Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Síða 20
20 FÓKUS 17. janúar 2020 Hætti að vera puntu­ dúkka sjö ára n Hefur náð ótrúlegri velgengni á stuttum tíma n Töffari og strákastelpa úr Hafnar­ firðinum n Varð fyrir óhugnanlegri lífsreynslu árið 2012 n Madonnu­aðdáandi í æsku N afn Hildar Guðnadóttur er á allra vörum þessa dagana eftir að hún tók við Golden Globe-verðlaun- um í flokki tónlistar og hlaut Ósk- arstilnefningu með einungis nokkurra daga millibili. Frægðarsól hennar hef- ur risið hratt undanfarin misseri og kvik- myndarisar í Hollywood bíða í röðum. En hver er þessi glaðværa 37 ára kona, sem hefur skotist upp á stjörnuhimininn vest- an hafs? DV bregður hér upp nærmynd af Hildi. Madonna var átrúnaðargoð Hildur Guðnadóttir er fædd í Reykjavík árið 1982, dóttir Guðna Franzsonar, tón- skálds, klarínettuleikara og kennara og Ingveldar Guðrúnar Ólafsdóttur óperu- söngkonu. Bræður Hildar eru þeir Gunn- ar Örn Tynes og Þórarinn Guðnason, sem einnig hafa látið að sér kveða í íslensku tónlistarlífi, Gunnar með hljómsveitinni múm og Þórarinn með Agent Fresco. Í samtali við Fréttablaðið í febrúar 2014 minntist Hildur þess að hennar fyrsta minning hafi verið „að sitja úti í bakgarði í Amsterdam og tala við snigla“. Þá kom einnig fram að hetjur hennar í æsku voru þrjár: ömmur hennar og poppdrottningin Madonna. Sjö ára gömul byrjaði Hildur að læra á selló í Tónlistarskóla Reykjavíkur. Hún fór snemma að syngja í kór og síðan söng hún með móður sinni heima og síðar á Fjörukránni þar sem móðir hennar söng reglulega. „En fyrstu skráðu heimildir um mig að syngja eru með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Ég var í kór Öldutúnsskóla og söng einsöng í Bjart er yfir Betlehem,“ sagði Hildur í við- tali við Morgunblaðið árið 2005. Hildur sagði að tónlistin hefði alltaf ver- ið eðlilegur hluti í lífi hennar. „Ég var alltaf að flækjast með mömmu þegar hún var að fara í söngtíma og mér fannst alltaf eðlilegt að syngja, þótt mig hafi ekki langað til að læra það.“ Þá sagði hún í samtali við Grapevine árið 2018 að móðir sín hefði fundið það á sér þegar hún gekk með hana að hún ætti eftir að verða sellóleikari.„Ég held ég hafi verið erfitt fóstur. Hún átti erfitt þegar hún var ólétt að mér. Hún var viss um að barnið sem hún bæri undir belti ætti að heita Hildur, sem þýðir „stríð“, og léki á selló. Þannig að þegar kom að því að velja hljóð- færi bauð hún mér sellóið.“ Jafnréttissinni Hildur gekk í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði. Svo virðist sem jafnréttisbaráttan, og staða kvenna í tónlist, hafi snemma verið henni hugleikin. Í viðtali við tímaritið Veru í febr- úar 1998 ræddi hún um gamaldags ímynd kvenna og kröfur samfélagsins. „Ætli ég hafi ekki hætt að vera puntu- dúkka þegar ég var 7 ára gömul. Þá sneri ég baki við bleikum krúsídúllum og Barbí og fékk önnur áhugamál. Af hverju veit ég ekki. Ætli maður hafi ekki bara verið að uppgötva heiminn betur og séð að hann einskorðast ekki við háfætta, Ijóshærða dúkku með blá augu.“ Á öðrum stað sagði Hildur: „Auðvitað er eðlilegt að huga að útlitinu en því miður finnst mér stelpur oft ganga einum of langt. Það er með ólíkindum hvað þær geta verið uppteknar af ytra útliti. Rassinn er svona, lærin ómöguleg og heilmiklar vangaveltur eru um það hvort hafa eigi hátt eða lágt tagl þann daginn. Mér finnst strákar ekki í þessum endalausu útlitspælingum.“ Woofer Árið 1997 stofnaði Hildur hljómsveitina Woofer ásamt þremur piltum úr Hafnar- firði. Hildur var forsprakki og söngkona sveitarinnar og samdi tónlistina. Sveitin tók síðan þátt í Músíktilraunum Tónabæjar og í kjölfarið kom út smáskífa með sveitinni. Lag af þeirri skífu náði hylli í útvarpi og í júlí 1997 birtist gagnrýni í Morgunblaðinu þar sem fram kom að hér væri „framtíðar- sveit á ferð“ og að Hildur væri framtíðar- söngkona sem færi „hreinlega á kostum“. 19 ára gömul leitaði Hildur til Reykja- víkurborgar með hugmynd að fimm manna hjómsveit sem myndi spila tónlist fyrir gangandi vegfarendur í borginni yfir sumartímann. Úr varð Tónaflokkurinn, þar sem Hildur spilaði á selló en aðrir meðlim- ir sveitarinnar voru einnig um tvítugt og áttu tónlistarnám að baki. „Ef maður ætlar að gera tónlist verð- ur maður að gera allt sjálfur,“ sagði Hildur í samtali við Morgunblaðið á sínum tíma en henni hafði lengi fundist að það vantaði tónlistarlíf á göturnar í borginni. Þá fannst henni „sorglega fáar stelpur vera í tónlist“. „Hugmyndin er eiginlega bara sprellitónlist fyrir alla. Það er rosalega skemmtilegt að spila tónlist fyrir alla,“ sagði Hildur. Á öðrum stað sagði hún: „Íslenska minnimáttarkenndin er svo- lítið að hverfa úr tónlistargeiranum. Það finnst engum knýjandi lengur að meikaða úti. Í dag eru Íslendingar alveg þátttakend- ur í alþjóðlegu senunni án þess að þeir séu heimsfrægir. Og samt koma ennþá frétt- ir, þegar tónlistarfólk fer til útlanda, sem segja það á barmi heimsfrægðar. Það finnst mér svolítið fyndið.“ Um aldamótin söng Hildur og spilaði með hljómsveitinni Rúnk ásamt fleirum og gaf sveitin út eina plötu, Ghengi Dahls, sem kom út árið 2002. Hún lauk síðan námi við nýmiðlabraut Listaháskóla Íslands vorið 2005, en hún var fyrsti nemandi skólans sem útskrifast af þeirri braut. Hún var þá 23 ára gömul. Út- skriftarverkefni hennar bar nafnið Merry Go Round, en um var að ræða svokallaða hljómklukku. Hildur velti upp spurningum um tíma og tímaleysi með verkinu, sem var mjög viðamikið, en það var flutt af 14 fær- anlegum hljóðfæraleikurum í stórri hljóð- mynd. „Af því að þetta eru ekki venjulegir tón- leikar fannst mér ekki við hæfi að kalla þetta það. Þetta er frekar í ætt við gjörn- ing. Það sem ég er að gera í þessari hljóm- klukku er að setja upp hvernig ég sé tíma, Nærmynd: Hildur Guðnadóttir Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Sigurvegari Hildur hampar Golden Globe-styttunni. Mynd: YouTube

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.