Íþróttablaðið - 01.02.1991, Side 26
Nýja íþróttahúsið í Stykkishólmi. Á því hvíla nú miklar skuldir því ríkið
stendur ekki við gerða samninga.
Þátttaka ríkissjóðs í framkvæmd-
um, sem unnar eru á árinu 1989, skal
þó miðuð við þau framlög sem eru á
fjárlögum 1989."
Að sögn Sturlu kemur greinilega
fram í grein 75 að ríkinu beri að virða
gerða samninga. „Við undirbúning
laganna um verkaskiptinguna var
alltaf gert ráð fyrir því að ríkið stæði
við gerða sérsamninga. Þess vegna er
það sérstaklega tekið fram í áður-
nefndri lagagrein. Samningurinn um
íþróttahúsið var gerður vegna þess að
við vildum fá pottþétta vissu fyrir því
að ríkið stæði við sinn hluta fjár-
mögnunarinnarogteljum engan vafa
vera á því að þó svo að nýju lögin um
verkaskiptingu hafi tekið gildi sé
samningurinn einnig í fullu gildi.
Slíkra sérsamninga er sannarlega get-
ið í lögunum."
Sturla segir að bæjarfélagið hafi
fengið greiðslur samkvæmt samning-
num á árunum 1987, 1988 og 1989.
„Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra hefur tjáð okkur að greiðslu-
skylda ríkisins samkvæmt samning-
num sé fallin úr gildi og að bæjarfé-
lagið muni fá greitt samkvæmt
fjárveitingu sem ákveðin var árið
1989 vegna fjárlaga ársins 1990.
Greiðsl u r fyrir tímabi I ið 1990 til 1993
skuli, með öðrum orðum, ekki mið-
ast við greiðslurnar eins og þær eru
tilteknar í samningnum. Þessu erum
við algerlega ósammála og erum
ákveðnir í því að ríkinu beri að
standa við þá samninga sem það hef-
ur gert."
HÖFUM LEITAÐ TIL
ÞINGMANNA OG
RÁÐHERRA
Það kemur fram í máli Sturlu að
bæjarstjórn Stykkishólms hefur leitað
liðsinnis þingmanna Vesturlands-
kjördæmis. „Við höfum farið á fund
Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmála-
ráðherra og einnig óskað upplýsinga
um bað hvort Jöfnunarsjóður sveitar-
félaga myndi taka að sér skyldur rík-
isinsísamræmi viðtíttnefndan samn-
ing þar eð Menntamálaráðuneytið og
Fjármálaráðuneytið virða ekki samn-
inginn. Niðurstaða hefur ekki enn
fengist í þessu máli."
FJvaða úrræði hefur bæjarstjórn
Stykkishólms ef svo færi að Svavar
Gestsson menntamálaráðherra og
Ólafur R. Grímsson fjármálaráðherra
neituðu staðfastlega að virða samn-
inginn? Sturla tekur sér örlítinn frest
áðuren hann svararen segirsíðan að
frá hans bæjardyrum séð sé mál þetta
„prinsippmál". „Við höfum vænst
þess að þingmenn og ráðherrar legðu
svo mikla áherslu á að eiga góð sam-
skipti við sveitarfélögin að mál þetta
yrði leyst með samningum. Þetta er
spurning um uppbyggingu skóla- og
íþróttamála, sem er óumdeilanlega
sameiginlegt viðfangsefni ríkis og
sveitarfélaga. Ef allt þrýtur hlýtur
bæjarstjórn Stykkishólms að verða
að íhuga málssókn á hendur ríkinu til
að ná fram rétti sínuni. Að sjálfsögðu
vonum við að til slíks þurfi ekki að
koma og að samningar takist."
RÍKISSAMNINGUR
TRYGGING FYRIR
BANKALÁNI
Þótt erfitt sé að finna broslegar
hliðar á málum sem þessum fer ekki
hjá því að stundum megi finna slíkar
hliðarefaðergáð. Bæjarstjórn Stykk-
ishólms leitaði til viðskiptabanka
síns, Búnaðarbankans, þegar samn-
ingurinn við ríkið hafði verið gerður.
Lán var tekið sem greiðast átti með
samningsbundnum greiðslum frá rík-
inu. Trúlega hefur Búnaðarbankinn,
sem er einn ríkisbankanna, litið á
undirritaðan samninginn sem gull-
tryggingu fyrir greiðslu lánsins.
„Þetta er hreint ekki hlægilegt," segir
Sturla, „en óneitanlega getur maður
ekki annað en brosað þegar maður
hugsar til þess hve langt þessi gull-
trygging nær. Við höfum rætt þessi
mál við bankastjóra okkar sem hefur
sýnt mikinn skilning í þessari óvæntu
stöðu."
„Við munum íhuga málssókn á
hendur ríkinu," segir Sturla bæjar-
stjóri.
VÍGSLUHÁTÍÐ ÁN
NIÐURSTÖÐU
Einsogfyrr greinir var nýja íþrótta-
húsið í Stykkishólmi vígt með við-
höfn í nóvember á sl. ári. Svavari
Gestssyni menntamálaráðherra var
boðið til hátíðarinnar en hann sá sér
26