Íþróttablaðið - 01.02.1991, Blaðsíða 58
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ KOM WALTER ZENGA í
LIÐ ÁRSINS HJÁ FRANCE FOOTBALL
Það kjör, sem beðið er eft-
ir með hvað mestri eftir-
væntingu í knattspyrnu-
heiminum, er kjör franska
tímaritsins FRANCE FOOT-
BALL á knattspyrnumanni
Evrópu. Sá hlýtur að launum
hinn eftirsótta gullbolta.
Tímaritið stóð fyrst fyrir kjör-
inu árið 1956 og hefur það
stöðugt vakið meiri athygli.
Til marks um það má geta
þess að upplag tímaritsins nánast tvöfaldast þegar úrslitin eru birt í lok
hvers árs. Auk þess sem knattspyrnumaður Evrópu er valinn með þessum
hætti stillirtímaritið upp „liði ársins" en í þvíeru vitanlega þeir sem fáflest
atkvæði í kjörinu.
Að þessu sinni tóku alls 29 íþróttafréttamenn, íjafn mörgum löndum,
þátt í kjörinu. í fyrsta skipti í sögunni fékk ísland að greiða atkvæði og féll
það í hlut ritstjóra ÍÞRÓTTABLAÐSINS. Ekki var um leynilega kosningu
að ræða því þau nöfn, sem hver og einn valdi, voru birt í tímaritinu auk
rökstuðnings á valinu.
Eins og flestum er kunnugt sigraði fyrirliði heimsmeistara V-Þjóðverja,
Lothar Matthaus, með nokkrum yfirburðum í kjörinu og kom það fæstum
á óvart. Hann hlaut 137 stig af 145 mögulegum og var í efsta sæti hjá
öllum nema fjórum íþróttafréttamönnum. Síðastliðin tvö ár var Marco
Van Basten kjörinn knattspyrnumaður Evrópu.
Alls fengu 23 leikmenn atkvæði í kjörinu — 8 miðvallarleikmenn, 5
varnarmenn, 9 framherjar en aðeins 1 markvörður. Markvörðurinn var
Walter Zenga hjá Inter Milan en ritstjóri íþróttablaðsins kom honum á
blað. Atkvæðið sem Zenga fékk gerði það að verkum að hann komst í lið
ársins en aðrir markmenn fengu ekki atkvæði. I fyrra fengu fjórir mark-
verðir atkvæði.
Listi 11 efstu manna í kjörinu er eftirfarandi: (Tölurnar í sviganum eru
atkvæði hvers og eins)
Lothar Mattháus, Inter Milan (137)
Salvatore Schillaci, Juventus (84)
Andreas Brehme, Inter Milan (68)
Paul Gascoigne, Tottenham (43)
Franco Baresi, AC Milan (37)
Jiirgen Klinsmann, InterMilan (12)
Enzo Scifo, Auxerre (12)
Roberto Baggio, Juventus (8)
Frank Rijkaard, AC Milan (7)
Guido Buchwald, Stuttgart (6)
Jean-Pierre Papin, MarseilleT3)
Papin frá Marseille kemst ekki í lið ársins þótt hann sé í 11. sæti í kjörinu
því Walter Zenga fer í markið sem markvörður þótt hann fái færri stig. Eins
og áður sagði tók ísland í fyrsta sinn þátt í kjörinu en sérstök dómnefnd
velur hverju sinni hvort ástæða sé til þess að leyfa fleiri löndum að taka
þátt. Malta var sömuleiðis með í fyrsta skipti en þess má geta að dómn-
efndin er mjög ströngogsvífst einskis íþvíað hafna löndum ef henni þykir
ástæða til.
BRJÁLAÐUR BOXARI
Hector Frazier, 27 ára gamall son-
ur fyrrum heimsmeistara í boxi, Joe
Frazier var ákærður í Fíladelfíu fyrir
að hafa hrint 10 ára gömlum strák um
koll og stolið reiðhjólinu hans.
Hector, sem er fyrrum boxari eins og
pabbi hans, var handtekinn af lög-
reglunni og kærður fyrir stuld og lík-
amsárás. Hann hefði kannski t'rekar
átt að fara út í viðskiptafræði?!
SÁ YNGSTI
Albert nokkur Geldard var aðeins
15 ára og 158 daga gamall þegar
hann lék sinn fyrsta leik með Brad-
ford Park Avenue gegn Millwall í 2.
deild ensku knattspyrnunnar árið
1929. Hann er yngsti leikmaðurinn
sem hefur leikið í deildakeppninni á
Englandi. Ken Roberts var nákvæm-
lega jafn gamall þegar hann lék fyrir
Wrexham í 3. deild árið 1951.
SÁ ELSTI
Neil McBain er elsti leikmaðurinn
sem leikið hefur í ensku deilda-
keppninni. Hann var framkvæmda-
stjóri New Brighton sem lék í 3. deild
árið 1947. í leik gegn Hartlepool
skellti Neil sér í markið en hann var
þá 52 ára gamall ogfjögurra mánaða.
FÁIR HAUSAR -
MARGIR HAUSAR
Liverpool notaði aðeins 14 leik-
menn þegar liðið var enskur meistari
í knattspyrnu keppnistímabilið
1965—66. Þetta er met í notkun á
leikmönnum yfir heilt tímabil. Metið
á heilu tímabili hvað fjölda leik-
manna varðar eiga hins vegar Co-
ventry (1919-1920), Sheffield Wedn-
esday (1919-1920) og Hull City
(1946-1947), en þessi lið notuðu 42
leikmenn hvert um sig á einu keppn-
istímabili. í öllum tilfellum átti þetta
sér stað í lok heimsstyrjalda.
58