Íþróttablaðið - 01.02.1966, Side 20
K.R. 10 5 2 3 23-15 13
Akranes 10 6 1 3 24-16 13
Keflavík 10 4 3 3 18-15 11
Akureyri 10 5 1 4 14-19 11
Valur 10 3 1 6 19-24 7
Fram 10 2 1 7 10-19 5
Aðeins einu sinni áður hefur Is-
landsmótið unnizt á 13 stigum — en
það var 1962, þegar Fram og Valur
urðu jöfn með þá stigatölu og Fram
sigraði síðan í aukaleik eins og KH
nú. Þó Fram hafi orðið að bíta I það
súra epli að verða í neðsta sæti í
mótinu var liðið þó lítið lakara en
önnur félög, eins og bezt sést á því,
að Fram sigraði Akurnesinga á
Akranesi og töpuðu fyrir sama liði
með einu marki í Reykjavík eftir að
hafa haft yfirtökin í leiknum allan
síðari hálfleikinn og Fram tapaði
báðum leikjunum gegn Islandsmeist-
urum KR með eins marks mun —
sigurmark KR í báðum tilfellum
skorað úr vítaspyrnu. En Fram á
ungu, efnilegu liði á að skipa og því
ólíklegt, að dvöl félagsins í 2. deild
verði löng. En þó mótið hafi verið
sorglegt fyrir Fram var það ekki síð-
ur sorglegt fyrir Val, sem stóð sig
með miklum ágætum 4 fyrstu leiki
mótsins og var að þeim loknum í
efsta sæti með sjö stig. En fleiri stig
hlaut Valur ekki í mótinu — tapaði
öllum sex síðustu leikjum sínum í
mótinu. Þetta var ótrúlegt — og
skýring vandfundin — því Valur hef-
ur ágætu liði á að skipa, en einhverj-
ir þverbrestir í skapgerð sumra leik-
manna liðsins, virðast hafa verið af-
drifaríkir.
Keflvíkingum gekk illa framan af
mótinu, en stóðu sig ágætlega síðari
hluta þess, þótt sigurmöguleikar
liðsins yrðu að engu eftir tapleik á
Akureyri — og það voru raunveru-
lega Akureyringar, sem settu Kefl-
víkinga út af laginu að þessu sinni
— sigruðu í báðum leikjunum. Akur-
eyringar höfðu einnig sigurmögu-
leika allt fram á síðasta leik sinn í
mótinu — en tap á Akranesi kom í
veg fyrir fyrsta sigur þeirra í mót-
inu.
Einstakir leikir á Islandsmótinu í
1. deild fóru þannig:
Reykjavík:
Valur—l.B.A. 4—2
Valur—K.R. 2—2
Fram—K.R. 1—2
Valur—l.B.K. 2—0
Valur—Fram 2—1
K.R.—Í.A. 2 3
Fram—l.B.K. 1—1
K.R.—Valur 2—0
K.R.—l.B.A. 5—0
Fram—l.A. 0—1
K.R.—Fram 1—0
Valur—l.A. 2—5
Fram—l.B.A. 1—2
Fram—Valur 2—1
K.R.—l.B.K. 3—3
Akranes:
l.A.—Fram 2—3
l.A.—Valur 3—2
I.A.—K.R. 4—1
l.A.—l.B.A. 2—0
l.A.—Í.B.K. 1—2
Akureyri:
I.B.A.—Fram 2—1
I.B.A. I.A. 2 2
I.B.A.—K.R. 1—2
I.B.A.—Valur 2—1
I.B.A.—I.B.K. 2—0
Keflavik:
I.B.K.—I.A. 2—1
I.B.K.—K.R. 1—1
I.B.K.—I.B.A. 0—1
l.B.K.—Fram 5—0
I.B.K.—Valur 4—3
ITrslitaleikur:
K.R.—l.A. 2—1
2. DEILD.
Eins og árið áður var félögum í
Einar ísfeld skorar fyrra mark KR í úrslitaleiknum gegn Akranesi.
20