjanleiki fyrir börn og foreldra
séu ekki framför. „Ég sagði ekkert
um að langur vinnudagur væri
góður fyrir börn. Ég er að tala um
sveigjanleika í þjónustu þannig að
þó barn sé ekki eins lengi í leikskóla
þá séu ekki allir í hálf átta til hálf
fimm boxi. Hvernig á að púsla því
saman við grunnskóla sem byrjar
8.30 hjá systkini?“
„Auka stress og álag á foreldra“
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður á barn á leikskólaaldri
og hún er ein af þeim sem
gagnrýnir fyrirhugaðar breytingar.
Í færslu á Facebook bendir hún
á að breytingar á opnunartíma
leikskóla skarist á við opnunartíma
grunnskóla, sem skapar vanda fyrir
þá foreldra sem eiga fleiri en eitt
barn.
„Nú opnar skóli sonar míns
til dæmis ekki fyrr en klukkan 8 á
morgnana og ég vinn eins langt
í burtu frá skólum og leikskólum
barna minna og hægt er innan
borgarinnar. Þegar dóttir mín
byrjar á leikskóla, væntanlega í
haust, þá þarf ég að koma henni og
syni mínum á sína staði áður en ég
mæti til vinnu. Ég þarf svo að skila
8 tíma vinnudegi og takast að sækja
hana fyrir klukkan 16.30. Sem er
ómögulegt. Af hverju er verið að
auka stress og álag á foreldra?“
Aðeins 62 börn fullnýta
opnunartímann
„Við höfum auðvitað skilning á
því að öllum breytingum fylgir
ákveðið rask,“ segir Skúli Helgason,
formaður skóla- og frí stundaráðs
og borg ar full trúi Sam fylk ing ar, í
sam tali við DV. „Það er ekki síst
þess vegna sem við erum að gefa
langan aðlögunartíma, fyrir þá sem
telja sig þurfa svigrúm. Þetta er
auðvitað ekki nema hálftími.“
Skúli segir að settur hafi verið
starfs hópur með full trú um leik-
skóla stjóra í októ ber síðastliðnum
og meðal annars hafi verið kannað
hvaða aðgerðir kæmu til greina til
að draga úr álagi á börn in og starfs-
fólkið. Það hafi verið niðurstaða
fulltrúa leikskólastjóranna
að umrædd breyting, stytting
opnunartímans, bitni ekki á
þeim hópi sem telst viðkvæmur,
s.s einstæðum foreldrum og
láglaunafólki. Það hafi ekki verið
sá hópur sem hafi verið að kaupa
síðasta hálftímann. „Það er frekar
vel stætt fólk sem hefur verið að
kaupa þennan tíma til að eiga
það uppi í erminni. En er ekki að
nýta hann í reynd. Ef við skoðum
þann hóp sem er að nýta síðasta
hálftímann þá eru ekki nema 62
börn sem nýta vistunartímann
alveg til klukkan fimm. Af þeim
rúmlega 5.000 sem eru í kerfinu.“
Skúli bendir jafnframt á
að foreldrar geti samið við
vinnuveitendur um breyttan
vinnutíma eða samið við
leikskólann um breytingu á
dvalarsamning viðkomandi barns.
Þannig sé til að mynda hægt að
láta barnið byrja daginn fyrr á
leikskólanum.
„Þeir foreldrar sem komast ekki
úr vinnu fyrr en klukkan fimm
hljóta að hafa nú þegar þurft að gera
ráðstafanir, enda loka leikskólarnir
klukkan fimm. Það er engin ein lína
í þessu. En ég skil alveg að þetta
setji einhverja í ákveðinn vanda.“ n
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is