Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Blaðsíða 52
52 FÓKUS 17. janúar 2020
B
retland logar eftir að Harry og Meghan, hertoginn
og hertogaynjan af Sussex, tilkynntu að þau ætl-
uðu að segja sig úr bresku konungsfjölskyldunni og
verða fjárhagslega sjálfstæð. Harry og Meghan hafa
ekki verið lengi saman í stóra samhenginu og hefur sam-
band þeirra þróast mjög hratt ef litið er á ástarsögu hjón-
anna.
Júlí 2016
Harry og Meghan hittust fyrst í London og voru það sam-
eiginlegir vinir sem kynntu þau. Neistar flugu undir eins á
milli prinsins og leikkonunnar.
Nóvember 2016
Harry staðfesti samband sitt við Meghan í opinberri yfir-
lýsingu. Í henni fordæmdi hann kynþáttahatara og karl-
rembur sem gagnrýndu leikkonuna.
Október 2016
Meira kom í ljós um sambandið og sagði Us Weekly frá því
að Harry hefði byrjað að hafa samband við Meghan í júní
og sent henni oft smáskilaboð. „Harry elskar hvað hún
er mannúðleg,“ sagði heimildarmaður ritsins. „Eitt af því
fyrsta sem þau töluðu um voru dýraathvörf. Hann elskar
hvað hún er umhyggjusöm.“
Janúar 2017
Harry kynnti Meghan fyrir mágkonu sinni, hertogaynjunni
Kate Middleton, og bróðursystur sinni, Karlottu prinsessu,
í Kensington-höll í London. Meghan hitti Vilhjálm prins,
bróður Harry, og Karl Bretaprins, föður Harry, nokkrum
mánuðum síðan.
Mars 2017
Meghan hvatti kærasta sinn til dáða á pólóleik í Ascot á
Englandi og var þetta í fyrsta sinn sem þau sáust saman á
opinberum viðburði.
Maí 2017
Parið mætti í brúðkaup Pippu Middleton, systur Kate, og
James Matthews í Bucklebury á Englandi. Meghan var
ekki viðstödd við athöfnina sjálfa en eftir hana lagði Harry
á sig 160 kílómetra ferðalag til að sækja sína heittelskuðu
svo hún gæti tekið þátt í veislunni.
Ágúst 2017
Harry og Meghan fóru til Botswana í Afríku til að halda
upp á 36 ára afmæli leikkonunnar og verja tíma með vin-
um Harry.
September 2017
Meghan rauf þögnina um ástarsambandið í forsíðuviðtali
við Vanity Fair. „Við erum par. Við erum ástfangin,“ sagði
hún í viðtalinu. „Ég vona að fólk skilji að þetta er okkar
tími. Þetta er fyrir okkur. Það er það sem gerir þetta sér-
stakt, að þetta er okkar. En við erum hamingjusöm. Ég
elska góða ástarsögu.“
September 2017
Meghan hitti Elísabetu Bretadrottningu í fyrsta sinn í sum-
arhúsi drottningar, Balmoral-kastala.
Nóvember 2017
Tilkynnt var um trúlofun Harry og Meghan aðeins
nokkrum dögum eftir að hún lauk tökum á sjónvarps-
þáttunum Suits og flutti til London. Samkvæmt tilkynn-
ingu frá krúnunni fór Harry á skeljarnar snemma í nóv-
embermánuði. Í trúlofunarhring Meghan voru demantar
úr nælu sem var í eigu Díönu heitinnar prinsessu, móður
Harry. Eftir tilkynninguna fóru tilvonandi hjónin í viðtal
á BBC, þeirra fyrsta viðtal saman. „Þetta var stórkostlega
óvænt,“ sagði Meghan um bónorðið. „Þetta var svo sætt og
eðlilegt og mjög rómantískt. Hann fór niður á annað hné.
Raunar gat ég varla leyft honum að klára. Ég sagði bara:
Má ég segja já núna?“
Desember 2017
Opinberar trúlofunarmyndir af parinu eru sendar út en
þær voru teknar af ljósmyndaranum Alexi Lubomirski.
Maí 2018
Meghan og Harry gengu í það heilaga þann 19. maí í
kapellu heilags Georgs í Windsor-kastala. Þúsundir mættu
til að bera hjónin augum, en sex hundruð gestum var boð-
ið að vera viðstaddir. Einn gest vantaði þó, föður brúðar-
innar, Thomas Markle. Mikið var fjallað um samband
feðginanna fyrir brúðkaupið og tjáði Thomas sig fjálglega
við alla helstu slúðurmiðla heims. Hefur Meghan sakað
föður sinn um að ljúga til að fá athygli. Það var svo einnig
Alexi Lubomirski sem tók brúðkaupsmyndir af hjónun-
um, en þær voru birtar tveimur dögum eftir herlegheitin.
Júní 2018
Stuttu eftir brúðkaupið fóru sögur á kreik um að hjón-
in ætluðu sér að fjölga mannkyninu. „Að eignast börn er
klárlega í forgangi,“ sagði heimildarmaður Us Weekly á
sínum tíma. „Hún og Harry vilja stofna fjölskyldu strax og
hún ætlar að byrja að reyna eins fljótt og auðið er.“
Október 2018
Í tilkynningu frá Kensington-höll þann 15. október var það
tilkynnt að Meghan bæri fyrsta barn hjónanna undir belti.
Nóvember 2018
Áætlanir Meghan og Harry um að flytja frá London í Frog-
more-sumarhúsið í Windsor voru gerðar opinberar. Gerðu
þau þetta til að búa sig undir komu barnsins.
Janúar 2019
Meghan ljóstraði upp um settan dag er hún talaði við
heimamenn í Birkenhead. Þá sagði hún að barnið kæmi
seint í apríl eða í byrjun maí.
Febrúar 2019
Steypiboð var haldið fyrir Meghan í New York af frægum
vinkonum hennar, þar á meðal Gayle King, Amal Clooney
og Serenu Williams. Hins vegar er það ekki venjan að með-
limir konungsfjölskyldunnar séu með steypiboð, hvað þá
lúxusboð eins og það sem haldið var fyrir Meghan, og því
varð hertogaynjan fyrir nokkru aðkasti vegna þess.
Brjálað stuð Meghan og
Harry sáust fyrst opinber-
lega á pólóleik.
Óð í Harry Meghan opnaði sig um
sambandið í viðtali við Vanity Fair.
Þrjú á palli Elísabet, Meghan og Harry.
Stór dagur Harry
og Meghan til-
kynna trúlofunina
fyrir fjölmiðlum.
Ástarsaga hataðasta fólks Bretlands
n Fóru gegn hefðinni og uppskáru úthúðanir n Leyfa hjartanu að ráða för
„Ég elska góða
ástarsögu