Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Page 39
Iðnaður er unaður
17. janúar 2020
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
MÚR OG TRÖPPUVIÐGERÐIR:
Segðu bless við sleipar
og illa farnar tröppur
I lla farnar útitröppur geta verið mikið lýti á fallegu húsi. Að sama skapi geta illa veðraðar
tröppur með brotnum og daufum
köntum verið stórhættulegar. Múr
og tröppuviðgerðir er fyrirtæki á
höfuðborgarsvæðinu sem sérhæfir
sig í tröppuviðgerðum, bæði
úti og inni. „Við erum mest í að
endurmúra tröppur en tökum líka
að okkur ýmsar sprunguviðgerðir,
múrun á svalargólfum og önnur
smærri múrverk,“ segir Páll Helgi
Kristinsson.
Mapei gæðamúr
Múr og tröppuviðgerðir notar
eingöngu steypu frá Mapei,
sem er norskt steypufyrirtæki
sem framleiðir hágæða steypu
sem hentar sérlega vel fyrir
íslenskar aðstæður. „Múrinn er
trefjabundinn, hefur einstaklega
gott slitþol og þolir vel alla þá
veðrun sem á sér stað hérlendis,
meðal annars sífelldar frosthörkur
og þíðu á veturna sem og löng
rigningarsumur eins og var hér í
borginni í fyrra. Múrinn hefur afar
góða viðloðun og endist lygilega
vel. Það sér vart á tröppum sem
við steyptum fyrir sjö árum þegar
við byrjuðum að nota múrinn frá
Mapei. Ég gæti líka hæglega trúað
að steyptar tröppur með Mapei
múrnum séu að fara að endast í
hátt í 20 ár eða meira. Það miðast
við að undirvinnan og múrvinnan
sé framkvæmd á réttan hátt.“
Það jafnast ekkert á við Mapei
„Við vinnum verkefni á
höfuðborgarsvæðinu, en höfum
líka farið eitthvað út á land.
Það er alltaf nóg að gera og við
erum að fá hátt í 120 verkefni
á hverju sumri.“ Það sem fer
verst með útitröppur á Íslandi
er að sjálfsögðu veðrið, og þá
sérstaklega frost og þíða. „Einnig er
algengt að fólk sé að salta of mikið
eða er að lemja ísinn af tröppunum,
en þá getur farið að kvarnast upp
úr þeim. Einnig er algengt að fólk
sé að nota kolröng efni í útitröppur.
Flísar eru til dæmis sjaldan
nægilega endingargóðar og við
höfum verið að fletta afar illa
förnum nýlegum flísum af tröppum
til þess að endursteypa þær með
Mapei múrnum. Einnig hefur flotun
gefið lélegan árangur. Mapei hefur
verið í stöðugri þróun gegnum
tíðina og alltaf eru að koma ný og
betri efni. T.d. er komið inn nýtt efni
frá Mapei sem er sérhannað fyrir
svalagólf, þar sem það er alveg
vatnshelt og er litur í múrnum,
sem fólk getur valið um. Þar með
heyrir flagnandi málning á svölum
sögunni til. Það jafnast ekkert á við
Mapei múrinn.
Þegar tröppur eru illa farnar þarf
að byrja á að taka burt allt það
efni sem er illa farið og bindingin er
farin úr. Trefjastyrktur múr er síðan
tvídreginn yfir tröppurnar þannig
að hann myndar sterkt slitlag ofan
á. „Múrinn þornar svo þannig að
það myndast hrjúft yfirborð, eins
og á sandpappír, sem verður til
þess að það þarf mun sjaldnar að
salta. Auk þess er minni hætta á að
þær verði sleipar í bleytu eða smá
ísingu,“ segir Páll.
Sendu póst á murogtroppur@
murogtroppur.is og fáðu tilboð í þínar
tröppur, þér að kostnaðarlausu.
Fylgstu með á Facebook:
Múrviðgerðir
Sími: 825-0643