Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 39
Iðnaður er unaður 17. janúar 2020 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is MÚR OG TRÖPPUVIÐGERÐIR: Segðu bless við sleipar og illa farnar tröppur I lla farnar útitröppur geta verið mikið lýti á fallegu húsi. Að sama skapi geta illa veðraðar tröppur með brotnum og daufum köntum verið stórhættulegar. Múr og tröppuviðgerðir er fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem sérhæfir sig í tröppuviðgerðum, bæði úti og inni. „Við erum mest í að endurmúra tröppur en tökum líka að okkur ýmsar sprunguviðgerðir, múrun á svalargólfum og önnur smærri múrverk,“ segir Páll Helgi Kristinsson. Mapei gæðamúr Múr og tröppuviðgerðir notar eingöngu steypu frá Mapei, sem er norskt steypufyrirtæki sem framleiðir hágæða steypu sem hentar sérlega vel fyrir íslenskar aðstæður. „Múrinn er trefjabundinn, hefur einstaklega gott slitþol og þolir vel alla þá veðrun sem á sér stað hérlendis, meðal annars sífelldar frosthörkur og þíðu á veturna sem og löng rigningarsumur eins og var hér í borginni í fyrra. Múrinn hefur afar góða viðloðun og endist lygilega vel. Það sér vart á tröppum sem við steyptum fyrir sjö árum þegar við byrjuðum að nota múrinn frá Mapei. Ég gæti líka hæglega trúað að steyptar tröppur með Mapei múrnum séu að fara að endast í hátt í 20 ár eða meira. Það miðast við að undirvinnan og múrvinnan sé framkvæmd á réttan hátt.“ Það jafnast ekkert á við Mapei „Við vinnum verkefni á höfuðborgarsvæðinu, en höfum líka farið eitthvað út á land. Það er alltaf nóg að gera og við erum að fá hátt í 120 verkefni á hverju sumri.“ Það sem fer verst með útitröppur á Íslandi er að sjálfsögðu veðrið, og þá sérstaklega frost og þíða. „Einnig er algengt að fólk sé að salta of mikið eða er að lemja ísinn af tröppunum, en þá getur farið að kvarnast upp úr þeim. Einnig er algengt að fólk sé að nota kolröng efni í útitröppur. Flísar eru til dæmis sjaldan nægilega endingargóðar og við höfum verið að fletta afar illa förnum nýlegum flísum af tröppum til þess að endursteypa þær með Mapei múrnum. Einnig hefur flotun gefið lélegan árangur. Mapei hefur verið í stöðugri þróun gegnum tíðina og alltaf eru að koma ný og betri efni. T.d. er komið inn nýtt efni frá Mapei sem er sérhannað fyrir svalagólf, þar sem það er alveg vatnshelt og er litur í múrnum, sem fólk getur valið um. Þar með heyrir flagnandi málning á svölum sögunni til. Það jafnast ekkert á við Mapei múrinn. Þegar tröppur eru illa farnar þarf að byrja á að taka burt allt það efni sem er illa farið og bindingin er farin úr. Trefjastyrktur múr er síðan tvídreginn yfir tröppurnar þannig að hann myndar sterkt slitlag ofan á. „Múrinn þornar svo þannig að það myndast hrjúft yfirborð, eins og á sandpappír, sem verður til þess að það þarf mun sjaldnar að salta. Auk þess er minni hætta á að þær verði sleipar í bleytu eða smá ísingu,“ segir Páll. Sendu póst á murogtroppur@ murogtroppur.is og fáðu tilboð í þínar tröppur, þér að kostnaðarlausu. Fylgstu með á Facebook: Múrviðgerðir Sími: 825-0643
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.