Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Qupperneq 53
FÓKUS 5317. janúar 2020
Apríl 2019
Harry og Meghan byrjuðu á Instagram þann 2. apríl, með
sameiginlegan reikning. Var markmið hjónanna að ein-
blína á góðgerðarsamtök sem hjónin styðja á síðunni. Degi
síðar fluttu þau inn í Frogmore-sveitasetrið í Windsor.
Maí 2019
Fyrsta barn hjónanna, Archie litli Harrison, kom í heiminn
þann 6. maí. Tveimur dögum síðar sýndu hjónin heimin-
um frumburðinn í Windsor-kastala, en Meghan fór gegn
hefð konungsfjölskyldunnar og lét ekki mynda sig fyr-
ir utan fæðingardeildina. „Þetta er töfrum líkast. Þetta er
stórkostlegt,“ sagði Meghan við fjölmiðla. „Ég á tvo bestu
strákana í heiminum þannig að ég er mjög hamingjusöm.“
Júlí 2019
Archie var skírður við lokaða athöfn í kapellu heilags Ge-
orgs í Windsor-kastala þann 6. júlí. Meghan og Harry
héldu því fyrir sig hverjir væru guðforeldrar Archie. Tæp-
um tveimur vikum seinna mættu hjónin á rauða dregilinn
í fyrsta sinn frá fæðingu Archie, nánar tiltekið á Evrópu-
frumsýningu The Lion King.
Október 2019
Meghan kærði The Mail on Sunday fyrir að birta persónu-
leg bréf sem hún skrifaði til föður síns. Harry gaf út til-
kynningu um eineltið sem Meghan hefði þurft að þola af
hendi fjölmiðla síðan þau hófu ástarsamband sitt. „Ég hef
verið þögult vitni þeirrar þjáningar of lengi,“ skrifaði hann.
„Að halda sig til hlés og gera ekkert gengur gegn því sem
við trúum á. Það kemur sá tímapunktur þar sem það eina
sem hægt er að gera er að mótmæla slíkri hegðun því hún
eyðileggur fólk og eyðileggur líf.“
Janúar 2020
Harry og Meghan vörðu jólunum í Kanada ásamt synin-
um Archie, en ekki með konungsfjölskyldunni. Þetta vakti
sögur um að þau ætluðu hugsanlega að flytja til Kanada á
nýju ári, en Meghan starfaði og bjó í Kanada áður en hún
varð partur af konungsfjölskyldunni. Það var svo stuttu
síðar sem Meghan og Harry tilkynntu það á Instagram-
-síðu sinni að þau hefðu ákveðið að segja sig úr konungs-
fjölskyldunni og verða fjárhagslega sjálfstæð. Þau hétu því
að halda áfram að vinna fyrir drottninguna, Karl Bretapr-
ins, Vilhjálm prins og aðra meðlimi fjölskyldunnar. Þau
ætla að búa til skiptis í Bretlandi og Norður-Ameríku. Bret-
ar hafa kosið að kalla þessa umdeildu ákvörðun Megxit af
augljósum ástæðum. n
Óvenjulegar
Trúlofunarmyndirnar
voru ekki í anda
bresku konungsfjöl-
skyldunnar.
Dásamlegur dagur
Heimsbyggðin horfði á Harry
og Meghan ganga í það
heilaga í beinni útsendingu.
Lukkuleg Tilvonandi hjónin
í sínu fyrsta viðtali saman.
Archie frumsýndur Fjöl-
miðlar fengu að kynnast
Archie litla tveimur dögum
eftir að hann fæddist.
Bæ, bæ Harry og
Meghan hafa sagt
skilið við krúnuna.
Ástarsaga hataðasta fólks Bretlands