Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Qupperneq 17
KYNNING
Fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar er elsta starfandi útfararþjónustan á
höfuðborgarsvæðinu. Rúnar hefur
alla tíð veitt fyrirtækinu forstöðu
sem framkvæmdastjóri þess og
útfararstjóri. Útfararþjónustan er
í eigu Rúnars og eiginkonu hans,
Kristínar Sigurðardóttur, og starfa
synir þeirra, Elís og Sigurður, þar
ásamt föður sínum.
Orðsporið skiptir útfararþjónustu
miklu. „Ef maður sinnir sínu starfi
vel er það fljótt að spyrjast út,“ segir
Rúnar sem hefur yfir 35 ára reynslu af
útfararþjónustu. „Fyrst og fremst þarf
að taka tillit til þess að fólk er í sárum
eftir ástvinamissi. Við þurfum að gæta
að því sem við gerum og segjum og
eins að nálgast fólk með hlýju og
auðmýkt. Það getur verið mjög erfitt
að bjóða fólki við þessar aðstæður
þjónustu gegn greiðslu en þetta hefur
lærst í gegnum árin og við tökum
mikið tillit til þess hvernig aðstæður
eru hverju sinni,“ segir hann.
Formaður Félags íslenskra
útfararstjóra
Ásamt daglegum störfum við hefð-
bundna útfararþjónustu er Rúnar
Geirmundsson formaður Félags
íslenskra útfararstjóra. Félagið hefur
verið starfrækt í yfir áratug og hefur
Rúnar verið formaður þess allt frá
upphafi. Aðaltilgangur félagsins er
skapa vettvang til að halda utan
um siðareglur útfararstjóra. „Starf
mitt sem formaður felst aðallega
í því að halda utan um fundastarf
og framfylgja reglum og samþykkt-
um aðalfunda. Ég sæki einnig fundi
erlendis enda á félagið í talsverðum
erlendum samskiptum. Siðareglur
evrópskra útfararstjóra eru til að
mynda grunnur íslensku siðaregln-
anna,“ segir Rúnar. Ekki er laga-
leg skylda að útfararstjórar séu í
félaginu en nánast allir starfandi
útfararstjórar eru þó félagsmenn og
hafa undirritað siðareglur félagsins.
Virðingin og alúð
Rúnar hefur unnið við
útfararþjónustu frá því 1983, fyrst
hjá Kirkjugörðunum og síðan í eigin
fyrirtæki. Aðspurður segist hann
hafa lært það á löngum ferli að það
skipti ekki höfuðmáli hvaða trú fólk
aðhyllist eða hvort það aðhyllist trú
yfirleitt, virðingin fyrir hinum látna sé
alltaf í forgrunni. „Og það þurfum við
alltaf að hafa í huga, án þess að taka
afstöðu til trúmála. Hlýja, auðmýkt
og virðing er það leiðarljós sem við
fylgjum alltaf.
Þegar andlát ber að garði er
mikilvægt að hafa samband við
útfararþjónustu sem fyrst,“ segir
Rúnar. „Í fyrsta lagi þarf að flytja hinn
látna af dánarstað og í líkhús og síðan
að byrja að undirbúa kistulagninguna.
Útfararstjórinn heimsækir yfirleitt
aðstandendur daginn eftir og þeir
leggja þá fram óskir sínar varðandi
framkvæmd kistulagningar og síðan
jarðarfarar. Í því felst í flestum tilfellum
að velja prest eða athafnarstjóra og
síðan að tímasetja allar athafnir og
bóka grafartöku eða bálför. Næsta
skref er svo að ákveða hvað kemur
í okkar hlut að sinna en við sjáum
um allt er lýtur að undirbúningi og
framkvæmd útfara. Til að mynda
höldum við utan um öll samskipti við
aðstandendur, tónlistarfólk, kirkjur,
blómabúðir, kirkjugarða og alla þá
sem koma að útför.“
Íslensk hönnun og handverk
Útfararþjónusta Rúnars
Geirmundssonar leggur mikið upp
úr því að vera með fallegar kistur á
góðu verði sem standast ströngustu
kröfur um umhverfisvernd.
Algengastar eru hinar hefðbundnu
hvítu kistur en alltaf er eitthvað
um að fólk vilji harðviðar kistur, til
dæmis eik eða mahóní. Val á kistum
getur vafist fyrir aðstandendum
enda úrvalið nokkuð. „Við eigum
umhverfisvænar og fallegar
hefðbundnar hvítar kistur, sem eru
algengastar, en einnig töluvert
úrval af viðarkistum.“ Í fyrsta sinn
á Íslandi hefur Útfararþjónusta
Rúnars Geirmundssonar nú látið
hanna og smíða íslenskar kistur úr
íslenskum við í samstarfi við Þorstein
B. Jónmundsson trésmið. „Við höfum
hannað sérstaka kistu og duftker
út frá hugmyndinni um íslenska
kistu úr alíslenskum við til brennslu
og jarðsetningar,“ útskýrir Rúnar.
Kisturnar eru úr við sem er unninn
og þurrkaður í Hallormsstaðarskógi.
„Þessi kista er mjög falleg, úr
grófum við og ólökkuð eða máluð á
náttúrulegan máta.“
Nánari upplýsingar er að finna á
utfarir.is eða í síma 567-9110 allan
sólarhringinn, alla daga ársins.