Íþróttablaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 17
Auk ferðakostnaður er vitanlega um
ýmislegan annan kostnað að ræða
eins og gefur að skilja. En ferðakostn-
aður er vitanlega aðeins lítill hluti
þess sem til þarf til að reka knatt-
spyrnudeild. GARÐAR JÓNASSON,
formaður knattspyrnudeildar Völs-
ungs á Húsavík, áætlar að kostnaður
vegna reksturs deildarinnar í ár verði
ekki undir 7 milljónum króna. „Við
fljúgum á flesta útileiki, enda er varla
verjanai að fara með rútu eða á
einkaþílum því leikmenn eru í vinnu.
Margir eru í skóla á veturna og þurfa
því að nýtatímann vel á sumrin til að
þéna sem mest og þess vegna er ekki
hægt að taka þá úr vinnunni lengur
en nauðsyn krefur.
Rekstrarkostnaður deildarinnar
verður ekki undir 7 milljónum íár og
er ég þá að tala um launa- og ferða-
kostnað allra flokkanna. Kostnaður
vegna æfingaleikja meistaraflokks í
vor var ekki undir 500.000 krónum.
Ástandið á Norðurlandi er með þeim
hætti að þar er enginn malarvöllur
boðlegur til knattspyrnuiðkunar á
veturna eða vorin og því þarf sækja
suður til að spila æfingaleiki. Leik-
menn voru á víð og dreif í vetur og í
fyrsta deildarleiknum voru allir leik-
menn samankomnir í fyrsta skipti."
— Væri ekki leið til sparnaðar að
leika á laugardögum en þá væri jafn-
vel hægt að fara á einkabílum á
föstudögum, gista og gefa sér lengri
tíma fyrir hvern leik?
„Við höfum reynt þetta en kostn-
aður vegna gistingar og uppihalds er
það mikill að það er alveg eins gott
að taka flug og eyða sem minnstum
tíma í útileikina. Við höfum stundum
greitt bensínpeninga þegar þessi
háttur hefur verið hafður á en engu
að síður er þetta kostnaðarsamt fyrir
leikmenn."
— Hverjir eru tekjumöguleikar
knattspyrnudeildarinnar?
„Þeir eru því miður af skornum
skammti og lakari en í fyrra. Húsavík
er lítill staður og sum fyrirtæki vilja
alls ekki leggja peninga í knatt-
spyrnustarfsemina. Það er alltaf hægt
að ganga að ákveðnum aðilum og
fyrirtækjum vísum þegarfarið erfram
á stuðning í formi peningagreiðslna
eða vinnuframlagsen aðendingu ber
sami kjarninn starfið uppi. Völsungur
leikur í sumar í nýjum búningum og
ég hafði sambandi við tíu fyrirtæki og
óskaði eftir auglýsingu á búningana
en árangur varð enginn. Esso styrkti
okkur með auglýsingu á búningana í
5 ár en að því loknu sögðu forsvars-
menn fyrirtækisins að við hefðum
fengið okkar og þeir hefðu áhuga á
að auglýsa annars staðar. Enginn
auglýsing prýðir því búningana í ár.
Aðstöðuleysi stendur knattspyrn-
unni fyrir þrifum á Húsavík og þótt
margir séu áhugasamir vantar hér
meiri félagsanda. Við treystum okkur
ekki til að halda úti 2. flokki ogsömu-
leiðis er engin kvennaknattspyrna á
Húsavík. Vissulega þarf að æfa allan
ársins hringtil að ala upp öfluga leik-
menn en því miður eru aðstæðurnar
ekki fyrir hendi."
ALEXANDER HÖGNASON knattspyrnumaður
Hvað dettur
ALEXANDER
HÖGNASYNI íhug
þegar hann heyrir
eftirfarandi orð?
KASSI: Þetta er gildra til að t'á mig
til að segja eitthvað niðrandi um
brjóstkassann á Óla Þórðar. Ég ætla
ekki að falla í gildruna því það er ekki
orðum eýðandi á þennan pappa-
kassa.
BANANI: Þeirgeyma þá áótrúleg-
um stöðum í Amsterdam.
TEPPI: Akranesvöllur í góðu ár-
t'erði.
INGIBJÖRG SÓLRÚN: Reykja-
víkurlíðin blómstra nú ekki í hennar
stjornartíð.
FÆREYJAR: Hin heimsfræga kúlu-
súpa á sjómannastofunni t Klakksvík.
BÓ.NDI: Þaðstarffæri Braga Berg-
mann betur en dómgæslan.
DRUSLA: Ladan hans Sigga Jóns.
STÓRBEINÓTTUR: Lyfjafræðing-
ur t Skagaliðinu.
REIÐI: Eitthvað sem á til að grípa
mann.
SPJALD: Hluturinn sem fylgir oft
rejðinni.
VARIR: David Robinson. (Eru
þetta varir eða vörubíladekk framan í
manninum?).
BJÓR: Af hverju dettur mér Heimir
Guðjónsson í hug?
PENINGAR: Sé þá bara um mán-
aðamót.
GUDJÓN: Sigursæll á Skaganum,
vonlaus f Vesturbænum.
VESTMANNAEYJAR: Orðheppnir
áhorfendur.
FEIMNI: Andstætt orð við Gauja
Þórðar.
ANDI: Of mikill vínandi og bar-
áttúandi fara ekki vel saman í tollin-
um. (Áfram Keftavíklþ
17