Íþróttablaðið - 01.02.1966, Side 23
B-riðill: F.H.—Þróttur 10—0
Haukar—Breiðablik 2—0
Víkingur—Reynir 6—0
Haukar—Þróttur 0—0
Víkingur—Breið ablik 8—0
F.H.—Reynir 6—0
Haukar—Reynir 4—0
Víkingur—F.H. 6—1
Þróttur—Breiðablik 1—0
Þróttur—Reynir Þróttur vann
F.H.—Breiðablik 5—0
Víkingur—Haukar 6—0
Víkingur—Þróttur 6—0
F.H.—Haukar 3—1
Reynir—Breiðablik 2—0
Víkingur hlaut 10 stig
F.H. — 8 —
Haukar — 5 —
Þróttur — 5 —
Reynir —■ 2 —
Breiðablik — 0 —
Bikarkeppni KSf.
Keppni í 1. umferð hófst 31. júlí
með leik í Vestmannaeyjum milli
Þórs og B-liðs Keflavíkur. Þór sigr-
aði með 3—2. Aðrir leikir í 1. um-
ferð fóru þannig, að FH vann Hauka
3—2, Fram b vann Akranes b 4—0,
Týr vann Þrótt b með 8—0 og Þrótt-
urA vann Víking 4—1. Isfirðingar
mættu ekki til leiks gegn b-liði KR.
önnur umferð hófst 13. ágúst og
urðu úrslit þessi: Valur b vann
Breiðablik 3—1, Þróttur a vann Tý
með 3—1, KR b vann Þór 2—1 og
FH vann Fram b 2—1. 1 þriðju um-
ferð vann KR b mjög athyglisverðan
sigur gegn Þrótti 6—1, og FH vann
Valb 4—3.
Þar með var komið að aðalhluta
keppninnar og hófu liðin í 1. deild
þá keppni. Urslit I 4. umferð urðu
þessi:
Valur—Fram 1—0
Akranes—F.H. 3—0
Akureyri—K.R. 2—0
Keflavík—K.R. b 2—1
Athyglisverðustu úrslitin eru á Ak-
ureyri, þar sem a-lið KR tapaði í
fyrsta sinn bikarleik frá því keppnin
hófst. Þess skal þó getið, að nokkra
af beztu mönnum liðsins vantaði, þar
sem þeir voru flugtepptir í Skot-
landi.
1 5. umferðinni tryggðu Valsmenn
sér rétt á úrslitaleik, þegar þeir sigr-
uðu Akureyringa með 3—2 á Mela-
velli, en hins vegar þurfti tvo leiki
milli Akranes og Keflavíkur. Jafn-
tefli varð í fyrri leiknum 1—-1, en
Akurnesingar sigruðu í hinum síð-
ari 2—0.
Urslitaleikurinn milli Vals og
Akranes hinn 31. október var mjög
vel sóttur, en hann varð ekki eins
spennandi og við var búizt, því Vals-
menn höfðu yfirburði — komust í
5—1, en Akurnesingar bættu þó að-
eins markatöluna undir lokin, þótt
þeir töpuðu leiknum með 5—3. (Sjá
nánar nóvemberhefti Iþróttablaðs-
ins).
AUKALEIKIK MEISTABAFLOKKS
Reykjavík—Akranes 2—0
Coventry—K.R. 4—1
Coventry—l.B.K. 4—1
Coventry—tirva.1 3—0
S.B.U.—K.R. 4—4
S.B.U.—l.B.K. 2—1
S.B.U.—I.B.A. 2—0
S.B.U.—tJrval 2—0
Island—Danmörk 1—3
Landslið—Pressulið 5—4
Island—írland 0—0
K.R.—Rosenborg 1—3
l.B.K.—Ferencvaros 1—4
Ferencvaros—l.B.K. 9—1
Rosenborg—K.R. 3—1
För unglingalandslið til Sviþjóðar.
Liðið tók þátt i norrænni keppni, í
Halmstad og nokkrum nágrannabæj-
um, en þátttökulöndin fyrir utan Is-
land voru Danmörk, Svíþjóð, Noreg-
ur, Finnland og Sovétríkin. Þessum
löndum var skipt í tvo riðla — 3 lönd
í hvorum — og var Island i riðli með
Dönum og Rússum.
Alls voru 16 leikmenn valdir til
fararinnar og voru þeir þessir:
Þorbergur Atlason, Fram
Magnús Guðmundsson, KR
Arnar Guðlaugsson, Fram
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram
Sigurður Jónsson, Val
Sævar Sigurðsson, KR
Anton Bjarnason, Fram
Sævar Tryggvason, iBV
Eyleifur Hafsteinsson, ÍA, fyrirl.
Ólafur Lárusson, K R
Gunnsteinn Skúlason, Val
Einar Geirsson, Fram
Ragnar Kristinsson, KR
Halldór Einarsson, Val
Karl Steingrímsson, KR
Halldór Björnsson, KR.
Fararstjórar voru Björgvin
Schram, formaður K.S.I., Ingvar N.
Pálsson, ritari K.S.I., Alfreð Þor-
steinsson, formaður Unglinganefndar
K.S.l. Örn Steinsen, ritari Unglinga-
nefndar og Karl Guðmundsson, þjálf-
ari.
Leikurinn gegn Dönum.
Fimmtudagurinn 22. júlí rann upp
og veðurútlitið var ekki eins gott og
fyrsta daginn, því nú var sólin horf-
in og orðið þungskýjað. Og fyrir há-
degi var tekið að rigna og rigndi lát-
laust fram að leik, en þá stytti upp
og hélzt þurrt á meðan á leiknum
stóð, en leikvöllurinn var rennandi
blautur og háði það ísl. piltunum
nokkuð, sem eru óvanir að leika á
grasi.
Leikurinn fór fram í nágrannabæ
Halmstad — Falkenberg — og var
þetta í fyrsta skipti, sem opinber
landsleikur var leikinn á þessum
stað. Isl. liðið var þannig skipað í
þessum fyrsta unglingalandsleik Is-
lands í knattspyrnu, talið frá mark-
verði til v. útherja: Þorbergur Atla-
son, Amar Guðlaugsson, Sigurberg-
ur Sigsteinsson, Anton Bjarnason,
Sævar Sigurðsson, Sævar Tryggva-
son, Eyleifur Hafsteinsson, Ólafur
Lárusson, Gunnsteinn Skúlason og
Einar Geirsson. 1 síðari hálfleik kom
Ragnar Kristinsson inn á fyrir
Gunnstein.
Það er skemmst frá því að segja,
að ísl. liðið náði sér aldrei á strik I
leiknum nema fyrstu 20 mínúturnar,
en þann tíma hélzt leikurinn jafn og
ísl. piltarnir náðu að ógna danska
markinu nokkrum sinnum. En síð-
ustu mínúturnar í fyrri hálfleik fór
að síga á ógæfuhliðina og tókst Dön-
um tvívegis að skora fyrir hié. I síð-
ari hálfleik bættu Danirnir þremur
mörkum við og unnu leikinn þannig
5:0.
Þessi úrslit ollu vonbrigðum, því
greinilegt var, að okkar piltar léku
langt undir getu og voru sýnilega
mjög taugaóstyrkir allan leikinn.
23