Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2020, Qupperneq 62
62 FÓKUS 17. janúar 2020 YFIRHEYRSLAN Óttast mest sjálfsvorkunn Tyrfingur Tyrfingsson leikskáld frumsýnir um helgina sitt fimmta verk í Borgarleik- húsinu en það nefnist Helgi Þór rofnar og fjallar um fúskara í útfararþjónustu í Kópavogi sem allt í einu lenda í grískum harmleik. Tyrfingur býr í Amsterdam og hafa verk hans verið þýdd á fjölmörg tungumál og boðin á leikhúshátíðir víða um Evrópu. Þá hlaut verk hans Kart- öfluæturnar tilnefningu til Menningar- verðlauna DV árið 2017. Tyrfingur er í yfirheyrslu helgarinnar. Hvar líður þér best? Á rölti í Amsterdam. Hvað óttastu mest? Sjálfsvorkunn. Hvert er þitt mesta afrek? Leikritin sem ég hef skrifað – Bláskjár, Auglýsing ársins, Kartöfluæturnar og núna Helgi Þór rofnar. Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér? Að mála gult. Ég var í ofnæmishóp hjá Kópa- vogsbæ og við fengum það verkefni að mála alla götukanta í bænum gula. Fyrir ofan holræsi, þar sem strætó stoppar og svo framvegis. Mig dreymir stundum ennþá gula götukanta og að ég sé ekki að mála þá nógu vel. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? „Farið svo öll til helvítis“ Hvernig væri bjórinn Tyrfingur? Eitraður. Besta ráð sem þú hefur fengið? Ef maður er blankur en langar að setja á sig and- litsmaska, að þeyta eggjuhvítu og úða henni yfir smettið á sér og bíða þar til hún harðnar. Bæta svo á þar til að eggjahvítan klárast og þrífa svo úr sér í sturtu. Eins og nýr. Hvert er leiðinlegasta húsverkið? Alla vega ekki love making! Besta bíómynd allra tíma? The Cook, the Thief, His Wife and Her Lover eftir Peter Greenaway með Michael Gambon og Helen Mirren. Barry Lyndon eftir Kubrick og svo La Grande Bouffe eftir Marco Ferreri. Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir? Ég væri til í að geta tálgað skálar og smjörhníf og svona alls konar. Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið? Að skrifa leikrit um það sem skiptir mig máli án þess að spá í hvað öðrum finnst. Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér? Fallegt. „Bara svo æðislega fallegt …“ Þreytandi. Hvað geturðu sjaldnast staðist eða ert góður í að réttlæta að veita þér? Gæjalegt væri að geta sagt amfetamín en svarið er glænýr Þristur eða Grænn hlunkur, eða sem sagt nammi. Hvað er á döfinni hjá þér? Frumsýning um helgina á Helgi Þór rofnar í Borgarleikhúsinu með Hirti Jóhanni, Hilmari Guðjónssyni, Þuríði Blævi og Bergi Þór í leikstjórn Stefáns Jónssonar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.