Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Page 12
12 17. janúar 2020FRÉTTIR það sem kom upp úr honum var algjörlega samhengislaust bull. Birgitta Birgisdótt- ir lék líka í sýningunni og byrjar í kjölfarið að flissa, en við erum miklir flissarar bæði tvö. Edda Björgvinsdóttir ætlaði eitthvað að reyna að bjarga þessu en segir eitthvað algjört bull svo við enduðum á að grenja öll úr hlátri. Salurinn var löngu búinn að fatta að þetta væri ekki hluti af sýningunni og hló með okkur en að endingu þurftum við bara að byrja senuna aftur. Þetta var mjög fyndin uppákoma.“ Hallgrímur segist sjaldan finna fyrir kvíða áður en hann stígur á svið en það séu helst sýningar sem reyni á stórar tilfinn- ingar sem taki á taugarnar. „Ég varð alltaf kvíðinn áður en við lék- um Gullregn, en sú sýning gekk fyrir fullu húsi í heilt ár í Borgarleikhúsinu og upp- skar alltaf mikil og góð viðbrögð. Þar fór maður í gegnum mikinn tilfinningarússí- bana og það getur reynt á að komast þang- að, fara inn í þetta ferðalag svo sagan virki. Ég kvíði alltaf fyrir hlutverkum þar sem ég þarf að sýna stórar tilfinningar og birta eitthvað sem er erfitt og sárt. Ég er engu að síður gríðarlega stoltur af þessari sýn- ingu og gaman að sjá hana núna sem kvik- mynd á hvíta tjaldinu. Þessi tvö listform eru samt ótrúlega ólík og maður tekur eft- ir einhverjum smáatriðum í bíósalnum sem maður tengir ekkert við úr leikhúsinu enda hneigir maður sig þar bara og fer út af sviðinu. Þarna situr maður hins vegar í salnum meðal áhorfenda – það er pínu skrítið. Það besta er þó það að ég virka ekk- ert lítill á hvíta tjaldinu. Það kom kona til mín í eftirpartíinu og furðaði sig á því hvað ég væri lágvaxinn því ég virkaði svo stór á skjánum. Ég hafði mjög gaman að því og var í heildina mjög ánægður, ég hafði ekk- ert séð úr myndinni fyrir frumsýningu en hún hefur fengið frábær viðbrögð. Það var alltaf mikil stemning á hverri sýningu í leikhúsinu, fólk hló þegar það átti að hlæja en svo varð atburðarásin líka sorgleg og erfið og maður fann að fólk kunni að meta það. Við vissum alltaf að til stæði að gera kvikmynd upp úr þessu handriti. Raggi viðraði þá hugmynd strax í upphafi svo við höfðum það alltaf á bak við eyrað. Pressan var bara sú að nálgunin við leikhús og bíó er svo ólík, maður þarf að skrúfa niður í öllu – enginn þarf að drífa á aftasta bekk í bíósalnum. En þetta var aldrei þvingandi heldur upplifði ég þetta sem rökrétt fram- hald af hinu og ótrúlega gaman að fram- kvæma þetta, alveg virkilega skemmtilegt tímabil sem fór í að taka þetta í sumar enda þekkjumst við öll svo vel sem komum að þessu. Sigrún Edda, Halldóra Geirharðs og Halldór Gylfa komu öll að uppsetningunni á sínum tíma en Karolina Gruszka kemur í stað Brynhildar Guðjónsdóttur sem lék kærustuna mína í sýningunni. Svo koma auðvitað fullt af öðrum persónum fyr- ir í myndinni sem við ræddum bara í sýn- ingunni en sáust aldrei á sviðinu. Ég tengi vel við persónuna sem ég leik, einfaldlega af því ég bjó hann til. Við unnum handritið allt í spunaformi en Raggi kom með hug- myndir af senum og síðan spunnum við samtölin út frá þeim. Ég tengi ekki beint við þennan meðvirka dreng en það er auð- velt að sækja hann – við þekkjum nefnilega öll þetta fólk.“ Lifði og dó fyrir Bubba Eins og fyrr segir ólst Hallgrímur upp á Akranesi og ól um stund þann draum að verða trúbador. Fyrstu og einu plötuna gaf hann út nítján ára og segist loksins hafa tek- ið hana í sátt eftir margra ára eftirsjá. Platan bar viðurnefni Hallgríms, Halli melló, hálf- gert uppnefni sem hefur loðið við hann frá unga aldri. „Halli melló er búið að vera fast við mig frá því ég var níu ára en þá voru eldri strák- ar að stríða okkur. Foringinn í hópnum kastaði svo fram þeim fyrirmælum að strák- arnir ættu að láta hann Halla vera því hann væri svo melló. Þannig kom þetta og festist við mig. Ég hef margoft reynt að afmá þetta en ég átti aldrei sjens – ætli ég taki þetta ekki upp sem ættarnafn, hver veit. Það var alltaf draumur að gera þessa plötu og ég var hvattur til þess en ég sá lengi vel eftir því. Ég vildi að ég hefði haft þroska til að vanda mig meira en þetta er auðvitað bara fyndið í dag, ég hef alveg sætt mig við þetta. Þarna var ég búinn að spila á börum frá sextán ára aldri úti um allt land en fann með tím- anum að þessi lífsstíll átti ekki við mig – að sitja á trékolli og spila fyrir drukkið fólk. Ég var þó undir svo miklum áhrifum frá Bubba – lifði og dó fyrir hann sem barn og ég á margar minningar tengdar honum. Þegar hann var að spila á Akranesi reiknaði ég út hvaða Akraborg hann myndi taka og beið svo á bryggjunni til þess eins að sjá honum bregða fyrir. Svo hjólaði ég á eftir þeim upp að hóteli og fékk að kíkja inn.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.