Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 25
KYNNING Ungbarnasund og líkamsrækt á nýju ári hjá Óla Gísla Ungbarnasund er eitt það fallegasta sem foreldri og barn geta upplifað saman snemma á ævi barnsins,“ segir Ólafur Ágúst Gíslason, íþrótta- og ungbarnasundkennari. „Ungbarnasund er skemmtileg leið til þess að tengjast ungbörnum sínum og auka öryggi þeirra í vatni. Í mörgum tilfellum hefur ungbarnasundið fyrirbyggjandi áhrif á vatnshræðslu. Enn fremur hjálpar það foreldrum að umgangast börnin á öruggan hátt í vatninu og auka traust beggja aðila, foreldris og barns. Þetta er raunar eins og fyrsta líkamsrækt barnsins. Vatnið gefur öðruvísi eftir en andrúmsloftið og veitir meira viðnám sem orsakar meiri áreynslu fyrir barnið, eykur styrk þess og jafnvægi. Við áreynsluna eykst hjartsláttur og öndun og því styrkjast bæði hjarta og lungu við hreyfinguna. Við þekkjum það sjálf að eftir góða æfingu eða áreynslu líður okkur betur og líkamleg þreyta er alltaf góð. Vatnið örvar líka barnið, eykur einbeitingu og styrkir ónæmiskerfið. Útkoman er í langflestum tilfellum að barnið sefur og borðar betur og líður almennt betur. Ávinningurinn er eiginlega með ólíkindum,“ segir Ólafur. Námskeiðin eru haldin tvisvar í viku, á þriðjudögum og föstudögum, í Reykjalundi. Óskastund með fjölskyldunni „Ég hef haldið námskeiðin í hartnær 18 ár hér heima en ég byrjaði í Ósló vorið 2000 og á Reykjalundi 2001. Það myndast alltaf ánægjuleg stemning í sundinu. Flestir staldra við eftirá, fara í pottinn með börnin og spjalla saman. Við það myndast kunningsskapur þar sem fólk miðlar reynslu sinni, en oft er fólk svo að koma með annað og þriðja barn í námskeiðin því það tókst svo vel með það fyrsta,“ segir Ólafur. Ávinningur af ungbarnasundi: • Einstakt og gott örvunarumhverfi á fyrstu mánuðum barnsins. • Styrkir ónæmiskerfi, líkamsvitund og sjálfsímynd. • Eykur einbeitingu, aga, aðlögunarhæfni og hreyfiþroska. • Áhersla á leik, samspil foreldra og barna, líkamssnertingu og augnsamband. • Foreldrar kynnast öðrum foreldrum og börn venjast samskiptum við aðra. • Ánægjuleg stund án utanaðkomandi truflunar. • Ungbarnasund 1–2 í viku stuðlar að betri svefni, matarlyst og betra skapi meðan á námskeiðinu stendur. Líkamsrækt B&Ó Ólafur er menntaður íþróttakennari og starfaði í Garðaskóla í Garðabæ frá 1980–2018. Frá 1989 hefur hann verið með námskeið við Líkamsrækt B&Ó í Ásgarði í Garðabæ. „Við erum með þetta saman, ég og Elín Birna Guðmundsdóttir, sem er íþróttakennari að mennt. Birna sér um að kenna konunum sem eru 70 talsins. Sjálfur er ég með líkamsræktarnámskeið fyrir um 70 karla á mjög breiðu aldursbili. Sá yngsti er 25 og sá elsti er 83 ára,“ segir Ólafur og bætir við að það séu þrennir feðgar saman í öðrum hópnum! „Tímarnir samanstanda af fjölbreyttum líkamsæfingum. Hver og einn ræður sínum hraða. Tímarnir byggja á upphitun, lóðaæfingum, tvímenningsæfingum eða fjölbreyttri stöðvaþjálfun í hálftíma þar sem er af ýmsu skemmtilegu að taka. Einnig spilum við körfubolta. Karlarnir komast oft í mikið keppnisskap við það og er fátt skemmtilegra en að sjá unglingana brjótast fram hjá þeim. Í lokin er teygt vel á og hangið í rimlunum. Flestir skella sér svo í laugina eða heita pottinn til að spjalla og ræða úrslitin í körfuboltanum. Þeir allra hörðustu fara í þann kalda eftir á,“ segir Ólafur. Félagsskapurinn skiptir máli Námskeiðin snúast ekki eingöngu um líkamlega áreynslu heldur finnst Ólafi mikilvægt að virkja félagslega þáttinn. „Þetta er 50% líkamsrækt og 50% félagsskapur sem gerir þetta að miklu meira en bara líkamsrækt. Við höldum stórskemmtilega haustfagnaði, förum saman í jeppaferðir og gönguferðir. Þá hefur skapast sú hefð að halda helgistund í Maríuhellum í Heiðmörk á aðventunni eftir klukkustundar gönguferð,“ segir Ólafur. „Í apríl héldum við svo upp á 30 ára afmæli Líkamsræktarinnar á Laugarbakka með um 100 manns.“ Ungbarnasund Óla Gísla fer fram í innisundlaug endurhæfingarmiðstöðvarinnar að Reykjalundi. Næsta námskeið byrjar þriðjudaginn 21. janúar. Líkamsrækt B&Ó er staðsett íþróttamiðstöðinni Ásgarði í Garðabæ og hófst vornámskeiðið mánudaginn 6 janúar s.l. Tímar hjá körlunum eru á mán. og mið. Allar nánari upplýsingar má nálgast á likamsraekt.is Netfang: oligisla@hotmail.com, oligisla@ungbarnasundolagisla.is, facebook: Ungbarnasund Óla Gísla Sími: 8472916 Myndir: Eyþór Árnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.