Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 30
Ferðafélag Íslands 17. janúar 2020KYNNINGARBLAÐ
Námskeið hjá FÍ
Í VETRARFJALLAMENNSKU, RÖTUN OG FYRSTU HJÁLP Á FJÖLLUM
Vetrarferðamennska hefur aukist mikið undanfarin ár og nú stunda þúsundir
manna útivist og fjallamennsku af
einhverju tagi yfir vetrarmánuðina.
Vetrarferðamennska er sannarlega
heillandi en henni fylgja um leið
hættur sem ferðamenn þurfa að
hafa í huga. Snjóflóð er ein af þeim
hættum sem ferðamenn þurfa
að hafa í huga og varast í ferðum
sínum að vetri til. Ferðafélag Íslands
býður upp á snjóflóðanámskeið
21. janúar sem er fyrsta námskeið
vetrarins. Fleiri námskeið eru haldin
á vettvangi FÍ fram á vor og má þar
nefna námskeið þar sem kennt er að
ferðast á gönguskíðum, námskeið í
vetrarfjallamennsku, vaðnámskeið,
rötun, Fjallamennska 1, gps
námskeið og skyndihjálparnámskeið.
Hægt er skrá sig á þessi námskeið á
vef FÍ, www.fi.is
Snjófljóðum er gjarnan skipt í
tvennt:
1. Lausasnjóflóð
Lausasnjóflóð eiga upptök sín
í einum punkti. Gjarnan sem
snjóbolti. Snjóflóðafarvegur
skiptist í upptakasvæði, fallbraut
og snjóflóðatungu. Upptakasvæði
liggur efst í snjóflóðafarvegi og
er allt þaðsvæði þar sem upptök
snjóflóðs eru hugsanleg. Fallbraut
er þar sem snjóflóðið rennur niður
ogsnjóflóðatunga þar sem það
stöðvast.
2. Flekaflóð
Flekaflóð eiga sér stað þegar fleki
af snjó brotnar frá snjóþekjunni og
rennur af stað niður brekkuna. Þetta
gerist þegar snjór með tiltölulega
mikla samloðun liggur ofan á snjó
sem er með litla samloðun eða
ofan á veiku lagi. Fólk sem slasast í
snjóflóðum kemur þeim yfirleitt sjálft
af stað og oftast er um að ræða
þurr flekaflóð. Þurrum og blautum
snjóflóðum er gjarnan skipt í tvær
megintegundir, lausasnjóflóð og
flekaflóð.
Að þekkja snjóflóðafarveg
Þegar ferðast er um fjalllendi yfir
vetrarmánuðina er mikilvægt að
þekkja svæði þar sem snjóflóð geta
fallið. Nokkur atriði skipta mestu máli
til að þekkja snjóflóðafarveg.
Algengasti upptakahalli flekaflóða
er 30-45°.
Hæð yfir sjávarmáli.
Snjóflóðahætta er oft meiri í aukinni
hæð vegna þess að þar snjóar meira
og vindur er sterkari.
Afstaða til sólar. Norðurhlíðar
fjalla eru gjarnan lengur óstöðugar
því þar er kaldara en í suðurhlíðum.
Norðurhlíðar eru líklegri til að vera
með meiri snjóflóðahættu en
suðurhlíðar á köldum vetrardögum.
Suðurhlíðar fjalla verða oft veikari
fyrir snjóflóðum en aðrar hlíðar
þegar sólin er hátt á lofti.
Gil og skálar eru yfirleitt
hættulegri en aðrar brekkur því
þar er erfiðara að leita skjóls fyrir
hættum. Fólk sem lendir í snjóflóðum
í giljum berst gjarnan að miðju gilsins
þar sem krafturinn er mestur og
líklegt að grafast djúpt. Snjór getur
safnast saman í giljum úr ólíkum
vindáttum. Annar barmur gilsins
getur verið með stöðugum snjó á
meðan hinn er með mjög óstöðugum
snjó. Grjót og tré sem standa upp
úr snjóþekjunni virka gjarnan eins
og akkeri fyrir snjóinn. Oftast eiga
flekaflóð upptök sín í kúptum hluta
brekkunnar.
Stærð brekku. Stór brekka getur
borið meiri snjó og myndað stærri
snjóflóð.
Breiðir dalsbotnar eru gjarnan
öruggari en umliggjandi hlíðar.
Hryggir eru yfirleitt öruggir fyrir
snjóflóðahættu, en þó ber að vara
sig á hengjum sem kunna að vera
öðru hvoru megin við hrygginn.
Gott er að ferðast um flata hluta
brekkunnar og halda sig frá bröttum
hlíðum. Þar sem ekki er hægt að
forðast brattar hlíðar skal fara
um þær eins ofarlega og hægt er.
Haldið ykkur frá íhvolfum brekkum
ef hætta er á snjóflóðum. Ef ekki
er hjá því komist að ferðast um
snjóflóðahættusvæði má minnka
áhættuna með því að láta einn fara
yfir ótrygga hlutann í einu og að
ferðafélagar fylgist með. Ekki stoppa
í miðri brekku, farið á öruggari stað.
Horfið á þá sem eru í brekkunni.
Gerið fyrirfram ákveðna áætlun:
Hver skal fara fyrst? Hvar skal
stoppa?
Snjóflóðahætta
Snjóflóðahætta stjórnast af þremur
þáttum, landslagi, stöðugleika
snjóþekjunnar og fólki.
Til að gera ferðalög hættuminni
þarf sá sem ferðast að spyrja sig
spurninga: Hvernig er landslagið?
Er líklegt að snjóflóð gætu fallið?
Er snjórinn stöðugur? Hverjar yrðu
afleiðingarnar ef snjóflóð félli hér?
Veðrabrigði sem hafa neikvæð
áhrif á stöðugleika snjóþekju:
• Áköf snjókoma
• Rigning
• Skafrenningur
• Snögg hlýnun
• Snjórinn hitnar að bræðslumarki
• 20 sm eða meira af snjó hefur
fallið síðustu daga
Veðrabrigði sem hafa jákvæð áhrif
á stöðugleika snjóþekju:
• Kólnun, sérstaklega eftir þíðu
• Nokkrir dagar með fremur mildu
veðri
Þegar þú sérð eða heyrir
veðurspána spurðu þig þá hvaða
áhrif hún hafi á snjóþekjuna. Þegar
þú ert á ferð á fjöllum taktu þá
eftir hvernig veðrið er og hugsaðu
um hvaða áhrif veðrið hafi á
snjóþekjuna.
Vísbendingar um snjóflóðahættu
1. Nýfallin snjóflóð í svipuðum
brekkum
Það er engin betri vísbending um
yfirvofandi snjóflóðahættu. Reyndu
að forðast brekkur með svipaðan
halla sem snúa í sömu átt eða eru
í svipaðri hæð og brekkur þar sem
snjóflóð hafa fallið.
2. Vúmp-hljóð
Vúmp-hljóð heyrist þegar veikt
lag fellur samaní snjóþekjunni. Þá
er sagt að náttúransé að öskra
snjóflóðahætta! Forðið ykkur úr
snjóflóðabrekkum!
3. Stækkandi sprungur
Þegar sprungumyndun sést í
hlíðunum eða þegar snjórinn
brotnar undan manni gefur það
til kynna að flekaflóð geti farið af
stað. Skafrenningur Vindsöfnun
á svæðum má sjá þegar öldur af
snjó myndast í lægðum og gjarnan
myndast hengjur.
4. Skyndileg hlýnun
Skyndileg hlýnun, einkum ef
hitastigið fer yfir frostmark, eykur
líkur á snjóflóðum. Holhljóð Holhljóð í
snjónum líkt og slegið sé á trommur
gefa sterklega til kynna að í snjónum
sé veikt snjólag.
5. Nýsnævi
Flest snjóflóð falla stuttu eftir
snjókomu.
6. Klapppróf
Klapppróf er notað til að skoða
veik lög efst í snjóþekjunni. 30 x 30
sm súla er skorin frá snjóþekjunni
og efstu 30 til 40 sm eru settir á
skóflublaðið. Skóflunni er síðan
hallað um 15° og klappað undir
hana, fyrst létt og svo fastar. Ef
snjóþekjan brotnar í láréttum fleti
gefur það til kynna að veik lög séu til
staðar í þekjunni.
Til að flekaflóð geti myndast
þarf sterkari snjór að vera ofan á
veikari snjó. Veikt lag er snjór sem
binst illa saman og/eða binst illa
undirliggjandi lagi, undirliggjandi lag
myndar rennslisflöt fyrir flekaflóð.
Til að finna þessi veiku lög er gott
að grafa gryfju til að finna veiku
snjólögin.
Samantekt
Áður en farið er af stað ber að
huga að hvernig veðrið hefur
verið síðustu daga og veðurspá.
Gera upp við sig áður en lagt er af
stað hve mikla áhættu hópur er
tilbúinn að taka. Hverjir koma með,
hver er kunnátta þeirra, þekking
á svæðinu o.fl. Hafa skal með og
kunna að nota öryggisbúnað, það
er snjóflóðaýli (rafhlöður í lagi),
snjóflóðastangir, skóflu o.s.frv. Á
leiðinni upp í fjall: Hafið augun opin
fyrir hættumerkjum eins og veðri og
nýlegum snjóflóðum.
Í fjalllendi
• Nýfallin snjóflóð
• Snjórinn brotnar upp
• Brestir eða vúmp-hljóð
• => gefa til kynna mikla
snjóflóðahættu
• Vindur, hengjur => ójöfn
snjósöfnun
Aukin snjóflóðahætta
• Mikil snjókoma
• Rigning
• Snögg hlýnun
• Hlýnun að frostmarki
Góðar ferðavenjur
• Ef þið teljið brekku hættulega
reynið að forðast hana og ef
ekki er annað hægt þá að fara
einn yfir í einu
• Ekki merkja brekkur með hengjur
fyrir ofan
• Bíðið með að hjálpa félögum
ykkar að losa fastan sleða í
brekku og alls ekki fara upp fyrir
mann sem er fastur í brekku
• Fylgist með ferðafélögum ykkar
• Ekki stoppa þar sem snjóflóð
geta fallið
Tvennt að lokum:
1. Vertu með öryggisbúnað
2. Farðu á námskeið.
Samantekt: Auður Kjartansdóttir,
sérfræðingur á ofanflóðasviði
Veðurstofu Íslands